154. löggjafarþing — 44. fundur,  6. des. 2023.

fjárlög 2024.

1. mál
[16:35]
Horfa

Jóhann Friðrik Friðriksson (F):

Frú forseti. Við ræðum fjárlagafrumvarpið við 2. umræðu og eins og við er að búast eru um það skiptar skoðanir meðal þingmanna enda væri annað fáheyrt. Við höfum setið fjölmarga fundi í aðdraganda og vinnslu fjárlaga og fengið til okkar á fund gesti, bæði umsagnaraðila og frá ráðuneytum. Þá komu einnig til fundar við nefndina allir ráðherrar ríkisstjórnarinnar sem gerðu grein fyrir breytingum á fjárhagsramma þeirra sviða sem undir þá heyra. Margar umsagnir, erindi, minnisblöð og skrifleg svör bárust nefndinni sem allt nýtist vel við vinnuna. Ég vil bara byrja á því að þakka öllu þessu góða fólki sem hefur komið fyrir nefndina og þeim sem við höfum átt samskipti við í nefndinni.

Það er mikilvægt að við skoðum heildarmyndina eins og hún birtist í samhengi hagstjórnar og hvernig árar í hagkerfinu. Það hefur verið nefnt að fjárlagafrumvarpið sé hlutlaust en í mínum huga er það fyrst og fremst ábyrgt og vissulega felst í því ákveðið aðhald. Hagvöxtur hefur verið mikill á undanförnum árum og kaupmáttur hefur einnig vaxið hratt og atvinnuleysi minnkað en þess má geta að atvinnuleysi í heimsfaraldrinum var verulegt og um tíma var fimmti hver íbúi í mínum heimabæ, Reykjanesbæ, atvinnulaus, sem er gott dæmi um hversu gríðarlegur viðsnúningurinn hefur verið.

Áhyggjur okkar á þeim tíma þegar við vorum að glíma við heimsfaraldur voru auðvitað augljósar, að það myndi taka langan tíma að snúa rekstri ríkissjóðs við, en það kemur í ljós að þær áhyggjur voru ekki á rökum reistar. Við fórum umtalsvert hraðar út úr því áfalli heldur en gera mátti ráð fyrir en fyrir vikið er veruleg spenna í hagkerfinu og verðbólga hefur verið þrálát. Afkoma ríkissjóðs hefur batnað verulega og því hefur gengið hraðar að mæta þeim útgjöldum sem sköpuðust í heimsfaraldrinum en gert var ráð fyrir, eins og ég hef hér nefnt. Eins og komið hefur fram hefur batinn á frumjöfnuði verið verulegur og auðvitað vonumst við til að heildarjöfnuður verði jákvæður innan fárra ára. Það á að sjálfsögðu að vera okkar markmið í ríkisfjármálum. Skuldahlutfall ríkissjóðs hefur lækkað umfram spár og er nú í kringum 32% af vergri landsframleiðslu.

Til að setja hlutina í samhengi er vert að skoða nýútkomna skýrslu frá fjármálastöðugleikanefnd Seðlabanka Íslands. Þar er nefnt að fjármálakerfið sé traust, eiginfjárstaða og lausafjárstaða banka sterk og þeir séu vel í stakk búnir til að halda áfram að lána fyrirtækjum og heimilum í landinu. Í skýrslunni kemur líka fram að greiðslubyrði hafi aukist en þrátt fyrir það eru vanskil en lítil.

Ég verð að segja það, virðulegi forseti, að það þýðir að það er ákveðið borð fyrir báru enn þá en ég hef áhyggjur af því að ef við náum ekki niður verðbólgu og þar með vöxtum lendum við í því að fleiri og fleiri ná ekki endum saman. Hvort sem litið er til tekna eða eiginfjárstöðu er skuldahlutfall fyrirtækja og heimila þó enn þá hóflegt.

