stefnumótandi áætlun í málefnum sveitarfélaga fyrir árin 2024--2038 og aðgerðaáætlun fyrir árin 2024--2028.
Frú forseti. Ég vil byrja á því að þakka hv. þm. Höllu Signýju Kristjánsdóttur fyrir ræðuna og ítarlega yfirferð yfir nefndarálit umhverfis- og samgöngunefndar um þessa þingsályktunartillögu um áætlun í málefnum sveitarfélaga og aðgerðaáætlun sem henni fylgir. Ég held að hér sé um mjög góða og þarfa tillögu að ræða sem hefur það markmið að styrkja sveitarfélögin um allt land og byggðarlögin. Það er auðvitað margt í þessu, bæði í tillögunni sjálfri og aðgerðaáætluninni, sem tekur á þeim áskorunum sem við höfum staðið frammi fyrir og sveitarfélögin hafa staðið frammi fyrir á síðustu árum. Ég held að þetta allt saman geti styrkt það og gert sveitarfélögin sjálfbærari og sjálfstæðari í sínum verkefnum og störfum. Þetta held ég að sé það sem við þurfum og viljum vegna þess að við erum hér á landi með tvö stjórnsýslustig sem eru ríki og sveitarfélög og mér finnst oft, ég bara kannast ágætlega við það sem fyrrum sveitarstjórnarmaður, að upplifun margra sveitarstjórnarmanna sé eins og það sé eitthvert stjórnsýslustig, ríkisstigið þá, sem sé æðra sveitarstjórnarstiginu. Við verðum að bera gæfu til þess að bæta úr þessum samskiptum. Maður hefur oft sagt það að við sem sitjum á Alþingi og framkvæmdarvaldið erum auðvitað með þennan ramma, lagaumgjörðina og regluverkið í kringum starfssemi sveitarfélaga á meðan sveitarfélögin og fulltrúarnir þar eru með nærþjónustuna, þjónustu við íbúanna, og sjáum til þess að þau séu að gera það sem þeim ber skylda til að gera, sem er auðvitað að sinna ákveðnum málaflokkum. Við getum nefnt grunnskólana, þjónustu við fatlað fólk o.s.frv. Sveitarfélögum hafa á síðustu árum verið færð æ fleiri verkefni í hendurnar sem hefur verið áskorun, það verður að segjast alveg eins og er, fyrir sveitarfélögin að takast á hendur. Að mínu mati hafa þau gert vel að mörgu leyti en þessu hafa fylgt svona stækkunarverkir, ef svo má að orði komast. Það er ágætlega tekið á því í þessu skjali að úr því skuli bæta, þ.e. varðandi tekjupósta sveitarfélaga, og það er kannski það sem ég ætla að stoppa hvað mest við og svo auðvitað þjónustan við fatlað fólk.
Ég held að markmiðið sé alveg skýrt hér, þ.e. að styrkja sveitarfélögin en við verðum líka að átta okkur á því að þau eru misjöfn, jafn misjöfn og þau eru mörg. Þau eru mörg í dag. Kannski myndu einhverjir segja of mörg og það séu tækifæri til frekari sameininga. Ég held að það sé svo sannarlega þannig. En við verðum að taka tillit til þess alls. Ég held að það sé mikilvægt að staldra við því þegar við erum að fjölga verkefnum hjá sveitarfélögunum þá held ég að það sé ekki alltaf tekið nægilegt tillit til þess að það kostar fjármagn og ég held að flestir kannist við það að þegar verkefni færast yfir til sveitarfélaga, líkt og gerðist með grunnskólann og fatlað fólk, þá eykst þessi nærþjónusta, nálægðin við bæði starfsmenn viðkomandi sveitarfélaga og kjörinna fulltrúa er meiri sem þýðir það að kostnaðurinn á það til að verða meiri og það fjármagn hefur ekki alltaf fylgt. Ég held að flestir ef ekki allir séu sammála um að það var mikið gæfuspor árið 2011 þegar þjónusta við fatlað fólk var færð yfir til sveitarfélaga þrátt fyrir þá umræðu sem hefur átt sér stað, og sérstaklega á síðustu mánuðum og árum hefur sú umræða orðið háværari, um vanfjármögnun í þeim málaflokki. Ég held að það sé alveg rétt og það er verkefni okkar hér í samvinnu og samstarfi við sveitarfélögin í landinu að bregðast við því og gera þeim kleift að þjónusta fólkið eins vel og við viljum öll gera.
