154. löggjafarþing — 41. fundur,  4. des. 2023.

stefnumótandi áætlun í málefnum sveitarfélaga fyrir árin 2024--2038 og aðgerðaáætlun fyrir árin 2024--2028.

182. mál
[17:19]
Horfa

Frsm. um.- og samgn. (Halla Signý Kristjánsdóttir) (F):

Virðulegi forseti. Ég mæli hér fyrir hönd umhverfis- og samgöngunefndar fyrir nefndaráliti um tillögu til þingsályktunar um stefnumótandi áætlun í málefnum sveitarfélaga fyrir árin 2024–2038 og aðgerðaáætlun fyrir árin 2024–2028. Tillagan felur í sér, eins og heiti hennar gefur til kynna, annars vegar stefnumótandi áætlun í málefnum sveitarfélaga fyrir næstu 15 árin og hins vegar aðgerðaáætlun fyrir næstu fimm árin. Nefndin fjallaði um málið og fékk á sinn fund gesti og bárust umsagnir. Greint er frá því í nefndaráliti en það liggur frammi. Í kjölfar umfjöllunar nefndarinnar um málið vill nefndin árétta sérstaklega að hún fjallaði um samstarfssamninga sveitarfélaga en í tillögunni kemur fram að fækkun samninga milli sveitarfélaga um framsal ákvörðunarvalds verði einn mælikvarði sem stuðst verði við til að ná markmiði um að sjálfsstjórn og ábyrgð sveitarfélaga verði virt og tryggð verði sem jöfnust réttindi og aðgengi íbúa að þjónustu.

Við umfjöllun um málið komu fram sjónarmið þess efnis að fækkun samninga milli sveitarfélaga sé ekki endilega til þess fallin að efla sveitarfélög eða þjónustu við íbúa þeirra. Það geti verið mikilvægt að sveitarfélög geri með sér samninga í ýmsum málaflokkum, svo sem á sviði barnaverndar eða annarra félagsmála. Þá komu fram sjónarmið um að fækkun samninga með framsali á ákvörðunarvaldi ætti ekki að vera markmið í sjálfu sér heldur færi það samstarfssveitarfélög nær hvert öðru og geti þannig verið undanfari sameiningar. Með sameiningu fækki samstarfssamningum sjálfkrafa en það ætti þó ekki að vera sjálfstætt markmið.

Nefndin bendir á að sveitarstjórnarlög byggist m.a. á þeirri forsendu að skipulag og starfsaðstæður sveitarfélaga séu með þeim hætti að þau geti sjálf borið ábyrgð á framkvæmd verkefna sem þeim er falið að sinna. Í því felst að sveitarfélög skuli vera sjálfbær, bæði faglega og rekstrarlega. Í því felst ekki að sveitarfélög þurfi eða eigi að rækja verkefni sín sjálf að öllu leyti heldur er sveitarfélögum tryggður þessi réttur til samvinnu um rekstur þeirra verkefna sem þau geta ekki innt af hendi sjálf og á eigin vegum eða þau telja hagkvæmara að leysa með þeim hætti.

Í 3. gr. sveitarstjórnarlaga er tilgreint að það sé einnig forsenda þess sem frumvarp til sveitarstjórnarlaga byggist á að sveitarfélög hafi möguleika til samvinnu. Nefndin undirstrikar mikilvægi þess að sveitarfélög hafi fjárhagslega burði til að sinna verkefnum sínum líkt og lög gera ráð fyrir og við vinnu við fækkun samstarfssamninga sveitarfélaga þarf að huga vel að þeim þáttum í samstarfi við sveitarfélög, sér í lagi þau sem fámennari eru. Þá er mikilvægt að tekið sé tillit til lagabreytinga á undanförnum árum þar sem aukin ábyrgð hefur verið lögð á herðar sveitarfélaga.

Eitt lykilviðfangsefna tillögunnar er fjölbreyttara atvinnulíf með áherslu á fjölgun opinberra starfa á landsbyggðinni. Við umfjöllun um málið hjá nefndinni komu fram sjónarmið þess efnis að dæmi séu um að ráðið hafi verið í störf með staðsetningu en þeir starfsmenn hafi flutt störfin með sér á höfuðborgarsvæðið án þess að önnur störf hafi komið í staðinn. Skoða þurfi hvort hægt sé að festa störf miðað við staðsetningu og hvort það væri mögulegt að forstöðumenn ríkisstofnana þurfi að rökstyðja það ef störfin flytjast annað eða bjóða upp á ný störf í staðinn. Þá komu fram sjónarmið um að fyrirtæki á markaði séu í samkeppni við hið opinbera um starfsfólk og að ótækt sé að hið opinbera verði ofan á í samkeppni um sérhæft starfsfólk í stórum stíl. Jafnframt komu fram hugmyndir um flutning starfa frá höfuðborgarsvæðinu eða að gera þau óstaðbundin í stað þess að fjölga opinberum störfum markvisst á landsbyggðinni.

