154. löggjafarþing — 44. fundur,  6. des. 2023.

fjárlög 2024.

1. mál
[16:26]
Horfa

Jóhann Friðrik Friðriksson (F) (andsvar):

Frú forseti. Ég vil byrja á því að þakka hv. þingmanni fyrir ræðuna og eins og vera ber þegar við erum hér með fjárlögin þá fór hann inn á marga þætti þeirra og gott að fá tækifæri til að fara í andsvör við þingmanninn. Fyrst langar mig kannski að ræða sameiginlegt áhugamál okkar hv. þingmanns sem er þriðji geirinn. Það eru almannaheillafélögin, íþróttafélögin og björgunarsveitirnar, eins og hann nefndi, en líka félög sem sinna mikilvægri heilbrigðisþjónustu hér á landi. SÁÁ kemur það upp í hugann og fleiri svipuð samtök sem eru grasrótardrifin, koma upphaflega upp úr grasrót og þar er fólk að gefa tíma sinn en á sama tíma að spara ríkinu háar fjárhæðir. Sama má að sjálfsögðu segja með björgunarsveitirnar og svo erum við auðvitað að reyna að vera með fyrsta flokks íþróttastarf á landinu. Ég held að íþróttahreyfingin sé, ef ég fer rétt með, virðulegi forseti, fjölmennasta hreyfing landsins, þ.e. ungmennafélögin og íþróttahreyfingin. Þess vegna langar mig aðeins að eiga orðastað við hv. þingmann, þar sem hann velti því upp hvort hægt væri að fara í virðisaukaskattsniðurfellingu eða breytingar. Ég velti fyrir mér og langar að spyrja hvort hann hafi mótað sér einhverjar svona heildstæðar hugmyndir um hvernig við gætum komið til móts við þennan mikilvæga geira vegna þess að hann er gríðarlega mikilvægur en ekki síst mjög fjölmennur. Þar af leiðandi þyrfti í mínum huga að koma til einhvers konar almenn aðgerð sem hægt væri að halla sér að, eflaust myndi hún hafa einhver áhrif á ríkissjóð en ég held (Forseti hringir.) að það myndi blikna samt í ljósi þess hversu mikið þriðji geirinn gefur af sér.