154. löggjafarþing — 43. fundur,  5. des. 2023.

fjárlög 2024.

1. mál
[18:44]
Horfa

Frsm. 3. minni hluta fjárln. (Eyjólfur Ármannsson) (Flf) (andsvar):

Virðulegi forseti. Þetta eru góðar spurningar, takk fyrir þær. Flokkur fólksins er á móti bankasölunni vegna þess að það er engin samkeppni í bankastarfsemi á Íslandi, það er sjálftaka á hagnaði. Bankarnir fara upp í hagnað sem er 80 milljarðar á ári líklega og það eru engar forsendur fyrir því að vera að selja banka í svona umhverfi. Ríkissjóður og ríkisstjórnin hefur ekki beitt eigendastefnu sinni til að skapa samkeppni. Það er grundvallaratriði. Við eigum ekki að vera að selja bestu kýrnar eða gullgæsirnar. Við eigum að sjá til þess að við rekum bankana og ríkissjóður fái hagnaðinn. Vissulega koma tekjur af sölunni og ég hefði haldið að þær færu í að lækka skuldir. Ef það á að nota þær í rekstur þá er það eitthvað sem ég skil ekki. En til að mæta þessu myndi það þýða væntanlega að skuldir ríkisins lækki ekki eins mikið en við erum með tillögur til tekjuöflunar, góðar tillögur tel ég, t.d. varðandi bankaskattinn. Af hverju í ósköpunum eiga bankarnir að geta tekið svona mikinn hagnað þegar heimilin í landinu eru að fara á hausinn? (Forseti hringir.) Það skil ég ekki. Það á ekki að selja bankana í þessu umhverfi sem er í dag, með því samkeppnisleysi sem er í dag.