Sem stendur er mikilvægt að taka fram að með þeim breytingartillögum sem fjárlaganefnd er hér að leggja til verður frumjöfnuður ekki lakari en gert var ráð fyrir við framlagningu frumvarpsins. Hvað afkomumarkmið varðar er áætlað að halli samkvæmt heildarútkomu verði um 47 milljarðar kr. en afkoman hefur ekki verið betri síðan fyrir heimsfaraldurinn. Við erum þó áfram að verja velferðarkerfin okkar. Á undanförnum árum hafa stjórnvöld bætt verulega í fjárveitingar til heilbrigðisþjónustu og hækka framlög í þessu frumvarpi til sjúkrahúsþjónustu um 8,2 milljarða og framlög til heilbrigðisþjónustu utan sjúkrahúsa hækka um 4,5 milljarða. Eins og nefnt er í nefndaráliti eru útgjöld til heilbrigðismála á Íslandi um 9,7% af vergri landsframleiðslu, sem er aðeins hærra en er í Finnlandi en þó nokkuð lægra en á hinum Norðurlöndunum. Það er vissulega ágætt að bera saman prósentur milli landa og við gerum það en þegar kemur að heilbrigðiskerfinu og svo sem öðrum kerfum þá finnst mér það oft ansi varhugaverð nálgun. Það sem ég á við þar er að við þurfum áfram að setja kraft í heilbrigðiskerfið, vinna að forvörnum til þess að kerfið sé hagkvæmara, sérstaklega til lengri tíma litið. Við séum að grípa fólk fyrr til að koma í veg fyrir aukin útgjöld þó að þau verði auðvitað alltaf vissulega einhver. Þar sé ég ákveðið sóknarfæri. Við þurfum að halda áfram að jafna aðgengi og draga úr kostnaðarþátttöku almennings þegar kemur að heilbrigðismálum.

Við samanburð á útgjöldum og landsframleiðslu þá má nefna til að mynda að Frakkar hafa státað sig af því að vera með eina bestu útkomu á alþjóðlegum mælikvörðum í sínu heilbrigðiskerfi. Vissulega eru þeir að setja meira til heilbrigðismála en við en þó eru ríki eins og Bandaríkin að setja miklu meira, allt að tvöfalt meira í heilbrigðiskerfið hjá sér en útkoman er aftur á móti mjög slök. Það þýðir að vissulega þurfum við að fjármagna hér heilbrigðiskerfið okkar en við þurfum líka að nýta fjármunina vel. Við þurfum að tryggja að við séum að grípa fólk sem fyrst, að aðgengi sé gott, þjónusta sé góð og ekki síst að vinnuumhverfi starfsfólks í heilbrigðisgeiranum sé með því besta sem gerist. Þannig munum við laða inn í heilbrigðiskerfið öflugt ungt fólk til starfa og ég vonast til þess að við séum á réttri leið hvað það varðar.

Ég leyfi mér aðeins að fara um víðan völl í umræðunni eins og gerist og gengur um fjárlögin. Það er rétt sem hefur komið fram og gerði það hér í gær í umræðunni að það felast ákveðnar áskoranir í þeirri stöðu sem blasir við okkur hér á landi varðandi fjölda fólks af erlendum uppruna. Fólksfjölgun hér hefur verið með ólíkindum, ef svo má segja, eða um 3% árið 2022 og annað eins blasir við árið 2023. Nú er þetta langt umfram þá fjölgun sem Hagstofa Íslands hafði spáð. Þetta er vissulega jákvætt í mörgu tilliti. Það er auðvitað gott fyrir okkur Íslendinga að Ísland sé ákjósanlegur staður, bæði til að vinna og búa og lifa. En þetta setur auðvitað líka ákveðinn þrýsting á þjónustukerfin okkar, bæði hjá ríki og sveitarfélögum, og þess vegna tel ég mjög mikilvægt, eins og verið er að gera m.a. í þessu frumvarpi, að við séum að reyna að ýta undir íslenskukennslu. Við þurfum að tryggja inngildingu fólks í samfélaginu og við þurfum líka að tryggja að réttindi fólks af erlendum uppruna á vinnumarkaði séu tryggð.

Ég vil einnig nefna mikilvægi þess að tryggja rekstrargrundvöll Landhelgisgæslunnar, eins og hefur verið minnst á í nánast hverri einustu ræðu hingað til um fjárlögin. Innlegg í þá vegferð er tímabundin hækkun á rekstrargrunni stofnunarinnar sem mætir sérstakri aðhaldskröfu í frumvarpinu en betur má ef duga skal. Við þurfum að tryggja leitar- og björgunargetu stofnunarinnar og taka mið af þeim þörfum í fjármálaáætlun fram undan. Verkefni Landhelgisgæslunnar hafa að einhverju leyti breyst þegar horft er til öryggis- og varnarsjónarmiða í Evrópu og hennar miklu verkefni hafa raunverulega sjaldan verið brýnni.

