tóbaksvarnir.
Virðulegi forseti. Hér er um að ræða bann á fjarsölu en í greinargerðinni stendur m.a. að þetta sé heimilt: Íslenskum stjórnvöldum er heimilt að taka upp þetta ákvæði en þeim ber ekki skylda til að taka upp þetta ákvæði. Ég átta mig einfaldlega ekki á tilgangi þessa banns á fjarsölu yfir landamæri. Fjarsala á áfengi er leyfð og ég skil ekki í hvaða átt þessi þróun er að fara. Ég meina: Stendur til að banna fjarsölu áfengis næst?
Virðulegi forseti. Mér finnst þetta bara vera skringileg þróun og þetta kemur niður á valfrelsi neytenda. Þess vegna ætla ég að greiða atkvæði gegn þessu. Og líka bara: Við erum að tala svolítið mikið um gullhúðun. Ég ætla kannski ekki beint að fara út í það en ef við viljum takmarka gullhúðun þá ættum ættum við kannski ekkert að vera að taka upp heimildir sem okkur ber ekki skylda til að taka upp.