154. löggjafarþing — 41. fundur,  4. des. 2023.

framkvæmdaáætlun á sviði barnaverndar 2023--2027.

241. mál
[17:55]
Horfa

Frsm. meiri hluta velfn. (Lilja Rannveig Sigurgeirsdóttir) (F):

Frú forseti. Ég mæli hér fyrir nefndaráliti meiri hluta velferðarnefndar um tillögu til þingsályktunar um framkvæmdaáætlun á sviði barnaverndar 2023–2027. Nefndin fjallaði um málið á nokkrum fundum og fékk til sín gesti. Það kemur fram í álitinu auk þess sem henni bárust umsagnir. Álitið liggur hér frammi.

Framkvæmdaáætlunin byggist á meginmarkmiðum barnaverndarlaga um ábyrgð og skyldur ríkisins í barnaverndarmálum. Í tillögunni er lögð áhersla á að framkvæmdir í málefnum barna miði að því að börn verði sett í öndvegi í allri nálgun. Lögð er sérstök áhersla á heildarendurskoðun á barnaverndarlögum, innleiðingu meðferðarúrræða utan meðferðarheimila og meðferðarfóstur, eflingu og bætt verklag í barnaverndarþjónustu, gæðaviðmið fyrir barnaverndarþjónustu, endurskoðað verklag vegna móttöku og þjónustu við fylgdarlaus börn, könnun alvarlegra atvika í tengslum við börn, húsnæði fyrir þjónustu í þágu farsældar barna og rannsóknir á sviði barnaverndar. Gert er ráð fyrir því að mennta- og barnamálaráðuneytið hafi yfirumsjón með framkvæmd áætlunarinnar en jafnframt ber ráðuneytið ábyrgð á tilteknum aðgerðum. Þá er Barna- og fjölskyldustofu og Gæða- og eftirlitsstofnun velferðarmála falin ábyrgð á tilteknum aðgerðum.

Þær umsagnir sem bárust nefndinni vegna málsins voru jákvæðar og var mat flestra að þar væru settar fram metnaðarfullar aðgerðir í þágu farsældar barna. Þá var því fagnað að gott og mikið samráð hefði verið haft við gerð áætlunarinnar. Við umfjöllun nefndarinnar kom fram að mikilvægt er að bygging nýs meðferðarheimilis fyrir unglinga sem glíma við alvarlegan hegðunar- og/eða vímuefnavanda eða afplána óskilorðsbundna fangelsisdóma ljúki á tímabili framkvæmdaáætlunarinnar. Á tímabili síðustu framkvæmdaáætlunar var stefnt að því að ljúka öðrum áfanga í stofnun nýs meðferðarheimilis með áætlanagerð og ákvörðun um staðsetningu sem uppfyllir skilyrði frumathugunar, fullhönnunar mannvirkis og eftir atvikum breytingar á deili- og/eða aðalskipulagi. Þetta hefur ekki gengið eftir og er enn í vinnslu. Bent var á að þrengt hefði að starfsemi á lokaðri deild á Stuðlum, meðferðarstöð ríkisins fyrir börn og unglinga frá 12–18 ára, og að nauðsynlegt sé að bregðast við ört vaxandi hópi unglinga sem þurfa á þjónustu að halda á lokaðri deild á forsendum barnaverndarlaga. Meiri hluti nefndarinnar tekur undir mikilvægi þess að áfram verði unnið að stofnun nýs meðferðarheimilis þannig að unnt sé að koma til móts við meðferðarþarfir barna sem glíma við þennan vanda.

Að lokum leggur meiri hlutinn til að gerð verði breyting, enda er heitið Mennta- og skólaþjónustustofa í framkvæmdaáætluninni, en til samræmis við frumvarp til laga um Miðstöð menntunar og skólaþjónustu sem lagt var hér fram á yfirstandandi þingi og er til meðferðar leggjum við til þá breytingu að það orð komi fram í tillögunni; Miðstöð menntunar og skólaþjónustu.

Að þessu virtu leggur meiri hlutinn til að tillagan verði samþykkt með þeirri breytingu sem gerð hefur verið grein fyrir.

Undir álitið rita, auk þeirrar sem hér stendur, hv. þingmenn Bjarkey Olsen Gunnarsdóttir, Ásmundur Friðriksson, Bryndís Haraldsdóttir, Guðmundur Ingi Kristinsson, Magnús Árni Skjöld Magnússon, Líneik Anna Sævarsdóttir og Óli Björn Kárason. — Frú forseti. Ég hef lokið máli mínu.