Störf þingsins.
Forseti. Mannskepnan fæðist óvenjuósjálfbjarga. Í þó nokkuð mörg ár frá fæðingu er barn upp á umsjónaraðila sína komið og þarf að treysta á þá til að tryggja velferð sína þar til það lærir smám saman að bjarga sér sjálft. Stigvaxandi ábyrgð barns á eigin lífi er nauðsynlegur undirbúningur fyrir lífið. Samkvæmt lögum hefst það m.a. á samráðsrétti, svo með sjálfsákvörðunarrétti á tilteknum sviðum uns fullu sjálfræði er náð við 18 ára aldur. Beinn sjálfsákvörðunarréttur barns hefst um 12–16 ára aldurs. 12 ára gamalt barn verður t.d. ekki ættleitt nema með samþykki þess sjálfs. Fram að því er samráðsréttur við börn stigvaxandi allt frá því að þau eru fær um að tjá upplifun sína og afstöðu með orðum. Barnasáttmáli Sameinuðu þjóðanna er mikilvægastur allra alþjóðasamninga um réttindi barna. Var hann settur á þar sem réttindi barna þóttu ekki nægilega tryggð í gildandi mannréttindasamningum. 12. gr. barnasáttmálans er ein af grundvallarreglum hans og forsenda þess að börn geti notið réttinda. Með henni er börnum tryggður sjálfstæður réttur til að láta skoðun sína í ljós og að tekið sé tillit til skoðana þess.
Svo virðist sem sum stjórnvöld líti svo á að réttur barns til að tjá sig í máli er það varðar snúist fyrst og fremst um vitnisburð barnsins um aðstæður sínar. Það er hins vegar ekki það sem barnasáttmálinn og lagaákvæði byggð á honum segja. Í barnasáttmálanum segir að tryggja skuli barni, sem myndað getur eigin skoðanir, rétt til að láta þær frjálslega í ljós í öllum málum sem það varða og skal tekið réttmætt tillit til skoðana þess í samræmi við aldur þess og þroska — ekki vitnisburðar: skoðana. Réttur barns til að tjá sig takmarkast því ekki við rétt til að bera vitni í eigin máli enda byggist sá réttur á rannsóknarreglu og öðrum grundvallarreglum stjórnsýsluréttar og réttarfars sem hafa ekkert sérstakt með sjálfstæðan rétt barns til að tjá sig að gera.
Forseti. Sýnum börnum virðingu til jafns á við verndina sem þeim ber. Hlustum á börnin og tökum mark á þeim.