Nefndin telur mikilvægt að viðfangsefni tillögunnar, sem miðar að fjölgun opinberra starfa á landsbyggðinni, nái fram að ganga. Mikilvægt er að íbúar á landsbyggðinni hafi á sem flestum sviðum aðgang að sérhæfðri þjónustu sem veitt er af sérfræðimenntuðu fólki. Fjölgun sérfræðimenntaðra stuðli að öflugra og fjölbreyttara atvinnulífi sem er ein grunnstoð tekjuöflunar sveitarfélaga og gerir það líklegra að sveitarfélögin geti sinnt lögbundnum verkefnum. Þá getur fjölgun opinberra starfa á landsbyggðinni falið í sér flutning starfa á landsbyggðinni.

Þriðja aðgerðir tillögunnar felur í sér að afstaða verði tekin til þess hvernig staðið verði að því að styrkja tekjustofna sveitarfélaga og auka fjárhagslega sjálfbærni þeirra. Er lagt upp með að byggja á greiningu fráfarandi tekjustofnanefndar um nýja tekjustofna og/eða tilfærslu tekjustofna milli ríkis og sveitarfélaga. Meginsjónarmið þessarar tillögu er að sveitarfélögum séu tryggðir nauðsynlegir tekjustofnar, í samræmi við þau verkefni sem þeim eru falin með lögum, sem geti staðið undir þeirri þjónustu sem íbúar kalla eftir.

Við umfjöllun í nefndinni kom m.a. fram að tekjustofnar og endurskoðun þeirra væru grundvallaratriði þegar kemur að rekstri sveitarfélaga. Þá kom fram að sveitarfélög hafi sum hver mjög viðkvæma og sveiflukennda tekjustofna. Þau sem væru í þeim aðstæðum þyrftu fjölbreyttari tekjustofna til þess að vega á móti þeim sveiflum. Fram kemur í umsögn Ísafjarðarbæjar að tryggja verði sveitarfélögum tekjustofna til að standa undir lögbundnum verkefnum sínum. Þá verði að horfa til nýrra tekjustofna, svo sem hlutdeildar í fjármagnstekjuskatti, gistináttaskatts og annars sem nefnt er í skýrslu tekjustofnanefndar. Þá er bent á í umsögn Reykjavíkurborgar að mikilvægt sé að hraðað verði heildarendurskoðun á tekjustofnum sveitarfélaga. Auk þess kemur fram í umsögn Sambands íslenskra sveitarfélaga að endurskoðun tekjustofna sveitarfélaga sé aðkallandi verkefni enda sé fjárhagsleg sjálfbærni sveitarstjórnarstigsins ein helsta forsenda þess að það fái þrifist hér á landi.

Nefndin undirstrikar mikilvægi þess að ráðist verði í endurskoðun á tekjustofnum sveitarfélaga. Þá tekur nefndin undir það sem fram kom við umfjöllun málsins að slík endurskoðun sé grundvallaratriði þegar kemur að rekstri og fjárhagslegri sjálfbærni þeirra.

Fimmta aðgerð tillögunnar miðar að því að endurskoða lagaumhverfi Jöfnunarsjóðs sveitarfélaga.

Við umfjöllun um málið fyrir nefndinni komu fram sjónarmið þess efnis að brýnt sé að fylgja eftir boðuðum breytingum á regluverki jöfnunarsjóðs og lögðu umsagnaraðilar áherslu á að þessi aðgerð nái fram að ganga. Þá kom fram við umfjöllun nefndarinnar að mikilvægt sé að sjóðurinn sinni raunverulega því hlutverki að jafna mismunandi útgjaldaþörf og skatttekjur sveitarfélaga með framlögum úr sjóðnum, en aðstæður sveitarfélaga séu afar ólíkar og koma þurfi til móts við þær.

Nefndin vill benda á að fyrir Alþingi liggur nú frumvarp til laga um Jöfnunarsjóð sveitarfélaga og hefur umhverfis- og samgöngunefnd málið til umfjöllunar.

Fimmtánda aðgerð aðgerðaáætlunarinnar miðar að því að ábyrgð, hlutverk, fjármögnun og skipulag í samstarfi sveitarfélaga og ríkis í þjónustu við fatlað fólk verði afmarkað með skýrari hætti. Verði m.a. tekið mið af því að samkvæmt samkomulagi ríkis og sveitarfélaga færist ábyrgð á notendastýrðri persónulegri aðstoð, NPA, og þróun hennar til sveitarfélaga árið 2025. Fram kemur í greinargerð með tillögu þeirri sem hér er til umfjöllunar að tímabært sé að endurskilgreina hlutverk ríkis og sveitarfélaga, en nauðsynlegt sé að sveitarfélögum sé gert kleift að sinna lögbundinni þjónustu sinni við þennan hóp með sóma.

