154. löggjafarþing — 41. fundur,  4. des. 2023.

málstefna íslensks táknmáls 2024--2027 og aðgerðaáætlun.

37. mál
[16:38]
Horfa

Halla Signý Kristjánsdóttir (F):

Virðulegi forseti. Ég vil byrja á því að þakka hæstv. ráðherra fyrir þessa þingsályktunartillögu, mjög mikilvæga. Þetta skiptir máli, við erum að tala hér um að þetta sé fyrsta opinbera málstefnan sem gerð er um táknmálið. Þetta er mikilvægt fyrir þá sem þurfa að nota það og okkur öll hin. Við gleymum alltaf og þurfum að rifja upp að heyrnarlaus einstaklingur sem notar táknmál verður að geta talað við hina líka. Ég fagna því sérstaklega að hérna í aðgerðaáætluninni, undir meginstoðum málstefnu íslensks táknmáls, undir A, sé talað um að aðgengi foreldra að upplýsingum um íslenskt táknmál sé mikilvægt. Þetta er afar mikilvægt og það er líka mikilvægt að byggja undir þá stoð að aðgengið sé óháð búsetu því að barn sem fæðist fjarri þessari þjónustu sem er hér í Reykjavík — þetta er náttúrlega lítill hópur döff fólks hér á Reykjavíkursvæðinu en það eru náttúrlega einstaklingar sem fæðast um allt land sem kannski annaðhvort missa heyrn eða fæðast heyrnarlausir — og að fjölskyldan sé þá með í spilinu og það eru ekki bara mamma og pabbi heldur líka oft amma og afi. Þetta er svo mikilvægt því að það þarf að byggja upp þann heim sem styður við þroska barns sem hefur kannski fæðst heyrnarlaust. Nú er til sú tækni að fólk er að fara jafnvel á öllum aldri í kuðungsígræðslu og fá heyrn, það tekst ekki alltaf en sem betur fer gerist það oft, og þá eru börnin tvítyngd. En barnið er jafn heyrnarlaust og áður þegar það tekur af sér tækin, hvort sem það er í sundi eða einhvers staðar annars staðar. Við þurfum að byggja upp þennan heim og það er ekkert endilega að fækka í döff hópnum þó að við búum við þessa tækni heldur getum við brugðist við henni. En þetta er mjög mikilvægt.

Mig langar til þess að vitna í umsögn Samskiptamiðstöðvar sem kom fram í samráðsgáttinni. Hún lýsir yfir stuðningi við þetta. Mig langar, með leyfi forseta, að lesa hér upp úr þessari umsögn:

„Það að tryggja að öll foreldri táknmálsbarna fái faglega ráðgjöf og fræðslu um íslenskt táknmál og kennslu er ekki síður mikilvægt en að tryggja táknmálstalandi fólki réttinn til aðgengis á móðurmáli/fyrsta máli sínu“ — eins og tekið er fram hér í aðgerðaáætluninni. — „Mikilvægt er að tryggja þann rétt á öllum skólastigum og að sá réttur sé virtur óháð búsetur.“

Þessi hópur verður kannski fyrst út undan þegar kemur að námskránni, að hún sé uppfærð eftir aldri og bekkjum, og við erum kannski enn þá svolítið út úr í skólum landsins hvað þetta varðar, að fylgja þessu alla leiðina upp á háskólastig og í öðrum menntastofnunum eins og iðnskólum og fleira. Við verðum líka að hlúa að menningu táknmálsfólks og gera hana sýnilegri. Og eins er þetta svo nauðsynlegt vegna þess að táknmálið þróast eins og önnur tungumál og það er bara gaman að fylgjast með því að þegar börn eru að læra táknmál þá taka þau nýyrði inn og búa kannski til sína eigin og málið þróast eins og önnur tungumál. Mig langaði bara til að koma hérna upp og taka undir þetta mál og vona að það fái góða umræðu og nái farsælum endi. Ég held að það sé mjög mikilvægt að við hlúum að þessu því að það eru tvö opinber mál hér á Íslandi, þ.e. íslenskan og svo táknmálið. Mig langar bara aftur og enn að þakka kærlega fyrir þessa þingsályktunartillögu.