fjárlög 2024.
Frú forseti. Ég þakka fyrir að eiga hér orðastað við hv. þingmann. Það sem stendur upp úr er að við erum kannski ekki búin að finna hina réttu leið til að það sé hægt að koma heildrænt til móts við þriðja geirann. En ég mun ekki láta mitt eftir liggja í þeirri vegferð og vonast auðvitað til þess að við náum árangri í henni.
Mig langar aðeins að spyrja hv. þingmann út í annað sem hann nefndi í sinni ræðu og það er salan á Isavia. Við hv. þingmaður erum sammála um ýmislegt en ég er ekki viss um að við séum alveg á sömu bylgjulengd þarna. Þessi umræða er svo sem ekkert ný og vissulega höfum við selt ríkisfyrirtæki í gegnum tíðina með misgóðum árangri. Stundum hefur það gengið mjög vel og annað hefur gengið miður eins og gerist og gengur. Staðan er samt sú að nú er Isavia auðvitað gríðarlegt mikilvægt innviðafyrirtæki og er starfrækt um allt land þótt langmest af starfseminni fari fram á Keflavíkurflugvelli. Mig langar að heyra hugrenningar þingmannsins um hvort við værum þá að tala um sölu á hluta Isavia eða telur þingmaðurinn ekki vera ákveðnar skorður á slíkri sölu út frá samkeppnisstöðu Isavia sem gætu verið þar hamlandi? Mér finnst þetta áhugaverð og mikilvæg umræða. Ég held að það sé alveg vert að taka hana, ekki bara varðandi Isavia heldur einnig varðandi orkufyrirtæki og svo má lengi telja, þingmaðurinn nefndi hérna ÁTVR. Við eigum ekki að hræðast þá umræðu, við eigum að taka hana, velta vöngum yfir henni og sjá hvað er skynsamlegt að gera. Þannig að spurning mín til þingmannsins er: Sér hann fyrir sér þá sölu Isavia að öllu leyti eða einhvers konar hluta og hvaða kosti myndi hann sjá í stöðunni?