154. löggjafarþing — 43. fundur,  5. des. 2023.

fjárlög 2024.

1. mál
[16:33]
Horfa

Frsm. 1. minni hluta fjárln. (Björn Leví Gunnarsson) (P):

Forseti. Það er ekki lengur vatnskanna hérna í púltinu svo maður þarf að taka með sér vatn í ræðustólinn, annars gæti þetta orðið erfitt, það er langur tími sem maður hefur hérna enda er þetta viðamikið frumvarp og mjög margar tillögur sem þarf að fara yfir. Nú erum við að verða búin með annað árið af verðbólgu. Verðbólgan byrjaði að fara af stað í upphafi árs 2022. Fyrstu aðgerðirnar gegn verðbólgunni komu í maí, júní í fyrra, 2022, og vonin hjá ríkisstjórnarflokkunum er að það fari að slá eitthvað á hana á næsta ári. Það er það sama og var sagt í fyrra og þegar fjárlög voru samþykkt fyrir síðustu áramót og þegar fjármálaáætlun var samþykkt núna í vor o.s.frv. Bara það sama aftur og aftur. Það er ekkert sérstakt í fjárlagafrumvarpinu þegar allt kemur til alls sem sýnir að fjárlagafrumvarpið sé ástæðan fyrir því að við ættum að sjá lækkun á verðbólgunni á næsta ári. Umsagnir um það eru bara mjög skýrar. Það er í rauninni hlutlaust gagnvart peningastefnunni, styður ekki sérstaklega við hana heldur er það hlutlaust. Höfum það algjörlega á hreinu. Þetta kemur frá Seðlabankanum sem er í rauninni skilinn einn eftir í baráttunni við að lemja niður efnahagsbóluna eins og hún hefur komið í ljós hjá okkur.

Þetta einkenni er þemað í nefndaráliti mínu, það er eitt sagt en raunin er allt önnur. Það er sagt að fjárlagafrumvarpið eigi að vera einhvers konar aðhaldsfjárlagafrumvarp en það er það ekki. Ef það verður lækkun á verðbólgu á næsta ári þá er það ekki vegna fjárlagafrumvarpsins heldur þrátt fyrir fjárlagafrumvarpið. Áttum okkur einmitt á því að ríkisstjórnin er búin að vera með tillögur til að reyna að slá á verðbólguna í eitt og hálft ár og samt er staðan eins og hún er og spáin fyrir næsta ár er eins og hún er. Ef staðan verður sú sama með verðbólguna og á þessu ári, ef meðalverðbólga ársins í ár heldur áfram mánuð eftir mánuð út næsta ár þá endar hún í kringum 7,5%. Það segir okkur hvaða áhrif verðbólguaðgerðir, aðgerðapakkar ríkisstjórnarinnar, hafa haft. Þrátt fyrir að yfirlýsingarnar séu að aðgerðirnar séu verðbólguletjandi þá hafa þær ekki skilað árangri. Stýrivaxtahækkanir Seðlabankans eru meira að segja ekki enn farnar að skila árangri, ekki á stóru tölurnar. Verðbólgan er enn þá 8%. Jú, kannski tekur það tíma, ég skal alveg viðurkenna það, en aðgerðapakkar ríkisstjórnarinnar eru augljóslega ekki að skila árangri. Seðlabankinn kom aðeins seinna inn hvað þetta varðar.

Titillinn á þessu áliti mínu í þetta skipti er Stöðugleiki frasastjórnmálanna. Það er eitt sagt en það sem liggur þar á bak við er síðan allt annað. Í nefndaráliti mínu og Pírata um fjármálaáætlunina, sem er grundvöllurinn að þessu fjárlagafrumvarpi, greindi ég frá því að það hefði komið fram að það vantaði 3 milljarða kr. til að fjármagna geðheilbrigðisstefnu sem fór í gegnum þingið nokkrum dögum áður. Það er annað dæmi um það hvað er sagt að eigi að gera en er síðan ekki fjármagnað. Við fáum rosalega mikið sem er í orði en lítið sem ekkert á borði. Það sjáum við núna endurspeglast í skýrslu Ríkisendurskoðunar um Fangelsismálastofnun. Það er gegnumgangandi að ákveðin verkefni eru einfaldlega ekki fullfjármögnuð samkvæmt lögum um þá þjónustu sem á að sinna, öllum þeim réttindum í rauninni sem fólk á að geta gengið að sem vísum, eða í þessu tilviki sem fólk er læst frá, í rauninni leiðinlegur réttur hvað það varðar, því vegna þessa eru margir að sleppa við afplánun. Ég veit ekki hvort það sé endilega góð niðurstaða. Kannski fyrir viðkomandi en þetta er ekki það sem við ætlumst til að gerist þegar við samþykkjum lög hérna á þingi. Þetta er ekki eitthvað sem við myndum setja í markmið ríkisstjórnar um hegningarlögin, að þau leiði til þess að fólk sleppi við refsingar vegna þess að við höfum ekki pening til þess að fullnusta refsingar. Hitt er síðan algerlega annað mál hvort hegningarlagaramminn eins og hann er í dag skili tilætluðum árangri um betrun. Það er eitthvað sem við mættum pæla rosalega mikið í. Það er meira, það vantaði 200 milljarða kr. til að fjármagna húsnæðisstefnu samkvæmt umsögnum, bæði fjárheimildir og heimildir til lánveitinga samtals. Það vantaði a.m.k. 10 milljarða á ári til að fjármagna málaflokk fatlaðs fólks og það veit enginn hvað það vantar mikinn pening í stefnu um farsæld barna.

Þetta eru atriði sem þingið er að samþykkja en veit oft ekki hver kostnaðurinn er í raun og veru á bak við. Það er mjög slæmt. Þingið segir í rauninni: Hérna eru lög, við vitum ekki alveg hvað þetta kostar en við viljum samt að þetta gerist. Hver er þá skylda framkvæmdarvaldsins sem leggur fram fjárlagafrumvarp til þingsins? Er skylda framkvæmdarvaldsins í rauninni ekki að fjármagna það sem þingið biður um, þau lög sem þingið setur? Lög um réttindi fatlaðs fólks, lög um samþætta þjónustu barna, farsæld barna, velsæld barna og allt þetta. Við viljum að þetta gerist því að ábatinn, ávinningurinn af þessum lögum, af þessari þjónustu og af þessum réttindum margborgar sig. Góð lög um þjónustu við börn myndu, held ég, skila sér í lækkun á framlagi til Fangelsismálastofnunar, bara bókstaflega. Til öryrkja líka, bókstaflega. Það er gríðarlega mikilvægt að fullfjármagna þessi lög til að koma í veg fyrir framtíðarkostnað. En einhverra hluta vegna þá kemur fjárlagafrumvarp til þingsins án þess að við sjáum þetta. Já, hérna er Fangelsismálastofnun, þangað fara 2 milljarðar, eitthvað svoleiðis, en það er ekki sagt í kjölfarið að þetta sé ekki nægilega mikill peningur til að sinna lögbundinni þjónustu samkvæmt vilja Alþingis. Það vantar. Það er gefið í skyn að það sé bara allt í lagi. Það er ekki vakin nein athygli á því að þarna sé um að ræða vanfjármögnun, að réttindi séu í rauninni tekin af fólki.

