fjárlög 2024.
Herra forseti. Ég vil byrja á að þakka hv. þingmanni fyrir ræðuna. Við hv. þingmaður höfum rætt þetta mikið í fjárlaganefnd, um framleiðni, og nú kemur það fram í þeim hagspám sem hafa verið að birtast, hvort það var hjá Seðlabankanum frekar en Hagstofunni, að reiknað er með að framleiðni á næsta ári á Íslandi verði 2%, sem sagt landsframleiðsla á vinnustund vex um 2%, árið 2025 1,2% og 2026 0,6%. 0,6% er svipað eins og hefur verið á Norðurlöndunum á síðustu árum. Maður hefur oft rætt það hér í ræðum að framleiðni hafi verið 1,3% að meðaltali síðustu sjö, átta árin, svona kannski fram að Covid. Það er rétt að hafa það í huga. Þessar tölur um framleiðni líta því ágætlega út. Síðan er það kaupmáttur ráðstöfunartekna en Seðlabankinn í sinni spá gerir ráð fyrir að hann vaxi um 1,4% á þessu ári og 1,7 á næsta ári. Það þarf líka að hafa í huga að fara rétt með það í umræðunni.