Í umsögnum sem nefndinni bárust við umfjöllun um málið kom m.a. fram að mikilvægt sé að þær aðgerðir sem finna má í tillögunni taki tillit til stefnu í landsáætlun um málefni fatlaðra. Einnig komu fram sjónarmið um að það væri vandséð að fámenn sveitarfélög hafi burði til þess að bjóða upp á þá þjónustu sem þeim er skylt að sinna samkvæmt lögum. Í umsögn Reykjavíkurborgar kemur fram að tryggja verði fulla fjármögnun á þjónustu sveitarfélaga við fatlað fólk. Þá kemur fram í umsögn Sambands íslenskra sveitarfélaga að nauðsynlegt sé að sátt náist um fjármögnun þjónustu við fatlað fólk svo að þessi aðgerð nái fram að ganga.

Nefndin tekur undir það, sem fram kom við umfjöllun málsins og kemur fram í áætluninni, að langvarandi umræður um kostnaðarskiptingu séu líklegar til þess að koma niður á þjónustu ásamt því að valda vanlíðan meðal fatlaðs fólks. Mikilvægt sé að sátt náist um málaflokkinn og að komist verði að samkomulagi um fjármögnun þjónustunnar.

Þá er hérna fjallað um búsetufrelsi. Ellefta aðgerð tillögunnar snýr að búsetufrelsi. Verkefnismarkmið aðgerðarinnar miðar að því að áskoranir búsetufrelsis verði greindar út frá gildandi lögum. Skoðað verði sérstaklega hvort ástæða sé til breytinga á gildandi lögum um lögheimili og aðsetur í tengslum við búsetufrelsi og að unnið verði út frá þeirri meginreglu að skipulag sveitarfélaga ráði því hvar heimilt sé að skrá lögheimili og einnig hvar sveitarfélögum sé skylt að veita þjónustu við íbúa.

Ábyrgð og framkvæmd skipulagsmála hvílir fyrst og fremst á herðum sveitarfélaga. Eitt af þeim lögbundnu hlutverkum sem sveitarfélög hafa er gerð skipulagsáætlana og útgáfa framkvæmdaleyfa, en auk þess hafa sveitarfélög eftirlit með framkvæmd áætlana.

Í þeim umsögnum sem bárust nefndinni og við umfjöllun málsins komu fram sjónarmið um að sama orðalag verði tekið upp í tillöguna varðandi skýringu á hugtakinu búsetufrelsi og notað er í drögum að hvítbók um skipulagsmál, þ.e. að skýrt verði tekið fram að með búsetufrelsi sé ekki opnað fyrir að fólk geti valið sér búsetu utan þeirra svæða sem sveitarfélög skipuleggja fyrir íbúabyggð. Í umsögn Eyjafjarðarsveitar kemur fram að fjármunir þurfi að fylgja ef sambærileg þjónusta og skilyrði skulu vera óháð því hvar fólk velur að búa. Í því samhengi er snjómokstur nefndur ásamt því að heilbrigðisþjónusta sé vanfjármögnuð og búsetuúrræði af skornum skammti. Geti það haft í för með sér að eldri borgarar einangrist. Mikilvægt sé að ganga út frá því að sveitarfélög hafi sveigjanleika til að ákveða þjónustustig á mismunandi svæðum út frá aðstæðum á hverjum stað. Fram kemur í umsögn Sambands íslenskra sveitarfélaga að nokkur umræða hafi skapast um hvað felist í hugtakinu og hvaða þýðingu það hafi fyrir þjónustu við íbúa sveitarfélaga, sér í lagi í tengslum við aukna búsetu fólks í frístundabyggð, í atvinnuhúsnæði eða á tjaldsvæðum. Mikilvægt sé að stjórnvöld hafi sameiginlegan skilning á hugtakinu. Sambandið leggur sérstaka áherslu á að skoðað verði hvort þörf sé á lagabreytingu í þessum efnum og unnið út frá þeirri meginreglu að skipulag sveitarfélaga ráði því hvar heimilt sé að skrá lögheimili og hvar sveitarfélögum sé skylt að veita þjónustu við íbúa.