Annað viðfangsefni sem blasir við okkur er alvarleg staða bænda. Fyrir því eru ýmsar ástæður, m.a. utanaðkomandi ástæður sem ekki var hægt að sjá fyrir en einnig bara miklar fjárfestingar þar sem það hefur verið aukinn þrýstingur um hagkvæmni og verðbólgan er vissulega bíta þennan hóp mjög fast. Ég hef áhyggjur af stöðu bænda í breiðu samhengi. Ég vil ekki aðeins nefna mikilvægi greinarinnar varðandi rekstur hennar og matvælaframleiðslu heldur einnig fæðuöryggi á Íslandi til framtíðar. Bændur eru liðsmenn í loftslagsmálum, í sjálfbærnimálum, fæðuöryggi og þar státum við af einum besta landbúnaði í heimi ef horft er til að mynda til notkunar sýklalyfja í landbúnaði og svo má lengi telja. Það er því mikilvægt að koma á móts við stöðu bænda á milli umræðna hér í fjárlagaumræðunni og auka fjárveitingar til stuðnings en það kemur líka fram í frumvarpinu að verið er að veita aukið fjármagn í kynbótastarf, kornrækt og vinnu við verndandi aðgerðir gegn riðuveiki í íslensku sauðfé svo eitthvað sé nefnt.

Önnur mikilvæg grein sem vert er að minnast á er ferðaþjónustan sem nú er stærsta útflutningsgrein okkar Íslendinga og skilar þjóðinni miklum tekjum. Uppbygging ferðaþjónustunnar í kjölfar heimsfaraldursins hefur verið ævintýraleg en vert er að nefna að greinin er líka viðkvæm fyrir breytingum og nú er unnið að framtíðarstefnumótun stjórnvalda á sviði ferðaþjónustu og mikilvægt að vel takist til. Það eru vissulega fyrirtæki í ferðaþjónustu sem eru enn og munu vera á næstu misserum og jafnvel árum að glíma við afleiðingarnar af heimsfaraldrinum þegar öllu var skellt í lás. Það þarf að vera svigrúm til staðar svo að sem flestir nái sér á strik og mér sýnist á öllu að það gangi vel.

Aðeins um stýringu ferðamanna um landið. Ég er að vonast til þess að við berum gæfu til þess á næstu árum að fá heildrænni stefnu hvað það varðar. Það er mikilvægt að við verndum umhverfi okkar, ferðamenn og landsmenn allir geti nýtt það vel og ef við verndum það fyrir átroðningi og við leggjum til grundvallar það mat, það álagspróf sem sett er varðandi ferðamannastaði svo við getum öll notið ferðamannastaða og innviða hér um ókomna tíð.

Virðulegi forseti. Ég tel mikilvægt að ávarpa hér í umræðunni þá óvissu sem blasir við okkur Íslendingum. Auðvitað er alltaf einhver óvissa á hverjum tíma en óhætt er að segja að atburðir eins og stríð í Evrópu kalli á veruleg viðbrögð enda áhrifin töluverð. Í fjárlagafrumvarpinu eru aukafjárlög vegna öryggis- og varnarmála og þar spilar einmitt Landhelgisgæslan, sem ég nefndi hér áðan, stórt hlutverk. Einnig hafa stjórnvöld veitt aukinn stuðning til Úkraínu og fjárfest í færanlegu neyðarsjúkrahúsi sem mér skilst að búið sé að taka í notkun.

Ýmislegt hefur breyst eftir að stríðið skall á. Bæði hafa samskipti á milli þjóða á norðurslóðum breyst þar sem Rússland er þar einangrað en einnig hefur orðið hækkun á alþjóðamörkuðum og aðföng orðið dýrari og þar af leiðandi hefur innflutt verðbólga um skeið verið okkur erfið og bæst ofan á innlenda verðbólgu. En það er mín von að við sjáum fram á að hún fari lækkandi. Þetta hefur m.a. bitnað á bændum sem ég talaði um hér áðan. Ríkisstjórnin hefur reynt eftir fremsta megni að koma til móts við þetta en það er samt sem áður áfall fyrir okkur öll að við stöndum frammi fyrir stríði í Evrópu og algjör óvissa um það hvenær það endar og hvernig. Þetta þýðir breytt ástand í öryggismálum sem ég lýsti hér og kallar á stóraukna árvekni, m.a. varðandi netvarnir, varnir mikilvægra innviða og kortlagningu á áfallaþoli samfélagsins í heild.

Virðulegi forseti. Því miður er ekki bara stríð í Úkraínu heldur horfir heimsbyggðin einnig upp á ólýsanlegar hörmungar á Gaza-svæðinu. Vil ég nefna sérstaklega mikilvægi þess að við gerum okkar til að veita mannúðaraðstoð og hvetja til friðsamlegra lausna á þeim hildarleik. Það er þyngra en tárum taki að horfa á þá stöðu.