Og það er meira, sem er enn þá athyglisverðara: Stofnunum er beinlínis bannað að senda umsögn til fjárlaganefndar og Alþingis. Þetta kom fram á fundi efnahags- og viðskiptanefndar í gær. Það hefur komið fram á fundi fjárlaganefndar líka. Það er beinlínis bannað. Nema fjárlaganefnd biðji sérstaklega um umsögn, þá er ekki hægt að hunsa það. En stofnanir eiga að hafa samband við Alþingi um fjárheimildir o.s.frv. í gegnum ráðuneytin. Þær eiga að skila sínum fjárhagsáætlunum þangað og ráðuneytið á að koma til þingsins með alla þessa útúrdúra hingað og þangað. Niðurstaðan er sú að ráðuneytið segir okkur ekki t.d. að Landhelgisgæslan sé vanfjármögnuð, að Fangelsismálastofnun sé vanfjármögnuð, að lög um farsæld barna séu ekki fullfjármögnuð, að réttindi fatlaðs fólks séu ekki fullfjármögnuð, að samgönguáætlun sé ekki verðbætt. Það er önnur ákvörðun sem er tekin. Samt eru í samgönguáætlun sem er samþykkt hérna á þingi upphæðir á verðlagi þess árs sem samgönguáætlun er samþykkt, sem þýðir í raun og veru að það verður að uppfæra upphæðir með tilliti til verðlags eftir því sem árin líða, þetta er áætlun til fimm ára og 15 ára og að sjálfsögðu breytast upphæðirnar. Að sjálfsögðu verður borgarlínan dýrari einfaldlega af því að krónan verður verðminni út af verðbólgu. Það á ekki að koma neinum á óvart. Samt fór fólk á háa c-ið hérna í haust af því að þessi blessaða borgarlína væri orðin svo rosalega dýr. Já, það voru aðföng sem hækkuðu í verði og við erum með verðbólgu og erum með krónu og þess háttar. Þetta á ekki að koma neinum á óvart. En þetta kemur fólki á óvart af því að tölurnar eru ekki verðbættar í samgönguáætlun þegar kemur að fjármálaáætlun og síðan fjárlögum.

Fyrir vikið er það þannig með allar framkvæmdir sem er búið að lofa að þær gerast ekki af því að það er allt í einu ekki til fjármagn fyrir þeim, af því að verðbólga, króna, allt þetta rugl. Þetta er það sem ég er að tala um, stöðugleiki frasastjórnmálanna. Okkur er sagt eitt, en gefið annað og við fáum ekki útskýringarnar á því af hverju það er.

Ég fjalla hér aðeins um stöðugleikann, að íslensk efnahagsstjórn einkennist af orðinu stöðugleiki. Samt hefur hagkerfið, aðallega undir efnahagsstjórn Sjálfstæðisflokksins, á undanförnum þremur áratugum alla vega, hoppað upp og niður og fram og til baka. Vísitala neysluverðs hefur hækkað um nær 300% á meðan evrusvæðið hefur einungis hækkað um 90%. Krónan hefur á sama tíma fallið um næstum 60% gagnvart dollara og 45% gagnvart evru sem þýðir að krónan er ekki bara verðminni á Íslandi heldur er hún einnig verðminni gagnvart evru og dollara. Það endurspeglast vissulega að hluta til í verðbólgunni. Vörur sem við flytjum inn eru einfaldlega dýrari miðað við krónuna. Það er því í rauninni ekki hægt að halda því fram að hagsveiflurnar séu einungis innfluttar af því að munurinn er 300% og 90% á evrusvæðinu. Það er ekki bara innflutt verðbólga, langt í frá. Í dag er 8% verðbólga og 9,25% stýrivextir og samt er hamrað á því að stöðugleikinn sé það mikilvægasta í heimi í efnahagsmálum. Kannski af því að óstöðugleikinn er búinn að vera svo svakalegur. Það er klassísk afvegaleiðing í pólitík að nota öfugmæli. Það er óstöðugleiki. Það er búinn að vera óstöðugleiki. Í stóra samhenginu eru kannski smátímabil hér og þar þar sem hægt er að benda á að hafi verið stöðugleiki. Svo gerist eitthvað og þá er kominn nýr stöðugleiki einhvers staðar annars staðar í línuritinu og svo kemur næsta stöðugleikatímabil í línuritinu. En á milli þessara þriggja stöðugleikatímabila er ekkert nema óstöðugleiki. Það er þegar allt kemur til alls vandamál.

Ég var hérna með tilvitnun í Albert Einstein þar sem hann sagði, þýtt á íslensku, að það sé heimskulegt að endurtaka alltaf sömu efnahagsstjórnina aftur og búast við annarri útkomu. Fyrir fólk sem kannast ekki við þetta þá er þetta mjög algeng tilvitnun á netinu, að vísa í það að það sé brjálæði að gera alltaf sömu hlutina aftur og búast við annarri útkomu. Það var ekki Albert Einstein sem sagði þetta, að sjálfsögðu ekki á íslensku heldur, en þetta er dæmi um það hvernig rök eru notuð á rangan hátt í rauninni til að kynna fyrir okkur eitthvað sem virðist augljóslega vera satt og þegar einhver fræg manneskja, eitthvert frægt nafn, notar það þá hlýtur það að vera satt. Í þessu tilviki þá er þetta satt. En það er ósatt hver sagði þetta. Auðvitað talaði Albert Einstein ekki íslensku, sem dæmi.

Margir hafa sagt að það sé heimskulegt að reyna alltaf að gera það sama aftur og aftur og búast við annarri útkomu. Ef efnahagsstjórn stöðugleikans virkar ekki, þá er kannski ekkert svo gáfulegt að halda áfram að reyna. Það er líklega stærsti pólitíski brandarinn sem hægt er að finna að Sjálfstæðisflokkurinn hefur getað notað þetta orð til þess að selja efnahagsstefnu sína sem frambærilega. Þau hlæja bara alla leið í bankann sem þau eru að selja vinum og vandamönnum, svo ég komi nú einu ódýru pólitísku skoti að í þessari ræðu.

