Störf þingsins.
Herra forseti. Loftslagsmál eru mikið rædd þessa dagana með vísan í loftslagsráðstefnu Sameinuðu þjóðanna sem nú fer fram í Dúbaí. Það vakti athygli mína frétt í hádegisfréttum Ríkisútvarpsins sem Oddur Þórðarson fréttamaður var skrifaður fyrir þar sem yfirskriftin var „Jarðefnaeldsneyti verður útrýmt ef djörfustu tillögur ganga eftir“. Svo segir í fréttinni, með leyfi forseta: „Mögulega verður kveðið á um algera útrýmingu jarðefnaeldsneytis í lokasamþykkt COP28.“ Síðan heldur fréttin áfram og rekur það sem þar gerist og segir síðan undir lok hennar, með leyfi forseta:
„Ísland styður tillögur um algjöra útrýmingu jarðefnaeldsneytis í fyllingu tímans, eins og Katrín Jakobsdóttir forsætisráðherra áréttaði í ræðu sinni á COP28 um helgina. Ísland er þannig á lista með mörgum Evrópusambandsríkjum sem sömu afstöðu taka og velflest eyríki Kyrrahafs, sem mörg hver eru beinlínis að sökkva í sæ vegna hnattrænnar hamfarahlýnunar.“
Gæti tilfinningaklámið, orðaklámið, verið mikið meira heldur en í þessari frétt? Það er auðvitað ekki boðlegt að framsetning ríkismiðilsins sé með þessum hætti. Og hvernig ætlar Ríkisútvarpið að útrýma öllu jarðefnaeldsneyti? Með því að brenna það eða hver skyldi nú leiðin vera? Þetta gerist á sama tíma og sagt er frá því í gær að samkvæmt niðurstöðu kynslóðamælinga Prósents hafi áhyggjur manna af loftslagsmálum dalað mjög frá sams konar mælingu árið 2021. Nú hafa loftslagsáhyggjurnar fallið niður fyrir miðbik hjá fjórum yngstu aldurshópunum. Ég vil biðla til Ríkisútvarpsins að hafa hemil á sér hvað það varðar að ýta undir hræðslu við hluti sem (Forseti hringir.) Ríkisútvarpið í öllu falli hefur enga stjórn á. Þetta er ekki boðleg framsetning á fréttum að segja þær með þessum hætti.