Nefndin fagnar því að ráðuneytið hyggist skoða möguleika á auknu búsetufrelsi íbúa sveitarfélaga. Það er hins vegar grundvallaratriði að slíkar breytingar skerði ekki sjálfstjórnarrétt sveitarfélaga, sbr. 78. gr. stjórnarskrárinnar, eða taki völdin af sveitarfélögum í skipulagsmálum þar sem þau hafa lögbundið hlutverk. Auk þess undirstrikar nefndin að huga þarf að því að breytingar á lögum um lögheimili, sem tillagan miðar að, verði ekki til þess fallnar að takmarka fjárhagslega burði sveitarfélaga til þess að sinna þeim verkefnum sem þeim eru falin að lögum. Við þá vinnu er nauðsynlegt að gott samráð fari fram við sveitarfélög um allt land enda er staða þeirra ólík, bæði landfræðilega og fjárhagslega. Auk þess bendir nefndin á að í sumum tilfellum er lögheimilisskráning grundvöllur tiltekinna réttinda, svo sem réttar til niðurgreiðslu húshitunarkostnaðar hjá þeim íbúum sem eiga ekki kost á fullri hitun með jarðvarma því að þeir búa á svokölluðum köldum svæðum.

Sextánda aðgerð tillögunnar felur í sér heildstæða stefnumörkun um stafræna umbreytingu sveitarfélaga og samstarf sveitarfélaga við ríkið til að ná þeim markmiðum.

Við umfjöllun um málið kom m.a. fram að tækniþróun og stafræn umbreyting stjórnsýslu sveitarfélaga sé nýtt í margvíslegum tilgangi. Sveitarfélög geti til að mynda nýtt tæknina til að þjónusta íbúa, sem getur í mörgum tilvikum aukið gæði þeirrar þjónustu sem veitt er. Auk þess hafi þessi þáttur sterk tengsl við búsetufrelsi innan sveitarfélaga enda geti stafræn umbreyting leitt til þess að þjónusta sé aðgengileg öllum íbúum óháð búsetu. Í umsögn Sambands íslenskra sveitarfélaga komu fram sjónarmið um að afar brýnt sé að bæði ríki og sveitarfélög vinni saman að heildstæðri stefnu um stafræna umbreytingu. Að öðrum kosti sé hætta á að stafræn umbreyting sveitarfélaga verði ekki nægilega skilvirk og samlegðartækifæri fari forgörðum. Sambandið myndi því kjósa að aðgerðin yrði útvíkkuð þannig að um sameiginlega stefnu ríkis og sveitarfélaga væri að ræða og að ábyrgð á framfylgd hennar yrði bæði hjá sambandinu og viðkomandi ráðuneytum.

Nefndin tekur að sjálfsögðu undir þau sjónarmið sem fram hafa komið við meðferð málsins og undirstrikar mikilvægi stafrænnar þróunar innan sveitarfélaga. Áherslur af þessu tagi liggja þvert á þær aðgerðir sem á að ráðast í á grundvelli áætlunarinnar, svo sem að auka búsetufrelsi og sinna fjölbreyttari þjónustu við íbúa.

Nefndin leggur til þrjár efnislegar breytingar við tillöguna. Lagt er til að forsætisráðuneytið taki þátt í samvinnu um skilgreiningu sjálfbærniviðmiða.

Í forsetaúrskurði um skiptingu stjórnarmálefna milli ráðuneyta í Stjórnarráði Íslands kemur fram að ráðuneytið fari með mál er varða sérstök áherslumál á sviði samhæfingar, þar á meðal sjálfbæra þróun. Með hliðsjón af því og yfirstandandi stefnumótun í forsætisráðuneytinu á sviði sjálfbærni er talið rétt að ráðuneytið taki þátt í aðgerðinni.

Þá er lagt til að umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneyti verði ábyrgðaraðili sjöundu aðgerðarinnar um markvissari árangur á sviði umhverfis- og loftslagsmála og að innviðaráðuneytið verði samstarfsaðili í því verkefni. Frá upphafi hefur verið ljóst að ráðuneytin myndu eiga með sér náið samráð um markvissari aðgerðir á sviði umhverfis- og loftslagsmála innan sveitarfélaga. Í ljósi gagnaöflunar umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytisins innan sveitarfélaga í tengslum við aðgerðaáætlun stjórnvalda í loftslagsmálum leggur nefndin þessa breytingu til. Þá eru lagðar til minniháttar eða lagatæknilegar breytingar sem gerð er grein fyrir í nefndaráliti.

Virðulegi forseti. Að framansögðu virtu leggur nefndin til að frumvarpið verði samþykkt með þeim breytingum sem eru lagðar fram í nefndarálitinu. Undir nefndarálitið rita, auk þeirrar sem hér stendur, hv. þingmenn Bjarni Jónsson, Andrés Ingi Jónsson, Ingibjörg Isaksen, Njáll Trausti Friðbertsson, Vilhjálmur Árnason, Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir, Þórunn Sveinbjarnardóttir og Orri Páll Jóhannsson. Hv. þingmenn Andrés Ingi Jónsson, Þórunn Sveinbjarnardóttir og Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir eru á fyrrnefndu nefndaráliti með fyrirvara.

Virðulegi forseti. Ég hef þá lokið máli mínu.