En hvað þá? Hvað á að gera í staðinn? Ég skal vera fyrstur til að viðurkenna að kannski horfa ekki allir í áttina að Pírötum þegar verið er að pæla í efnahagsstefnu. En mig langar til að fjalla aðeins um efnahagsstefnu Pírata. Fyrir síðustu kosningar lögðu Píratar fram aðgerðaáætlun í efnahagsmálum. Aðgerðaáætlunin skiptist í þrennt, þær aðgerðir sem hægt er að framkvæma strax, svokölluð fyrstu skref, þær aðgerðir sem hægt er að framkvæma á kjörtímabilinu og aðgerðir til framtíðar. Fyrstu skrefin voru að byrja á að skilgreina lágmarksframfærslu því þar finnum við grunninn að hagkerfinu. Ef fólk fellur niður fyrir þennan grunn er það fátækt. Það býr til vanda. Fátækt kostar. Hún býr til alls konar önnur vandamál. Ef fólk nær ekki lágmarksframfærslu þá erum við með fátækt sem er krabbamein í kerfinu.

Í öðru lagi viljum við framsækið skattkerfi sem kemur í veg fyrir að auður safnist óhóflega saman á fáum stöðum. Efnahagskerfi sem leyfir slíka söfnun býr sjálfkrafa til efnahagsbólur sem springa með reglulegu millibili. Markmiðið er ekki að auka heildarskattbyrði því hún er nú þegar töluverð hér á landi, heldur miða skattheimtuna að þeim stöðum í hagkerfinu þar sem fjármagn safnast saman og myndar bólur í hagkerfinu. Þetta er í rauninni það sem ríkisstjórnin hefði átt að vera búin að gera til að bregðast við efnahagsástandinu eins og það er og bregðast við verðbólgunni, að finna hvar peningurinn er að bólgna upp og tappa af honum þar til þess að hann lendi ekki í hausnum á öllum heimilum landsins í gegnum hækkanir á öllu, ekki síst lánum og leigu og þess háttar.

Í þriðja lagi þarf einnig að efla gæða- og eftirlitsstofnanir. Samkeppniseftirlit, Fiskistofa, Neytendastofa, umboðsmaður Alþingis, skattrannsóknarstjóri. Þetta eru allt gríðarlega mikilvægar gæða- og eftirlitsstofnanir sem passa upp á að stóru leikendurnir á efnahagssviðinu séu ekki að svindla. Það er grundvallaratriði því að svindlið gerir það að verkum að allir hinir þurfa að borga hærri skatta. Það er ekkert flóknara en það. Á þessu kjörtímabili hefur svo sannarlega sýnt sig hversu nauðsynlegt er að þessar stofnanir séu öflug vörn gegn svindli. Ég nota þetta oft til að skýra grunninn að muninum á Pírötum annars vegar og Sjálfstæðisflokknum hins vegar. Píratar vilja ekki eftirlit með borgurum og einstaklingsfrelsinu og friðhelgi einkalífs o.s.frv. Sjálfstæðisflokkurinn vill hins vegar efla lögreglueftirlitið og passa að það séu allir að sinna sínu og auka eftirlit með borgurum en ekki með valdinu. En við Píratar viljum hins vegar eftirlit með valdinu, með þeim sem geta misnotað vald. Það er grundvallarmunur þarna á.

Að lokum, varðandi fyrstu skrefin, þá í fjórða lagi er það ný atvinnustefna með áherslu á menntun fyrir 21. öldina, grunnrannsóknir sem er einmitt verið að minnka núna og er mjög bagalegt, hagnýtingu rannsókna, nýsköpun og aðgerðir gegn langtímaatvinnuleysi.

Síðan voru það aðgerðir kjörtímabilsins sem snerust um hækkun persónuafsláttar, einfaldara skattkerfi og almannatryggingakerfi, til að auka gagnsæi og útrýma fátæktargildrum í kerfinu. Öll þessi tilfærslukerfi sem við erum með, vaxtabætur, leigubætur, húsnæðisbætur, barnabætur og allar þessar bætur hingað og þangað — það er gott og blessað að vera með slík kerfi til að bregðast við ákveðnu ástandi. Það er viðeigandi núna þegar það kemur verðbólguskot að hjálpa til með t.d. húsnæðiskostnað og þess háttar. En alla jafna eru þessi kerfi byggð upp þannig að þau búa til fátæktargildrur. Það er svona keppni, fólk er með sínar tekjur og húsaleigubætur og barnabætur og eitthvað svoleiðis og ef það hækkar í tekjum vegna kjarasamninga eða einhvers því um líkt þá skerðast bæturnar á móti. Þá endar fólk í engri breytingu nema hvað að væntanlega, það er a.m.k. hluti af því, þegar kjarasamningar eru gerðir, hefur það einhver áhrif út í efnahagskerfið. Hluti af því fer vissulega út í verðlagið, hvort sem það er búið að gera það fyrir kjarasamninga sem gerist stundum eða eftir þá, sem gerir það að verkum — af því að fólk minnkar í bótum en hækkar í launum og endar á núllinu — að allt annað hækkar í verði og verðbólgan verður meiri og ráðstöfunartekjur minnka nema launin hafi verið hækkuð þeim mun meira. Það eru viðkvæmir hópar sem eru á þessu bili sem lenda í ákveðnum vítahring þess að auknar tekjur leiða til skerðinga sem gerir að verkum að þeir hreyfast ekkert í ráðstöfunartekjum.

Þess vegna bendum við á að það ætti í rauninni að vera áhersla á grunnframfærslu. Borgaralaunin eru útfærsla á þessu og eru í rauninni skerðingarlaus grunnframfærsla. Persónuafsláttur sem slíkur er útfærsla á því, er það sem kallað er neikvæður tekjuskattur. Fólk byrjar í ákveðnum neikvæðum tekjuskatti sem telst upp í áður en það fer að að greiða skatt og ef það er undir því marki þá er hann einfaldlega greiddur út. Við erum í rauninni búin að vera með ákveðið form borgaralauna hérna á Íslandi alveg síðan persónuafsláttur var tekinn upp. Þetta er ekkert meira framandi en það, þetta er engin útópísk hugmyndafræði. Hún er alveg gegnumgangandi bæði í hægri og vinstri efnahagshugsun, meira að segja ansi mikið í hægri efnahagshugsun, merkilegt nokk.

Áfram með aðgerðir kjörtímabilsins. Þær snúast líka um að passa upp á öfluga, sjálfbæra og græna innviðauppbyggingu í öllum sveitarfélögum landsins. Það er algjört lykilatriði. Grunnefnahagsstærðin þar er einfaldlega innflutningur á olíu og bensíni, 100 milljarðar sem við myndum spara í innflutningskostnað þar bara með því að reyna að byggja upp og losa okkur út úr jarðefnaeldsneytishagkerfinu.

