Störf þingsins.
Virðulegi forseti. Nú stendur yfir 28. loftslagsráðstefna Sameinuðu þjóðanna í Dúbaí sem öllu skiptir að skili raunverulegum árangri fyrir loftslagið og umhverfið. Hæstv. forsætisráðherra lýsti þar þeirri afstöðu Íslands að markmið Parísarsáttmálans skuli standa, eða halda öllu heldur, og hlýnun jarðar skuli ekki fara yfir 1,5°C. Að auki lýsti hún yfir eindregnum stuðningi við útfösun jarðefnaeldsneytis og að þjóðir heims hættu niðurgreiðslu á því. Á meðan berast ýmsar fréttir er lúta að umhverfismálum og neyslu þjóða en í ár verða sett ný met í útblæstri vegna brennslu á jarðefnaeldsneyti. Misskipting auðs í heiminum hefur áhrif á neyslu okkar. Í dag berast þær fréttir til að mynda að samkvæmt nýrri skýrslu UNICEF búi fimmtungur barna í ríkustu löndum heims við fátækt. Þar má minna á að óhollt mataræði og endingarverra vöruúrval er líka fylgifiskur fátæktar. Þessu þarf að breyta, virðulegi forseti. Öll ættum við að hafa sömu möguleika á því að borða hollan mat og næringarríkan mat og öll ættum við að geta fjárfest í endingargóðum vörum. Hvort tveggja stuðlar að aukinni velsæld og bættri umgengni við jörðina okkar. Það er með öllu óréttlátt að velta skuldinni yfir á þá einstaklinga sem ekki bera sömu ábyrgð og þau sem nóg hafa.
Mig langar því, virðulegi forseti, nú í aðdraganda jóla að hvetja hv. þingmenn og önnur þau sem eiga nóg að rifja upp nægjusemina sem var einu sinni talin hér til dyggða og er algerlega nauðsynleg ef okkur á að takast að stemma stigu við þeirri óheillaþróun sem við okkur blasir. Við getum ekki gengið gegndarlaust á gæði jarðar, gæðum sem þar að auki er misskipt.