Störf þingsins.
Frú forseti. Það er í raun þyngra en tárum taki að fylgjast með þeirri niðurstöðu sem birt var í PISA-könnuninni svokölluðu í gær. Undarlegast af öllu er að menntamálaráðherra og barnamálaráðherra svona að einhverju marki ypptu öxlum og segja að við þessu var að búast, þegar flokkur þeirra hefur haft með þessi mál að gera jafn lengi og raunin er. Og hver eru viðbrögðin? Það á að bregðast við með nýrri stofnun. Eins og margir hér á undan mér í dag þá vakti athygli mína viðtal við Jón Pétur Zimsen, aðstoðarskólastjóra Réttarholtsskóla, og ég bara hvet fólk sem ekki hefur lesið það viðtal að glöggva sig á því. En þar er haft eftir Jóni Pétri Zimsen, með leyfi forseta:
„En þegar við erum að eyða tæplega 200 milljörðum í skólakerfið þá er þessi árangur langt frá því að vera boðlegur. Ég spyr bara: Hver ætlar að taka ábyrgð á þessum árangri? Tækifærin og lífsgæðin sem er verið að hafa af íslenskum börum með þessu. Það er þyngra en tárum taki að sjá þetta, að börn séu að tapa heilu skólaári hérna á milli kannana.“
Virðulegi forseti. Ég held að okkur standi ekki annað til boða en að fara í alvarlega naflaskoðun, við erum einhvern veginn á þeim stað núna. Nýja stofnunin, sem tekur við af sams konar stofnun, hefur nýlega fyrst og fremst orðið fræg fyrir það að vilja kenna sjö ára börnum mjög framsækna kynfræðslu. Ég er ekki viss um að það sé leiðin sem við eigum að fara fram á veginn í þessum efnum. Við erum kannski líka búin að gleyma okkur dálítið í því að okkar elskulegu börn séu meira upplýst um réttindi sín en skyldur og að engan megi skamma og engan megi verðlauna og megi ekki bera saman. Skólar fá ekki einu sinni að bera saman niðurstöður sín á milli úr þessari könnun. Þetta er einhver furðuleg nálgun sem við í þinginu þurfum að rífa úr núverandi farvegi. (Forseti hringir.) Ég held að fremst í þeirri röð væri að gera gögn sem snúa að þessari könnun opinber og samanburðarhæf á milli skóla þannig að auðvelt verði að glöggva sig á hvar skóinn kreppir helst. .