Við þurfum að tryggja sjálfbærni lífeyriskerfisins. Það eru vísbendingar um að það sé ekki alveg eins sjálfbært og við hefðum kannski vonast til þegar það var búið til enda hefur iðgjaldið verið hækkað í dágóðum skrefum frá byrjun sem segir okkur einmitt að forsendurnar stóðust ekki, þær þurfti að uppfæra o.s.frv. Maður sér fram á ýmislegt áhugavert þar.

Við þurfum að huga að endurhönnun húsnæðiskerfisins, sérstaklega í tengslum við lífeyriskerfið. Húsnæðismál eru í rauninni ákveðin stoð efnahagskerfisins ásamt lágmarksframfærslu. Við þurfum að geta séð fyrir okkur hvernig láglaunamanneskja getur farið í gegnum lífið á sínum lágmarkstaxta, vill kannski ekki gera neitt meira eða bara líður vel í þeim störfum sem þar eru í boði og fólk getur verið mjög hamingjusamt með það, ekkert mál. En hvernig getum við útskýrt að þessi manneskja muni hafa það af, í rauninni, til framtíðar? Getur þessi manneskja eignast húsnæði eða verður hún á leigumarkaði út alla sína starfsævi og þegar hún fer á ellilífeyri? Ellilífeyrir er hugsaðar sem 70% framfærsla og þá er gert ráð fyrir að 25% framfærslunnar hafi í rauninni verið kostnaður við leigu eða afborganir af lánum eða eitthvað því um líkt þannig að þú sért búinn að eignast húsnæði og sért ekki lengur að borga af því. En ef þú ert enn þá að borga af húsnæði, annaðhvort leigu eða borga af lánum þegar þú ert kominn á ellilífeyri, þá dugar ellilífeyririnn alls ekkert fyrir framfærslu. Hvar eru viðmiðunarmörkin? Getum við útskýrt hvernig meðalmanneskjan fer í gegnum lífið og hvar og hvenær hún eignast húsnæði og hvernig efri árin líta út? Það er ekki til neitt svoleiðis, ekki neitt. Það er mjög áhugavert.

Við þurfum að innleiða velsældarhagkerfið. Hæstv. forsætisráðherra hefur aðeins talað fyrir velsældarhagkerfinu og það eru komnir ákveðnir velsældarvísar á Stjórnarráðsvefinn, sem er gott og blessað. Svo ég útskýri aðeins hvað það er, af því að það er mikilvægt, þá erum við núna að miða í rauninni bara við hagvöxt. Ef við erum með hagvöxt og jú, kannski lítið atvinnuleysi, lága verðbólgu og lága stýrivexti, þá líður okkar rosalega vel, þá er það fínt, allt gott, allt frábært. En það er flóknara en það. Það eru atriði innan um sem birtast okkur einmitt t.d. varðandi Fangelsismálastofnun, varðandi málefni fatlaðra og ýmislegt svoleiðis sem eru vanfjármögnuð þrátt fyrir góðar efnahagstölur. Þrátt fyrir góðan hagvöxt þá hafa öryrkjar það ekkert rosalega gott, ná ekki lágmarksframfærslu, bara svo dæmi sé tekið. Hvað þá? Það er það sem velsældarhagkerfið gerir. Það setur upp ákveðna mælikvarða um lífsgæði. Þetta er mjög vel rannsakað. OECD gefur þetta út. Það eru ákveðnir kvarðar um t.d. menntunarstig, hvernig fólki líður varðandi jafnvægi milli atvinnu og tómstundalífs o.s.frv., hversu mikið álag er á fólki, almennt heilsustig í landinu og þess háttar. Vissulega er hagvöxtur og vinnumarkaðurinn og þess háttar hluti af velsældarhagkerfinu. En með því að hafa fleiri atriði til þess að benda á um hvað er vel heppnað og velmegandi samfélag þá hefur það tvímælalaust áhrif á stjórnvöld. Pólitíkusar myndu vilja geta sagt: Heyrðu, hérna gengur okkur illa, okkur gengur illa í PISA-prófunum t.d., okkur gengur illa í menntun. Við erum bara ansi neðarlega á þeim mælikvarða miðað við önnur lönd, það er frekar mikið slæmt. Þá vil ég að stjórnmálamenn komi og segi: Við ætlum að gera betur þarna, setja stefnu um þetta og breyta fyrirkomulagi hér og jafnvel setja pening hér eða gera eitthvað sniðugt sem kannski kostar ekki pening, hver veit. Svo geta þeir bent á, eftir á: Þetta batnaði, við náðum markmiði okkar, við gerðum vel fyrir samfélagið.

Það eru svona atriði sem skipta rosalega miklu máli. Ef það eina sem við höfum eru hagtölurnar, bara hagvöxtur, og segjum: Það er mikill hagvöxtur, þetta sést ekki í neinu öðru Evrópulandi sem við viljum bera okkur saman við — þá segir það okkur ekki neitt um það hvernig í rauninni fólk almennt séð hefur það af því að dreifingin á því er svo mismunandi. Jú, við sjáum kannski að meðalmanneskjan hefur það fínt og ríkt fólk örugglega fínt, en þegar við förum í áttina að lágmarksframfærslu þá hefur fólk það alltaf verr og verr. Þá þurfum við að athuga hvar þau mörk eru þar sem við myndum segja: Þetta er ekki nógu gott, við þurfum að gera betur. Hagvaxtartalan segir okkur ekkert um það hvar þau mörk liggja. Þess vegna þurfum við eitthvað eins og velsældarhagkerfið sem sýnir okkur nákvæmar hvar vandann er að finna í samfélaginu.

Að lokum er það grænvæðing efnahagslífsins og uppbygging hringrásarsamfélags því þegar allt kemur til alls þá eru á jörðinni takmarkaðar auðlindir og þar fram eftir götunum, það liggur í augum uppi, við getum sagt það þannig.

Síðan er það framtíðarsýn Pírata. Þar sjáum við skilyrðislausu grunnframfærsluna. Hún kemur alveg tvímælalaust eftir því sem sjálfvirknivæðingin eykst. Svo ég minnist á þá er þessi fína mynd af Einstein hérna gerð af gervigreind, ekki verri listamanni en það, eftir minni beiðni. Flest þessi tól eru á ensku og skilja íslensku misvel og því bað ég um: „Einstein, definition of insanity“ eða Albert Einstein, skilgreining á brjálæði, og þetta varð niðurstaðan. Ég var mjög sáttur við það, enda er það ástandið sem við erum í. Við erum alltaf að reyna að gera það sama aftur og aftur. Ég veit ekki hvað ég er búinn að fara í gegnum mörg fjárlög núna, þau voru tvenn eitt árið, og maður sér alltaf sömu hlutina aftur og aftur og ekkert breytist.

