154. löggjafarþing — 44. fundur,  6. des. 2023.

Störf þingsins.

[15:29]
Horfa

Björn Leví Gunnarsson (P):

Forseti. Með leyfi forseta, það sem kemur fram í nýrri rannsókn Vörðu – rannsóknastofnunar vinnumarkaðarins og ÖBÍ réttindasamtaka:

„Stærsti hluti fatlaðs fólks á erfitt með að ná endum saman eða 75 %. Ríflega þriðjungur býr við fátækt og helmingur metur fjárhagsstöðu sína verr en fyrir ári.“

Mér finnst mjög merkilegt að lesa niðurstöður þessarar skýrslu og ýmissa annarra skýrslna líka varðandi fátækt barna, varðandi skýrslubeiðni um hvað fátækt kostar samfélagið og ýmislegt annað sem við fáum hérna einhvern veginn bara í bunkum í nefndum þingsins og þingmálum. En samt standa stjórnarliðar alltaf hérna í fjárlögum og segja að allt sé svo skínandi fínt og að aldrei hafi ráðstöfunartekjur verið hærri og ég veit ekki hvað. Hvort tveggja getur ekki verið satt og hverjum eigum við þá að trúa þegar allt kemur til alls? Allar bækurnar og skýrslurnar og minnisblöðin sem við fáum benda til þess sem kemur fram í þessari skýrslu; að við höfum ekki tryggt grunninn, að við höfum ekki tryggt lágmarksframfærslu og öryggi fólks. Þar er kannski líka um að kenna ákveðnum vanda varðandi hvernig þeim kerfum er fyrir komið, að þau lenda í þessum vítahring verðbólgu þar sem það þarf að uppfæra þau með tilliti til verðbólgu og launaþróunar. Það er ekki gert þegar fólk á annað borð hreyfir sig eina örðu í áttina að sjálfsbjargarviðleitni. Þá er því einfaldlega skellt niður aftur með skerðingum. Það er skerðingarpólitík sem við verðum að losna út úr. Þar höfum við Píratar lagt til að við horfum betur til borgaralauna eða skilyrðislausrar grunnframfærslu til þess að leysa fólk úr fátæktargildrunni.