154. löggjafarþing — 42. fundur,  5. des. 2023.

Störf þingsins.

[14:03]
Horfa

Greta Ósk Óskarsdóttir (P):

Virðulegi forseti. Ég þakka góðar móttökur. Það er mér sannur heiður að standa hér uppi í pontu í þingsal. Ég hef oft horft inn að utan og hlakkað til að fá að taka þátt og ekki aðeins leyfist mér það í dag heldur er beinlínis ætlast til þess af mér og það er tækifæri sem ég er þakklát fyrir. En af hverju ætli ég sé hér? Þegar ég var lítil stelpa var ég sérstaklega hrifin af kerfum og ég spáði mikið í það hvernig hlutirnir virkuðu. Ég sá fyrir mér heilu virknimódelin í huganum á mér og hugsaði að það hlyti að liggja fyrir mér að verða kerfisfræðingur. Mér leist bara nokkuð vel á þetta plan þar til ég komst að því að kerfisfræðingar væru fólk sem vinnur við tölvur, eins og Fiffó frændi, en það leist mér ekkert á svo að ég varð eiginlega alveg afhuga því. Ég er því ein fárra Pírata sem ekki elskar forritun, en það má nú segja að við í Pírötum séum flest góð í kerfum en bara sum góð í tölvum.

Þegar ég var 25 ára þá gekk ég með tvíbura. Þeir fæddust allt of mikið fyrir tímann, eftir fimm og hálfan mánuð af meðgöngu, og fæddust á mörkum þess að vera lífvænlegir. Annar sonur minn lifði í sólarhring og hinn sonur minn barðist fyrir lífi sínu í mánuð og ég missti hann oft næstum frá mér. Hann komst úr lífshættu en þurfti að vera þrjá mánuði til viðbótar á vökudeild. Þetta allt saman markaði hann og mig, hann er með ör og afleiðingar og ég með hausinn fullan af hugsunum. Í dag er þessi sonur minn glæsilegur ungur maður sem ég lít upp til á alla vegu og líka bókstaflega því að hann er orðinn hávaxnari en ég. Svo missti ég mömmu mína úr óhugnanlegum veikindum fjórum árum síðar, eina fínustu mömmu sem hægt er að óska sér. Þegar sorgin sjatnaði aðeins fór hausinn minn af stað: Hvað hafði farið úrskeiðis? Hvað hefði verið hægt að laga og hvað er hægt að laga? Ég fann fullt af hlutum sem höfðu haft áhrif og hægt væri að laga. Suma hlutina hafði ég gert vitlaust sjálf en ég fann líka alls konar í kerfunum okkar sem hafði áhrif og hægt væri að laga. (Forseti hringir.) Þess vegna er ég hér, því að mig langar að laga kerfin og skapa velferð og vellíðan, en einnig til að takast á því að það finnst mér líka dálítið gaman. Ég þakka því bara kærlega fyrir mig. (Gripið fram í: Heyr, heyr.)