Við viljum í framtíðinni sjá kvikara skattkerfi þar sem laun og dagleg neysla eru síður skattlögð en fjármagnstilfærslur. Ég hugsa þetta þannig að fólk eyðir tíma sínum, hluta af lífi sínu, í að hafa í sig og á. Af hverju ættum við að skattleggja það? Það er bara grunnhagkerfið þegar allt kemur til alls, bara að fólk hafi í sig og á, það er núllpunkturinn. Allt þar fyrir ofan er vesenið, þar eru alls konar veðmál og þess háttar á verðbréfamörkuðum og spámennska og ég veit ekki hvað og hvað. Það er það sem þarf að hafa stjórn á í efnahagskerfinu. Peningar eru ekkert flóknara en það, eru í rauninni bara miðill til að fólk geti skipst á verðmætum eða það sem það telur að séu eða giskar á að séu verðmæti og ýmislegt svoleiðis. Það getur hlaupið með okkur í allar áttir eins og gerðist t.d. fyrir hrunið. Þar voru alls konar pakkar búnir til og verðmæti búin til sem fólk trúði á eða trúði ekki á. Þetta á ekki að koma grunnhagkerfinu við þar sem fólk er bara að reyna að hafa í sig og á og lifa lífinu sómasamlega og njóta sín. Við þurfum að tryggja það. Hitt þurfum við að passa að fari ekki fram úr sér.

Síðan þarf að innleiða sveigjanlegri atvinnu-, mennta- og heilbrigðisstefnu í takt við tækniþróun og sjálfvirknivæðingu. Sí- og endurmenntun mun verða sífellt mikilvægari eftir því sem líður á. Og þegar allt kemur til alls, til að loka hringnum í þessu, þá er það sjálfbærni sem er lykilatriði. Efnahagsstefna Pírata er mjög viðamikil en samt mjög einföld. Hún snýst um sjálfbærni. Einhver gæti spurt: Er þetta ekki bara enn einn frasinn eins og stöðugleiki? Heiðarlega svarið verður að vera: Auðvitað. Það er ekkert mál að segja bara sjálfbærni og svo gerir fólk ekkert sem er sjálfbært. Sjálfstæðisflokkurinn segir bara stöðugleiki en meinar eitthvað allt annað, útkoman er alltaf einhver allt önnur. Munurinn er að alvörusjálfbært samfélag er sjálfkrafa stöðugt samfélag líka. Það er lykilatriði.

Það sem við meinum með sjálfbærni er að við náum sjálfbærni með því að tryggja lágmarksframfærslu. Það er grunnurinn að fólk sé a.m.k. þar. Það er vissulega pólitísk umræða um það nákvæmlega hvar þau mörk liggja og hvað þau mörk þýða. En við þurfum a.m.k. að ná einhverri niðurstöðu um það, svo má deila um það hvernig það þróast og þess háttar. En ef við erum alla vega með skilgreininguna á því, hvernig sem við rífumst um smáatriðin innan þess, þá höfum við alltaf eitthvað til að horfa til. Við þurfum líka að tryggja húsnæðisöryggi. Þetta er sjálfbærni einstaklingsins, sá hluti sem snýst um sjálfbærni einstaklingsins, bara að fólk geti lifað lífi sínu sómasamlega. Við viljum hafa sanngjarnt skattkerfi sem tryggir í rauninni sjálfbærni hagkerfisins. Eins og ég segi þá er peningahagkerfið í rauninni allt annað en fólk kannski býst við, svona upp á bókhald að gera. Það er búið til fjármagn inn í kerfið með því að búa til lán og með ríkisframlögum o.s.frv. En það þarf líka að taka peninga einhvers staðar úr hagkerfinu á móti til að viðhalda einhverju jafnvægi með tilliti til þeirra verðmæta sem eru til í hagkerfinu. Ef peningamyndun er umfram verðmæti í hagkerfinu er einfaldlega verðbólga. Ef hún er minni þá verður verðhjöðnun sem í stóra samhenginu gerist aldrei af því að stjórnin á því að búa til peninga, ekki verðmæti, er hjá aðilum sem í rauninni hafa ekki hag af því að það sé verðhjöðnun, við getum orðað það þannig.

Síðan er það grænni atvinnustefna, sem er þá sjálfbærni samfélags í heild, sjálfbærni jarðarinnar sem við tryggjum með því. Þannig tryggjum við öryggi þar sem grunnframfærsla er tryggð.

Að lokum er það svona slaufan á þetta allt saman sem er gagnsæið. Við erum með sjálfbærni, öryggi og svo gagnsæi. Það skiptir öllu máli til þess að við getum haldið pólitíkusunum við efnið, að þeir séu í raun og veru að gera það sem þeir segjast ætla að gera. Aftur tek ég dæmið um Fangelsismálastofnun. Ráðuneytið kemur og segir: Fangelsismálastofnun þarf þetta mikinn pening, þegar hún þarf í raun og veru meiri pening en fær ekki að láta Alþingi vita að hún þurfi meiri pening nema þær upplýsingar detti ofan af himnum í fréttum eða frá Ríkisendurskoðun eða eitthvað því um líkt. Af hverju þurfum við skýrslu Ríkisendurskoðunar til að segja okkur að Fangelsismálastofnun hafi verið vanfjármögnuð í hvað mörg ár? Í alvörunni? Áttum við ekki að vita þetta í öllum fjárlögum sem við höfum samþykkt hérna undanfarin ár? Við vissum þetta þegar við samþykktum fjárlög 2023. Samt var ekkert gert. Við vissum það ekki þegar fjárlög voru samþykkt 2022 af því að við vorum ekki látin vita af því. Það var einfaldlega þannig. Við samþykktum það í góðri trú af því að rekstri fangelsanna hafði einfaldlega verið skilað árið 2021, það var í einhverjum plús eða mínus eða hvernig sem það var en sagði okkur ekkert í rauninni um veitta þjónustu, ekki neitt. Þegar maður fer í heimsókn á Litla-Hraun og sér mygluna úti um allt og húsin sem eru að hruni komin þá slær það mann aðeins öðruvísi heldur en tilfinningin sem maður fær þegar maður fær fjárlagafrumvarp í hendurnar og fjármálaráðherra kemur og mælir fyrir frumvarpinu og segir að allt sé æðislegt.

