154. löggjafarþing — 43. fundur,  5. des. 2023.

fjárlög 2024.

1. mál
[22:50]
Horfa

Frsm. 1. minni hluta fjárln. (Björn Leví Gunnarsson) (P) (andsvar):

Forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir ræðuna og samstarfið í nefndinni. Það er þessi tugga um aðhaldssömu fjárlögin sem enginn tekur undir nema stjórnarþingmennirnir og hér er sagt að hv. þingmaður hafi verið stoltur af því að leggja fram breytingartillögur sem auka aðhaldið en breytingin við 2. umræðu hérna í nefndaráliti meiri hlutans, í dálknum á bls. 4, segir plús 1.949 milljónir. Viðbótarútgjöld þegar allt kemur til alls. Ég átta mig ekki alveg á því af hverju er alltaf verið að tala um aðhaldssöm fjárlög í fyrsta lagi, sem Seðlabankinn segir að séu í mesta lagi hlutlaus, og í öðru lagi: Hvernig eru þetta aðhaldssamar tillögur? Tillögurnar sem eru í þessu eru tvenns konar. Annars vegar lagfæring á ofreikningi, t.d. í málefnum aldraðra, eða ofáætlun á framkvæmdum við Landspítalann og ofáætlun líka í málefnum öryrkja, ofreikningur, og síðar eru viðbótarútgjöld, fullt af viðbótarútgjöldum. Það eru þessi klassísku kjördæmadreifipeningaútgjöld, 10 milljónir þarna, 20 milljónir hérna og ég veit ekki hvað og hvað. Ágætisverkefni en fjárlaganefnd er búin að segja í fjölda ára við ráðuneytin: Þetta eru áhugaverð verkefni, vinsamlegast takið þau inn í samninga og þess háttar. En ekkert gerist. Hvernig geta þetta verið aðhaldssöm fjárlög í fyrsta lagi? Í öðru lagi: Hvernig eru þessar breytingartillögur aðhaldssamar?