fjárlög 2024.
Virðulegi forseti. Ja, með kaupmáttinn, það er hægt að nefna alls konar punkta og taka punktstöðu hér og þar og horfa út frá því. Staðreyndin er samt þessi sem ég nefndi hér í ræðu minni, hvernig sveiflan er á Íslandi og hefur verið síðastliðin 20 ár í samanburði við OECD-löndin. Punkturinn minn er þetta sérkenni og þessi meinsemd í íslenska hagkerfinu sem er þessar miklu og kostnaðarsömu sveiflur sem gera t.d. kjarasamninga erfiðari af því að fólk er eilíflega að búast við höggi, búast við sveiflu, búast við því að húsnæðislánin rjúki upp. Þessir sprettir og þessar sveiflur kosta heimilin, þær kosta atvinnurekendur, þær kosta ríkið og við verðum að geta rætt um þetta fyrir það sem það er. Það er sveiflukenndara umhverfi hér. Síðan varðandi framsetningu á vaxtakostnaði þá er þetta auðvitað bara sá vaxtakostnaður sem við okkur blasir og er rakinn (Forseti hringir.) í því meirihlutaáliti sem hv. þingmaður skrifar sjálfur undir, hækkar um 7 milljarða frá 1. til 2. umræðu.