Getum við hætt þessum leik, í alvörunni? Getum við farið að tala um þetta eins og þetta er í raun og veru, hætt með þessar blekkingar um að ríkisstjórnin sé að gera svo æðislega hluti þegar við löbbum inn í húsin og sjáum mygluna? Verum heiðarleg. Einungis með því getum við gert betur. Annars erum við að blekkja sjálf okkur og þá reynum við að halda því sama áfram og við höfum gert alltaf og það verður bara meira en mygla og verri þjónusta o.s.frv. Við spyrjum okkur ekki nægilega vel út í afleiðingarnar af því sem við samþykkjum sem við fáum hérna frá ráðuneytunum, merkilegt nokk. Og þegar ég er að reyna að spyrja í fjárlaganefnd hver í alvörunni ræður hversu mikið af fjárheimildum fer í ríkisskattstjóra, Samkeppniseftirlitið eða Fjármálaeftirlitið þá er það alltaf ríkisstjórnin sem kemur og segir: Alþingi ákvað þetta. Tæknilega séð er það alveg rétt. En við fengum ekkert að vita hvað við vorum að samþykkja. Það bara virkar ekki þannig. Við reynum að spyrja og spyrja en svörin eru mjög oft mjög þunn. Þau eru alls ekki það sem ég myndi kalla upplýsandi, langt í frá. Ég hef stundum þurft að spyrja í heilt ár til þess að fá einfalt svar sem hefði verið hægt að svara strax af því að það var sífellt verið að reyna að víkja sér undan því að svara spurningunni og þá þurfti ég að spyrja aftur og aftur. Þessi tímaeyðsla, bæði tímaeyðsla í mínu lífi að þurfa að elta þetta og tímaeyðsla þeirra sem voru að reyna að komast hjá því að svara, kostar líka pening. Það er gjörsamlega óþolandi. Það er gjörsamlega óþolandi að framkvæmdarvaldið geti ekki verið heiðarlegt við Alþingi og ráðherrar heiðarlegir við Alþingi líka um það hvað þessar fjárheimildir sem þeir fá þýða í raun og veru. þýða.

Okkur var sagt t.d. að Landhelgisgæslan, fyrir síðustu fjárlög sem voru samþykkt fyrir þetta ár, væri alveg á hvínandi kúpunni og það þyrfti að selja flugvél o.s.frv. Þá hlaupa allir upp til handa og fóta og bæta við pening til þess að Landhelgisgæslan þurfi ekki að selja flugvél, hún er svo mikilvæg. Æðislegt. En það var bara algeru lágmarki mætt, að sögn, svo hún gæti skrimt á meðan væri verið að skoða eitthvað og finna einhverjar úrlausnir. Um mitt árið kemur síðan fréttatilkynning frá Landhelgisgæslunni þar sem hún fór í tilraunaverkefni norður í landi fyrir rúmar 100 milljónir. Hvar fékk hún þann pening? Átti hún ekki að vera á hvínandi kúpunni? Allt í einu hafði hún efni á 100 milljóna tilraunaverkefni. Fínt verkefni, ég skal ekki setja neitt út á það, ekki orð, verkefnið er frábært. En það kom hvergi fram í neinni áætlun, ekki fjármálaáætlun stjórnarinnar sem á að tilgreina svona verkefni og kostnaðinn við þau. Það á ekki að vera hægt að fara og segja: Heyrðu, prófum þetta, við erum hérna með 100 milljónir aukalega sem við getum nýtt í þetta núna, æðislegt. Hvar fékkstu þessar 100 milljónir? Hvar er fjárheimildin fyrir þessum 100 milljónum? Í hvað annað áttu þessar milljónir að fara? Aldrei svar.

Þetta er rosalega alvarlegt. Þess vegna er gagnsæi mikilvægt, af því að við eigum ekki að láta framkvæmdarvaldið komast upp með að leyna upplýsingum fyrir Alþingi og þjóðinni. Fólk á ekki að þurfa að treysta pólitíkinni. Það á að vera hægt að sjá þetta með eigin augum. Fólk á að geta gengið að fjárlagafrumvarpinu og séð hvað er að gerast eða ítarefni, það þarf ekki alltaf að vera í þessari blessuðu bók, kannski ítarefni á einhverjum vefsíðum o.s.frv. Það væri frábært, það þarf ekki að vera prenta allar ábata- og kostnaðargreiningarnar með hverju einasta markmiði því við viljum líka spara pappír, það væri dálítið brjálæði að birta það þannig, en þetta þarf að vera aðgengilegt og það vantar. Lög um opinber fjármál eru skýr með það. Það á að kostnaðarmeta og ábatagreina stefnu stjórnvalda.

Áttum okkur aðeins á því að þarna er smávegis munur. Stefna stjórnvalda er eitt en síðan er þessi fjárhagsrammi sem oft er talað um. Ég fer í nefndarálitinu yfir þennan ramma. Fjárhagsrammi fjárlaga er í rauninni það sem það kostaði að reka ríkið á síðasta ári. Það er ramminn fyrir fjárlagagerðina núna sem er síðan bætt smá við eða tekið smá út o.s.frv. Hann er 90 og eitthvað prósent af öllu heila apparatinu. Spyrjum við hvað er gert við þann pening? Neibb. Þetta kallast eftirlit með framkvæmd fjárlaga sem við höfum einfaldlega ekki tíma til af því að hérna koma mál eins og fjárlagafrumvarpið og fjármálaáætlun á borð fjárlaganefndar sem eyðir tíma sínum einfaldlega í heimsóknir allra umsagnaraðila sem skrifuðu samt umsögn. Það stendur á blaði hver umsögnin er. Samt fer allur tími nefndarinnar í að fá gesti sem segja nákvæmlega það sama og stendur í umsögninni. Jú, við getum spurt spurninga en það er ekkert rosalega gagnlegt því að við höfum þá í rauninni bara munnlegar heimildir fyrir því sem kemur fram í svörunum, heimildir sem ættu að vera aðgengilegar fyrir þjóðina líka. Þetta er ástæðan fyrir því að hv. fyrrverandi þingmaður, Helgi Hrafn Gunnarsson, lagði til að nefndarfundir yrðu frá og með deginum í dag almennt séð opnir. Það er til þess að fólk sjái og heyri hvað gestir eru að segja, og þó það væri bara fyrir aðra þingmenn sem vilja fylgjast með hvað er að gerast í öðrum nefndum án þess að þurfa að treysta á frásagnir sem koma fram í nefndarálitum eða frá öðrum þingmönnum því við erum líka með þá stöðu að ekki geta allir flokkar mannað allar nefndir en þurfa kannski að sinna ýmsum málum sem fara í gegnum allar nefndir þingsins.

Þegar Píratar horfa á hagkerfið sjáum við nefnilega ekki peninga, við sjáum fólk. Í einfaldri mynd er hagkerfið bara fólk og hugmyndirnar sem það fólk fær. Hagkerfi er afrakstur hugsana og hugmynda sem hafa þróast í gegnum tímann. Hugmyndir okkar um afkomu hafa breyst mikið, þær voru einu sinni byggðar á því að veiða og safna og svo kemur landbúnaður, iðnaður og loksins nútímakapítalismi. Þetta eru allt mismunandi aðferðir til að skipuleggja samfélagsstofnanir og menningu sem eru byggðar á þekkingu og skilningi á hverjum tíma, sérstaklega þekkingu okkar og skilningi á t.d. mannlegri hegðun.

