Störf þingsins.
Virðulegi forseti. Frumvarp til fjárlaga kemur til afgreiðslu þingsins á næstu dögum og eins og kemur fram í nefndaráliti meiri hluta fjárlaganefndar er ljóst að margir aðilar þurfa á nauðsynlegum stuðningi að halda. Meðal þeirra eru íslenskir bændur sem lengi hafa beðið aðgerða af hálfu ríkisins. Staða bænda er alvarleg og hér er um atvinnumál, fæðuöryggismál og ekki síst byggðamál að ræða. Meiri hluti fjárlaganefndar hefur lagt til að 198 millj. kr. verði varið í verkefni í þágu innlendrar matvælaframleiðslu. Það er aukið kynbótastarf, styrking innviðauppbyggingar, stuðningur við kornrækt og vinna við verndandi arfgerðir gegn riðuveiki í íslensku sauðfé. Ásamt þessu lagði Sigurður Ingi Jóhannsson, hæstv. innviðaráðherra, ásamt hæstv. matvælaráðherra og fjármála- og efnahagsráðherra, fram tillögur sem stuðla m.a. að nýliðun í greininni. Um er að ræða 1,6 milljarða kr. stuðning til 982 einstaklinga. Meðal þeirra tillagna eru ungbændastuðningur, viðbótarfjárfestingarstuðningur, viðbótarbýlisstuðningur og viðbótargreiðslur á holdakýr. Þessar aðgerðir eru þýðingarmikið viðbragð við stöðunni í dag en er hægt að gera betur? Svarið við því er einfalt, það er já.
Mörg verkefni bíða enn og þar ætlar Framsókn að standa vaktina eins og alltaf. Við horfum til breytinga á tollvernd og aukinna innflutningskrafna í samræmi við staðla í innlendri matvælaframleiðslu. Einfalda þarf verkið í kringum framleiðsluna. Við ætlum að leita lausna í formi hlutdeildarlána og opinbers stuðnings við langtímafjárfestingar bænda og veita þarf afurðastöðvum heimild til sameiningar. Koma þarf frekari fjármagni til nautgripabænda sem og garðyrkjubænda. En ásamt þessu þurfum við áfram að stuðla að nýliðun og kynslóðaskiptum innan greinarinnar. Allt raunhæfar lausnir sem gætu bætt stöðuna til muna.
Í gegnum söguna hafa bændur tryggt fæðuöryggi þjóðarinnar. Þeir verða ekki síður mikilvægir í framtíðinni. Nú þegar við skrifum handrit framtíðarinnar verðum við að tryggja að þeir séu vel í stakk búnir. Hér hafa margir þingmenn talað fyrir bættum aðstæðum bænda og ég trúi ekki öðru en að nú láti þeir verkin tala.