154. löggjafarþing — 44. fundur,  6. des. 2023.

Störf þingsins.

[15:10]
Horfa

Hanna Katrín Friðriksson (V):

Frú forseti. Ísland er í frjálsu falli þegar kemur að hæfni grunnskólanemenda samkvæmt niðurstöðum PISA-könnunarinnar sem voru kynntar í gær. Þetta á við í lesskilningi, stærðfræðilæsi og náttúruvísindum. Einkunn Íslands hefur lækkað hraðast frá mælingunni 2018. Hvað erum við að gera rangt? Nú er það ekki svo að hér á landi fari miklu lægra hlutfall landsframleiðslu til grunn- og framhaldsskóla en í öðrum OECD-ríkjum, því er reyndar öfugt farið og erum við með næsthæstu framlögin hlutfallslega. Þetta er einfaldlega ein birtingarmynd þess að það skiptir ekki öllu máli hversu mikill peningur er settur í málin þegar hitt skortir; skýra framtíðarsýn, markmiðasetta stefnu með mælanlegum mælikvörðum og pólitískan vilja og úthald til að fylgja stefnunni.

Og hver er þá staðan þar? Ég tilheyri ekki stjórnarmeirihlutanum sem ber ábyrgð á menntamálum þjóðarinnar undanfarin ár en mér finnst mikilvægt að hann hlusti og taki mark á þeim sem þekkja best til og hafa skýra sýn á stöðuna. Þessi staða kostar íslensk börn lífsgæði og tækifæri. Jón Pétur Zimsen, aðstoðarskólastjóri Réttarholtsskóla, sagði í tilefni þessara birtingar, með leyfi forseta:

„Skólakerfið kostar næstum 200 milljarða og hvað fáum við út úr því? Við fáum út úr því að rúmlega 50% drengja geti lesið sér til gagns.“

Jón Pétur gagnrýndi það líka að skólarnir fái ekki að eigin niðurstöður þó að þeir séu í einstakri stöðu til að geta nýtt prófin til að rýna í og finna leiðir til úrbóta, vegna þess að ólíkt því sem gerist í stærri samfélögum þá taka allir nemendur hér þessi próf. Þetta eru fullkomlega samanburðarhæf gögn, gríðarlega mikilvæg, en nei. Þá má spyrja: Skipta þægindin sem felast í nafnleysinu meira máli en tækifærin sem felast í því að rýna hvað fór úrskeiðis og finna leiðir til úrbóta? Er það raunverulega þannig sem við ætlum að nálgast þessi mál?

Ég ætla að segja í lokin, frú forseti, að við í Viðreisn tökum þessum niðurstöðum ekki af neinni léttúð. Við munum halda opinn fund (Forseti hringir.) næstkomandi mánudagskvöld á skrifstofu okkar á Suðurlandsbraut undir yfirskriftinni (Forseti hringir.) Hvað er í gangi — varðandi niðurstöður PISA (Forseti hringir.) og hvað er í gangi varðandi menntamál íslenskrar þjóðar?