Til þess að skilja hagkerfið þá þurfum við að skilja mannlega hegðun og hún er merkilega oft öðruvísi en við búumst við. Hópar haga sér öðruvísi heldur en einstaklingar og einstaklingar hagar sér öðruvísi en hópar og við þurfum að taka tillit til ýmissa mismunandi skoðana og viðbragða við hinum ýmsu lögum sem eru sett hérna og kostnaði þess vegna.

Þess vegna er svo augljóst að velsældarhagkerfið og grunnframfærsla, þ.e. borgaralaun, eru hagfræðilegu lausnirnar sem við þurfum á að halda. Borgaralaun af því að þau koma í veg fyrir fátæktargildrur hinna klassísku jöfnunartækja. Vaxtabætur, barnabætur, húsnæðisbætur, alls konar bætur. Þetta eru ákveðin hagstjórnartæki sem virka á ákveðinn hátt, stundum vel og stundum illa, eins og ég fór yfir áðan hvernig fátæktargildrurnar virka þegar fólk fær meiri tekjur og lendir þá í skerðingum o.s.frv., mismikið eftir því hvar fólk er í tekjustiganum.

Við leggjum til varanlegri lausn. Það eru borgaralaunin og þá þarf auðvitað að viðhalda þeim með grunnframfærsluviðmiðum eins og þarf að viðhalda t.d. viðmiðum barnabóta. En þetta er þá allt á einum stað og ekki gert ráð fyrir skerðingum þannig að fólk getur alltaf hreyft sig og gert meira án þess að vera í rauninni lamið niður fyrir að reyna að gera meira, gera betur. Það er engin innbyggð fátæktargildra í þessu. Við erum, eins og ég sagði áðan, með ákveðna útfærslu borgaralauna í dag sem er persónuafsláttur þannig að þetta er ekkert flókið. Velsældarhagkerfið fór ég yfir áðan.

Ég hef verið að biðja um meira og dýpra samtal um efnahagsmál en núverandi stjórnvöld hafa boðið upp á. Mér finnst efnahagsumræðan því miður of yfirborðskennd. Hún einfaldlega miðast alltaf við hagvöxt og verðbólgu og stýrivexti, eitthvað svoleiðis, þessar klassísku hagfræðilegu stærðir og það er ekki nóg. Það er alveg óboðlegt hvernig núverandi staða er og hvernig ríkisstjórnin og Seðlabankinn hunsa algerlega að útskýra það á mannamáli fyrir fólki af hverju stýrivextir eru 9,25%. Af hverju er verðbólgan 8% eftir tvö ár af verðbólguþróun? Útskýringarnar skipta máli. Aðeins með útskýringunum getum við lagt til tillögur um það hvernig á að bregðast við.

Sem dæmi, þá er ekki líklegt að verðbólgan verði búin að ná einhverju jafnvægi fyrr en í apríl, maí á næsta ári. Ef allt gengur vel þá gæti verðbólgan endað einhvers staðar í kringum 5%. Ekki vegna neinna aðgerða ríkisstjórnarinnar heldur eingöngu vegna stýrivaxtahækkana Seðlabanka sem notaðar eru til þess að berja niður hagkerfið. Þetta er útreikningur sem einfaldlega gerir ráð fyrir meðalverðbólgu á þessari öld, meðalmánaðarverðbólgu. Ef við gerum ráð fyrir því að næstu mánuðir gangi bara fyrir sig eins og meðaltalið hefur verið á þessari öld, sem er um 0,3–0,4% hækkun á mánuði, eitthvað svoleiðis, þá smám saman trappast verðbólgan niður í 5% í apríl, maí eða svo. En, eins og ég sagði áðan, ef hún heldur áfram að vera eins og meðaltalið var á þessu ári þá endar hún í tæplega 7,5% í lok næsta árs. Þetta er munurinn sem við erum að berjast við í rauninni.

Það kom fram á opnum fundi efnahags- og viðskiptanefndar 26. október síðastliðinn að Seðlabankann skortir og í rauninni ríkisstjórnina líka upplýsingar um það hvar bólan er, hvar vandinn er. Þegar við í fjárlaganefnd spyrjum hvar álagið mun lenda þá er ekki hægt að segja okkur það. Á hvaða tekjuhópum lendir álagið og stýrivaxtahækkanirnar? Svarið er einfaldlega: Við vitum það ekki. Það var mjög skýrt á þessum opna fundi. Ég mæli með því að horfa á hann, hann var mjög áhugaverður.

Eftir síðasta hrun er fjármálakerfið mjög vel varið. Það mun líklega ekki verða fyrst til að gefa sig. Hvort það verða heimilin sem sligast fyrst undan vaxtabyrðinni með tilheyrandi húsnæðismissi og þess háttar eða hvort fyrirtækin sligast fyrst vegna skulda, sem mun leiða til meira atvinnuleysis sem hefur síðan áhrif á heimilin, vitum við ekki. Við vitum ekki hvort gerist í rauninni fyrst og hvort bregst fyrst ef áfram heldur eins og hefur verið þetta ár. Fræðilega og mögulega náum við einhverri mjúkri lendingu.

Til lengri tíma litið er Ísland ríkt samfélag og við munum tvímælalaust ná að komast út úr þessu. Engar áhyggjur af því. Það er vonandi hægt að gera hlutina þannig að það gerist aðeins fyrr og kannski betur. Þetta er allt óljóst og stjórnvöld svara ekki spurningum um hvar helst reynir á. En samt segjast stjórnvöld vera að fylgjast með. Ég held að það sé réttara að segja að stjórnvöld séu einfaldlega að bíða og sjá hvað gerist af því að um leið og það gerist þá vitum við hvað hefur brugðist fyrst, hvort það þurfi að bregðast við með aðstoð við heimilin eða við fyrirtæki eða koma í veg fyrir atvinnuleysi eða bregðast vegna atvinnuleysis eða hvað það er. Það er ekki reynt að koma í veg fyrir það fyrir fram. Og þegar það svo gerist þá fáum við væntanlega einhvern fjölmiðlafund með glærum og aðgerðapakka eins og hefur gerst allt síðasta kjörtímabil.

