fjárlög 2024.
Virðulegi forseti. Ég þakka hv. þingmanni kærlega fyrir spurninguna. Hún kom mér mjög lítið á óvart því að við höfum svo mikið rætt framleiðni og hagvöxt saman á fundum og mér hefur sýnst við vera skoðanasystkini þar frekar en hitt. Ég nefndi framleiðnina í samhengi við hvaða framtíðarmúsík er þar verið að teikna upp af því að það er, eins og hv. þingmaður veit, áhyggjuefni sem við höfum heyrt frá töluvert mörgum umsagnaraðilum sem hafa komið fyrir nefndina hver þróunin er að verða í þessa átt. Það er þá gjarnan undir þeim formerkjum að það þurfi að horfa til þess að við séum, eins og við höfum raunar talað um t.d. í samhengi við heimsfaraldur, að fjölga eggjum í körfunni og horfa á atvinnugreinar þar sem framleiðni er mikil. Með kaupmáttinn var ég að vísa til þess hver þróunin hefur verið síðastliðið ár í gögnum, m.a. frá BHM þar sem það sést alveg skýrt í hvaða átt hann hefur þróast.