Ég held að það væri óheillaskref að fara aftur til baka eins og einhverjir hafa rætt um, að þjónusta við fatlað fólk fari aftur til ríkisvaldsins. Ég held að það væri ekki skynsamlegt og ég veit það bara, þekki það ágætlega sjálfur, að við viljum þjónusta fatlað fólk vel, eigum að þjónusta það vel, okkur ber skylda til að veita þá þjónustu sem fatlað fólk á rétt á og ég held að þjónustan yrði án andlits, ef svo má segja, ef hún færi aftur til ríkisins, það myndi auka á fjarlægðina og gera fötluðu fólki og þeim sem næst þeim standa erfiðara um vik að fá það sem þau eiga rétt á. Ég held að við eigum að nálgast þessa umræðu með skynsamlegum hætti og þannig að þessi málaflokkur sé fullfjármagnaður. Við skulum halda umræðunni á þeim stað. Mér hefur, svo það sé sagt hér úr þessum ræðustól, ekki líkað það hvernig ákveðnir sveitarstjórar, borgarstjórar, hafa talað í þessum málum vegna þess að það hefur verið látið í veðri vaka að fatlað fólk sé einhver byrði á þessu samfélagi, það sé ástæðan fyrir því að ákveðin borg, ég nefni nú höfuðborgina, Reykjavíkurborg, sé illa rekin og það megi skella skuldinni á fatlað fólk og þann málaflokk. Ég held að við eigum ekki að vera með umræðuna á þeim stað vegna þess að við getum rétt ímyndað okkur að vera í þeim sporum að þurfa að þiggja þjónustu sem við eigum rétt á, sem vissulega kostar fjármuni, og fá það svo í andlitið að þetta fólk sé ástæða þess að hér séu sveitarfélögin rekin með miklu tapi. Ég held að menn þurfi að líta sér nær og taka til á öðrum stöðum áður en umræðan fer á þennan stað.
Svona rétt í lokin þá finnst mér það skipta mjög miklu máli og ég er mjög ánægður að sjá hvað það er afdráttarlaust orðað hér að tekjustofnar skuli endurskoðaðir, hv. þm. Halla Signý Kristjánsdóttir kom ágætlega inn á það, og fjölgun þeirra, hér var sérstaklega nefnd hlutdeild í fjármagnstekjuskatti, gistináttagjaldi o.s.frv. Ég held að það mætti horfa líka á virðisaukaskattinn í einhvers konar útfærslu. Það þyrfti auðvitað að huga vel að því með hvaða hætti það væri gert. En við þekkjum það auðvitað og vitum að tekjustofnar sveitarfélaga eru ekki nægilega margir. Það eru fasteignagjöldin, útsvarið og ýmiss konar þjónustutekjur sem sveitarfélögin hafa. En það er allt og sumt. Þessum tekjupóstum verður auðvitað að fjölga og ég er ánægður að sjá að hér eigi að taka til hendinni hvað þetta allt saman varðar. Þetta skiptir allt máli.
Ég ætla að ljúka þessu á þeim nótum, en ég hnaut um eitt í nefndarálitinu sem varðaði aðgengi íbúa að þjónustu. Þá vil ég nefna að hæstv. innviðaráðherra setti á sínum tíma 2018, 2019, á fót svokallað þjónustukort þar sem átti einmitt að kortleggja alla þá þjónustu sem er veitt á landinu og er nálægt sveitarfélögunum og ég held að markmiðið hafi verið að öll grunnþjónusta væri ekki í meiri fjarlægð en 5 kílómetra frá tilteknu byggðarlagi. Ég hef sagt það hér undir öðru máli að þetta sé eitthvað sem mætti nýta betur og gera meira úr. — Ég hef lokið máli mínu, frú forseti.