Á þessum stað erum við komin eiginlega í heilan hring. Það er aftur frasinn um stöðugleikann sem ræður ríkjum. Annað og betra orð er hins vegar stöðnun. Á meðan ekkert breytist er vissulega ákveðinn stöðugleiki. Það eru fyrirsjáanleg verðbólguskot með nokkurra ára millibili, það er áframhaldandi verðrýrnun krónunnar og það er verðtrygging sem skellir allri skuldinni á heimili landsins og það er áframhaldandi húsnæðisskortur. Þetta er efnahagsstjórnin í hnotskurn. Hversu mikið sem stjórnvöld vilja veifa einhverjum glærum og segja annað er þetta samt reyndin. Ef við drögum einfaldlega tjöldin frá og horfum á það sem í raun og veru er að gerast þá er ekki hægt að fela það með orðum eða fínum umbúðum eða því um líku. Þetta er vandinn og hann er alltaf falinn í þessum meðaltölum. Það er svolítið vandinn sem við erum að glíma við. Það er talað um meðaltal í hinu og þessu en við vitum alveg að fyrir fólk sem er í og við meðaltalið og yfir það er lífið ekkert sérstaklega erfitt á Íslandi. Meðaltal eða miðgildi tekna er ekkert rosalega skemmtilegt, vissulega, hvað þá fyrir hinn helminginn sem er undir meðaltalinu. Þar verður lífið sífellt erfiðara. Eins og ég talaði um áðan þá þurfum við að fylgjast með því hvernig þau mörk, erfiðleikamörkin, eru að þróast. Eru þau að þróast í áttina að meðaltalinu, er stærri og stærri hópur að lenda í vandræðum eða erum við að halda sjó eða jafnvel gera betur? Þetta vantar algerlega. Það hefur verið passað upp á fjármagnið og við öll hin sem erum ekki með slíka tryggingu eins og verðtryggingin er í rauninni eigum bara að redda okkur. Við erum ekki með verðtryggð laun, við erum ekki með belti og axlabönd eins og fjármagnið og við verðum bara að redda okkur. Með öðrum orðum, það er efnahagsstjórn „stöðugleika“.

Þess vegna er góðra gjalda vert að skoða efnahagsstefnu Pírata. Við seljum ekki töfralausnir. Þetta leysir ekki vandann eins og dögg fyrir sólu og allur vandinn hverfur. Heimurinn er flóknari en svo að slíkar lausnir virki. Við bjóðum hins vegar upp á ákveðna heildarsýn þar sem gagnsæi og sjálfbærni er grunnstefið sem býr til það efnahagslegu öryggi sem fólk þarf á að halda til þess að það sé alvörustöðugleiki, að það sé sjálfbærni.

Ég fer í næstu ræðu aðeins yfir fjárlagafrumvarpið sjálft og mig langaði að fara yfir Byggðastofnun o.s.frv., það eru mjög áhugaverð atriði þarna sem eru góð dæmi um það hvernig ríkisstjórnin og allt þetta apparat virkar í raun og veru ekki. Það eru sett ákveðin markmið. Lög um opinber fjármál virka þannig að ríkisstjórnin setur sér markmið. Við ætlum að gera betur í hinu og þessu. Væntanlega hafa þau engan áhuga á markmiðum þar sem þau ætla að gera verr í einhverju, það væri mjög skrýtið. Ríkisstjórnin setur sér hin og þessi markmið, t.d. um Landhelgisgæsluna. Þar var sett markmið um ákveðinn viðbragðstíma og hlutfall þess að geta brugðist við á einhverjum sex eða 12 tímum eða hvernig sem það var. Þetta var sett í fjármálaáætlun sem viðmið. Staðan 2022 var svona, árið 2024 ætlum við að vera komin upp í hærra viðbragðshlutfall, geta komið oftar og hraðar o.s.frv. Árið 2028 verðum við orðin æðislega góð, þá erum við bara alltaf til staðar. En gegnumgangandi frá fjármálaáætlun 2018, 2019, 2020 o.s.frv. þá hefur alltaf verið þetta markmið, að gera betur. En niðurstaðan hefur verið sú að við höfum gert verr og einmitt í þessum viðbragðstíma. Til dæmis var flugvélin sem átti að selja aldrei til staðar. Hún gat í rauninni ekki náð þeim markmiðum sem ríkisstjórnin sjálf setti sér. Þetta voru markmið sem ríkisstjórnin sjálf gerði fyrir sig, hún sagði: Við ætlum að gera þetta. Þegar ríkisstjórnin kemur síðan með fjárlög, bæði fjármálaáætlun og fjárlög, og leggur á borðið hjá Alþingi með þessum markmiðum á bak við, að við ætlum að gera betur, flugvél Landhelgisgæslunnar ætlar að vera til taks allt árið, þá greiðir fólk hérna í meiri hlutanum væntanlega atkvæði með því í þeirri trú að það fjármagn sem er verið að leggja til Landhelgisgæslunnar í þessu tilviki muni skila þessum árangri. En þegar það gerist ekki, hvern er verið að svíkja? Af hverju ættu þingmenn meiri hlutans að sætta sig í rauninni við það að samþykkja þessi markmið? Við viljum gera vel í málefnum Landhelgisgæslunnar. Við viljum að landsmenn geti hrósað sér af öflugri Landhelgisgæslu sem er með góðan viðbragðstíma. En þegar þeir greiða atkvæði um fjárheimildirnar og halda að þeir séu að greiða atkvæði um fjárheimildir sem muni skila þessum árangri og það reynist síðan ekki vera satt, hvað þá? Hver ber ábyrgð á því? Hver fer brjálaður til ráðherra og segir: Heyrðu, er verið að rugla í mér? Ég hélt að við ættum að skila þessum árangri en við erum ekki að ná honum. Af hverju erum við ekki að ná þessum árangri? Hvað er að gerast?

Þetta er stóri gallinn í fjárlagagerð Alþingis þegar allt kemur til alls. Við höfum í alvörunni ekki hugmynd um það hvaða fjárheimildir við erum að samþykkja og hvaða árangur á að nást með þeim fjárheimildum. Stjórnvöld segja okkur ekki upphátt hvaða árangri fjárheimildir munu skila. Þrátt fyrir endurtekna samþykkt þingsins á t.d. fjármálaáætlun og hvaða markmiðum eigi að ná, hvaða þjónustu borgararnir eiga að fá, um réttindi fatlaðs fólks þá er það samt ekki niðurstaðan. Þá hljótum við að þurfa að spyrja: Ef við viljum í alvörunni að þetta gerist, af hverju kemur ekki fjárheimild fyrir því? Ef við sættum okkur við það að við höfum einfaldlega ekki efni á því, af hverju samþykkjum við þá þessi markmið til að byrja með? Það hlýtur að vera spurning líka sem stjórnarþingmenn hljóta að spyrja sig. Af hverju er ég að ljúga að landsmönnum um að þetta verði staðan eftir fjögur ár, að Landhelgisgæsluþyrlan eða -flugvélin verði til taks allan ársins hring? En svo gerist það ekki. Hvort eru það þingmenn sem greiða atkvæði um hvað þeir vilja að gerist en fjármagn fæst ekki fyrir því sem eru að ljúga að þjóðinni eða ráðherrann sem kom með tillögurnar um það hvernig ætti að uppfylla þessi markmið? Ég satt að segja vita það ekki en ég veit að þau bera öll ábyrgð á því.