Störf þingsins.
Herra forseti. Allar spár sýna að fjölgun krabbameinstilfella hér á landi verður umtalsverð á næstu árum. Traust starfsemi Ljóssins, endurhæfingarmiðstöðvar fyrir krabbameinsgreinda, er liður í því að mæta slíkri fjölgun og koma fólki aftur út í lífið eftir greiningu, meðferð og endurhæfingu. Það er ekki aðeins hagur Ljóssins og skjólstæðinga þess heldur samfélagsins alls að sjá til þess að Ljósið geti starfað og þurfi ekki að vísa krabbameinsgreindu fólki frá. Starf Ljóssins skilar þjóðarbúinu til baka. Því fyrr sem Ljósið grípur þá sem greinast með krabbamein, því betra. Ljósið sinnir yfir 1.600 manns sem eru í brýnni þörf árlega og fá 250 millj. kr. á ári frá ríkinu til að sinna öllum þessum fjölda. Til að mæta fjölgun krabbameinsgreindra telur stjórn Ljóssins að nauðsyn sé fyrir 450 millj. kr. til viðbótar ef vel ætti að vera. Þau óska eftir samningi við Sjúkratryggingar sem tekur ákveðin skref í þá átt. Ef þau verða ekki tekin er starfsemin í hættu. Ég veit að ég þarf ekki að sannfæra hv. þingmenn um hve mikilvæg starfsemi Ljóssins er en það virðist sem svo að það þurfi að sannfæra hæstv. ríkisstjórn og stjórnarflokkana um það augljósa, að fleiri skjólstæðingar kalla á aukin fjárframlög. Samningar við Sjúkratryggingar hafa ekki tekist eftir viðræður sem hafa staðið yfir í 18 mánuði.
Ég skora á hv. stjórnarþingmenn að þrýsta á lausn fyrir Ljósið sem dugar. Sjúkratryggingar verða að fá skýrari skilaboð frá hæstv. heilbrigðisráðherra um svigrúm til samninga. Ég skora á fjárveitingavaldið að gera það (Forseti hringir.) sem er rétt, gott og æskilegt fyrir fólk sem hefur greinst með krabbamein. Það er mikið í húfi. (Gripið fram í: Heyr, heyr.)