Svo er það ógn náttúrunnar hér heima en jarðhræringar á Reykjanesi og sú óvissa sem blasir við íbúum Grindavíkur sem þurftu að yfirgefa heimili sín er mikil. Það er skylda stjórnvalda að styðja við Grindvíkinga með öllum mætti og má gera ráð fyrir breytingum á milli umræðna í tengslum við þann stuðning. Í gær samþykktum við frumvarp um leigustuðning við Grindvíkinga sem þurfa að leigja húsnæði til íbúðar utan Grindavíkurbæjar og rúm vika er síðan við samþykktum frumvarp um afkomustuðning. Við verðum að halda áfram að vinna þétt með Grindvíkingum til þess að tryggja stuðninginn. Það er ófyrirséð hvernig sá atburður endar sem enn er í gangi. En ég held að Grindvíkingar megi treysta því að stjórnvöld muni ganga langt til að veita stuðning og vera innan handar eins og mögulegt er.

Í þessu sambandi vil ég aftur nefna áfallaþol þjóðarinnar til lengri tíma. Við búum nefnilega í gjöfulu landi en því fylgja líka ógnir í formi náttúruvár. Það hafa komið upp hugmyndir um til að mynda þjóðarsjóð. Nú veit ég ekki hvort það sé endilega rétta leiðin en það er mikilvægt fyrir okkur að hafa borð fyrir báru, ekki aðeins fjárhagslega heldur einnig gagnvart innviðum okkar, heilbrigðismálum, orkuöflun og fæðuöryggi.

Virðulegi forseti. Nú hef ég setið í fjárlaganefnd frá því í haust og það hefur verið ansi lærdómsríkt. Ég held að í fáum nefndum þingsins gefist eins gott tækifæri til að fá innsýn í þau fjölmörgu mál sem snúa að rekstri hins opinbera en einnig störfum einstakra stofnana, félagasamtaka og svo má lengi telja. Ég nefndi hér í upphafi ræðu minnar þann fjölda sem kemur fyrir nefndina hverju sinni til að ræða fjárlög og útgjöld ríkisins sérstaklega til ýmissa málaflokka. Ég kom aðeins inn á það í andsvörum mínum í gær að ég held að það séu tækifæri til að gera enn betur í eftirfylgni með fjárlögum og einnig tækifæri sem snúa að lengri tíma áætlun. Það er ekkert langt síðan að við fórum að hugsa lengra fram í tímann. Nú erum við með fjármálaáætlun til fimm ára. Ef ég fer rétt með, virðulegi forseti, er það í takt við lög um opinber fjármál þar sem nefnt er að fjármálaáætlun skuli vera til fimm ára hið minnsta. Ég hef alveg velt upp þeirri hugmynd hvort það sé skynsamlegra að vera mögulega með aðra áætlun sem tekur til lengri tíma. Þetta höfum við gert með samgönguáætlun og ég held að það hafi reynst vel, hún er endurskoðuð reglulega.

Ég hef hér farið yfir helstu punkta mína en það sem stendur kannski svolítið upp úr hjá mér eru vaxtagjöldin sem ríkissjóður er að greiða af sínum skuldum og ég hef ekki enn fengið almennilegt svar við því og furða mig mjög á því að ein ríkasta þjóð í heimi skuli ekki hafa betri kjör. Ég myndi telja að það væri raunhæft að lánakjör íslenska ríkisins ættu að vera með því besta sem gerist. Það kann að vera út af einhverjum fortíðardraugum, hruni eða einhverju slíku, ég kann ekki skil á því. En það er þó ánægjulegt að lánshæfismat ríkissjóðs var nýverið hækkað og auðvitað er það von mín að það muni hafa áhrif á vaxtakostnað.

Að lokum vil ég segja þetta, virðulegi forseti: Ég er á heildina litið ánægður með fjárlagafrumvarpið. Það er mín trú að frumvarpið gangi í takt við okkar stærstu markmið sem er að ná hér niður verðbólgu. Við munum þurfa að glíma við verðbólguna á komandi ári, hún reynist illvígari en við bjuggumst við. Þá verða stjórnvöld að gera sitt, vernda þá sem verst verða úti í slíku verðbólguskoti, tryggja það að velferðarkerfin okkar virki og halda áfram að sýna skynsemi í fjármálum ríkisins.