fjárlög 2024.
Virðulegur forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir seinna andsvarið. Ég deili áhyggjum hans af Landhelgisgæslunni eins og ég held að margir geri hér inni. Einmitt á sama tíma í fyrra vorum við í þessari umræðu um Landhelgisgæsluna þar sem fjárlaganefnd hélt að við værum að leysa ákveðinn vanda með því að setja inn það fjármagn sem óskað hafði verið eftir, sem kom síðan í ljós að var ekki nægjanlegt. Þessi tillaga núna, sem gengur út á það að taka af þennan uppsafnaða halla, sem er 240 milljónir, mun breyta stöðu Gæslunnar töluvert mikið. Það mun breyta stöðunni töluvert mikið líka ef við náum að taka hallareksturinn af þannig að Landhelgisgæslan geti byrjað á núlli árið 2024. Sú tillaga er ekki í fjáraukanum en við þurfum klárlega að ræða hana. Það er ljóst að við þurfum sömuleiðis í fjármálaáætlun að taka algjörlega til endurskoðunar (Forseti hringir.) rekstrargrunn Landhelgisgæslunnar til langframa því sú staða sem uppi er núna (Forseti hringir.) er að mínu mati ekki boðleg fyrir okkur sem þjóð og öryggi þeirra sem hér búa.
(Forseti (ÁsF): Forseti minnir menn á ræðutímann.)