154. löggjafarþing — 43. fundur,  5. des. 2023.

fjárlög 2024.

1. mál
[16:16]
Horfa

Frsm. 1. minni hluta fjárln. (Björn Leví Gunnarsson) (P) (andsvar):

Forseti. Það er pínulítið af gefinni reynslu sem þessar spurningar koma frá mér, eins og með Landspítalann. Ég hef upplifað einmitt framkvæmdastopp eða framkvæmdahlé sem var í rauninni til þess að spara peninga. Þar voru útskýringarnar líka þær að það væri ekki hægt að framkvæma fyrir þetta mikið fjármagn á árinu, en það var bara hlé, það var hægt að gera ýmislegt samkvæmt því sem ég heyrði þegar ég labbaði bara inn á framkvæmdasvæðið og spurði verkfræðingana sem voru þar. Er ekki hægt að gera ýmislegt hérna? Þeir sögðu: Jú, við erum bara ekki með pening. Mig langar líka til að spyrja formann fjárlaganefndar um niðurfellingu á fjármagni til grunnrannsókna. Skilaboðin eftir Covid voru að við ættum að vaxa úr kófinu, vaxa úr þessari efnahagskreppu sem kom í kjölfarið en nú er verið að leggja til að leggja niður fjármagn sem í raun ætti að kosta rúmlega 70 doktorsverkefni, þ.e. ársverk doktorsnema. (Forseti hringir.) Það munar um minna (Forseti hringir.) í framtíðarnýsköpun og hagvexti að gera það á þessum tíma.