Störf þingsins.
Virðulegur forseti. Niðurstöður PISA-könnunarinnar, sem mælir færni 15 ára nemenda í lesskilningi, læsi á náttúruvísindi og læsi á stærðfræði, kom út í gær. Þetta er alþjóðleg könnun þar sem rannsökuð er hæfni 15 ára nemenda á þessum sviðum. Niðurstöðurnar hvað Ísland varðar eru hreint út sagt hrikalegar, svo að ekki sé meira sagt. 40% 15 ára nemenda á Íslandi búa ekki yfir grunnfærni í lesskilningi. Þetta sýna niður niðurstöðu PISA-könnunarinnar. Hlutfall nemenda sem ná þessari grunnhæfni, eða um 60%, hefur lækkað um 14% hér á landi frá síðustu könnun. Þetta eru ótrúlegar tölur, svo að ekki sé meira sagt og það er ekki að ástæðulausu. Þetta er ekki nýtt vandamál.
Í frétt frá árinu 2004 segir, með leyfi forseta:
„Fyrir tveimur árum síðan, eða árið 2002, áttu líklega 15.000 Íslendingar á fullorðinsaldri aldri við umtalsverðra lestrarörðugleika að stríða.“ Einnig segir í fréttinni: „Gera má ráð fyrir að lítil lestrarfærni hái um 20.000 manns til viðbótar þannig að 35.000 manns lesi illa á Íslandi.“
Í þessari frétt frá 2004 segir að við séum á sama stigi og aðrar Norðurlandaþjóðir. Könnunin í gær sýnir hins vegar að við er langt, langt á eftir Norðurlandaþjóðunum. Við erum í algjörum tossabekk og það á ekki bara við um tossabekki þar heldur erum við langlægst hvað varðar afburðanemendur, langt, langt fyrir neðan.
Ég vil líka ræða hérna um gott viðtal við Jón Pétur Zimsen, aðstoðarskólastjóra Réttarholtsskóla, sem segir að þetta hafi verið í farvatninu og verði það áfram. Það er ekkert að fara að breytast, nákvæmlega, ekki neitt. Já, þessu er búið að hraka frá aldamótum, eins og fréttirnar gefa til kynna, mjög hátt hlutfall, og krakkarnir núna eru að tapa meiru en heilu skólaári á milli kannana, heilu ári. Hvað talar hann um? Jú, umbúðanám, að það sé innihaldslaust nám sem sé verið að bjóða nemendum í grunnskóla. Við búum í algjöru umbúðasamfélagi. Við búum í samfélagi sem mætti kenna við Dunning-Kruger áhrifin, þar sem við búum að sjálfstrausti sem byggir ekki á einu einasta af viti. Þetta er algjört umbúðasamfélag og við verðum að breyta lestrarkennsluaðferðum (Forseti hringir.) í landinu hið fyrsta. Það er verkefni í Vestmannaeyjum sem við eigum að taka að okkur og dreifa út um allt land (Forseti hringir.) og kenna börnum að lesa með því að A þýðir A og B þýðir B. (Forseti hringir.) Þetta heitir bókstafahljóðaaðferðin. (Forseti hringir.) Lestrarkennsluaðferðin skiptir máli. (Forseti hringir.) Við eigum að hætta með byrjendalæsi sem er heimatilbúið fúsk.
(Forseti (OH): Forseti vill minna hv. þingmenn á að virða ræðutímann.)