fjárlög 2024.
Frú forseti. Ég þakka hv. þm. Eyjólfi Ármannssyni fyrir ræðuna. Vissulega eru brot og brot sem ég get tekið undir og annað finnst mér vera út og suður en ég læt það liggja á milli hluta. Mig langar sérstaklega að spyrja út í það sem þingmaðurinn nefndi um fólksfjölgun hér á landi. Ég held að við séum flest sammála um að það væri undarlegt ástand á Íslandi ef ekki hefði bæst við töluvert af fólki erlendis frá, ekki bara til þess að vinna í ferðaþjónustu heldur bara almennt í samfélaginu. En ég sakna þess að sjá ekki einhverjar tillögur 3. minni hluta um hvernig eigi að bregðast við, hvernig við ættum að haga hlutunum öðruvísi. Vissulega eru áskoranir sem fylgja fólksfjölgun en það eru líka margir kostir. Því velti ég fyrir mér og er bara með einfalda spurningu til þingmannsins: Hvernig myndum við haga þessu öðruvísi? Er þingmaðurinn að leggja það til að við til að mynda yfirgefum EES-samstarfið?