tóbaksvarnir.
Forseti. Ef ég skil þetta rétt þá má ekki auglýsa svona vörur. Og ef það má ekki auglýsa vörurnar og segja: Heyrðu, hér er einhver flott vara með einhverju flottu bragði sem má ekki ná til krakka o.s.frv. — ef það má ekki auglýsa neitt svoleiðis, af hverju þarf þá að banna útfærsluna á því eða þetta bragðefni eða hvernig sem það er? Er það ekki óþarfi? Það er ekki hægt að nota þetta sem auglýsingatæki til að reyna að höfða til einhvers hóps hvort eð er. Þannig að mér finnst þetta svolítið undarleg og óþörf viðbót við það sem er kannski í rauninni þegar bannað að einhverju leyti, á skiljanlegan hátt, svona upp á forvarnir að gera. En ég segi nei við þessu. Ég átta mig ekki á því hvernig fólk komst eiginlega að þeirri niðurstöðu að banna bragðefni.