veiðar í fiskveiðilandhelgi Íslands.
Frú forseti. Hér erum við að ræða mál þar sem verið er að laga það í löggjöfinni hjá okkur að þeir sem selja hér búnað til notkunar í fiskiskipum gátu ekki prófað þennan búnað nema fara með skipin út fyrir landhelgina, til þess eins að geta prófað hvernig allt virkaði. Það sem er mjög ánægjulegt er að þarna er verið að tryggja það að hér sé hægt að stunda nýsköpun og fundin leið til þess að tækla það hvernig hægt sé að gefa þessum aðilum leyfi til að framkvæma hlut sem hefur ekkert með sjálfar fiskveiðarnar að gera heldur það að geta selt þennan búnað og prófað hann á góðan máta. Það er mjög ánægjulegt að atvinnuveganefnd öll tók þetta mál fyrir og stendur einhuga á bak við það. Það er von mín að við pössum að taka fyrir svona hluti og finnum leiðir til þess að tryggja það að nýsköpun geti átt sér stað og séum óhrædd við að taka við ábendingum um slíkt frá þeim sem eru að stunda nýsköpun, frá þeim sem eru að reyna að búa til störf hér á landi, að við tökum þeim opnum örmum og finnum leiðir eins og þessa; það er leyft að veiða fisk, prófa vélarnar og fiskurinn rennur allur til ríkissjóðs. Með öðrum orðum er enginn kostnaður við þetta. Við verðum að reyna að hugsa út svona lausnir því að með því að opna fyrir það að prófa þetta verða íslensk fyrirtæki sem stunda framleiðslu á búnaði fyrir skip samkeppnishæfari. Þetta er hægt á mörgum öðrum sviðum sem við þurfum bara að vera opin fyrir hér á Alþingi að taka fyrir. Þetta er einfalt frumvarp. Það er einföld lausn búin til. Þetta fer hratt og vel í gegnum nefndir þingsins og nýsköpunin blómstrar.