fjárlög 2024.
Virðulegi forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir andsvarið. Það gerist ekki. Já, ég tek heils hugar undir með hv. þingmanni þarna, að manni finnst hlutirnir gerast mjög hægt og við ræðum um marga hluti hér og svo bara koma aftur jól og aftur fjárlagaumræða og ekkert hefur breyst. Auðvitað þarf að laga það. Ég vil þó benda á að oft hefur náðst mjög góður árangur á mörgum sviðum en eins og ég kom inn á í ræðu minni er samt alltaf hægt að gera betur.
Hv. þingmaður kom inn á stöðu fatlaðs fólks. Þar var unnin gríðarleg vinna hér bara strax 2013 þegar ég kom inn á þingið. Þá fylgdist ég náið með því þar sem verið var að reyna að gera kerfisbreytingar á almannatryggingum, annars vegar fyrir fatlað fólk og hins vegar fyrir eldri borgara. Það tókst að gera vissar breytingar fyrir eldri borgara sem bætti hag þeirra töluvert. Ég segi ekki að það hafi náðst að útrýma því að margir eldri borgarar lifðu við skort áfram en það náðist að laga stöðuna töluvert hjá öllum og bæta hana töluvert mikið hjá þeim sem minnst höfðu þó að enn þurfi að vinna í því. Þær kerfisbreytingar höfum við bara einhvern veginn ekki náð að klára í almannatryggingum fyrir fatlað fólk, því miður, en þar hefur verið ráðstafað fjármunum til þess og þar þarf að gera mikið betur. Svo er gott velferðarkerfi þannig að við erum að reyna að byggja upp betra kerfi fyrir alla og ef einhver lifir við skort eða eitthvað annað þá eigum við að hafa kerfi sem grípur það. Við þurfum stanslaust að fylgjast með því og svo breytast aðstæður í þjóðfélaginu hjá hverjum og einum. Ég held að það sé ekki til nein ein lausn við því.