154. löggjafarþing — 41. fundur,  4. des. 2023.

tóbaksvarnir.

226. mál
[16:19]
Horfa

Björn Leví Gunnarsson (P):

Forseti. Ég greiði atkvæði gegn þessari breytingu hérna, að banna sölu yfir landamæri. Mér finnst það undarlegt og mér finnst það sérstaklega undarlegt í samhengi einmitt við áfengið og bara önnur sambærileg efni þegar allt kemur til alls. Mér finnst einfaldara að hafa þetta eins. Eins ógeðslegt og mér finnst tóbak vera og sumum finnst áfengi vera o.s.frv. þá er það bara mín skoðun. Ég virði þá skoðun að öðrum finnist það ekki eða hvernig sem það er. Mér finnst bara að við ættum að hafa þetta dálítið í sama búningi, að vera ekki að flakka með þetta: Svona fyrir þetta, hinsegin fyrir hitt o.s.frv. Eins og hv. þm. Lenya Rún Taha Karim kom inn á hérna er það ekki skylda að taka þetta inn svona þannig að ég veit ekki af hverju við þurfum endilega að vera eitthvað öðruvísi heldur en aðrir.