fjárlög 2024.
Frú forseti. Ég þakka fyrir þessa góðu umræðu og við erum um margt sammála, ég og hv. þm. Björn Leví Gunnarsson. Ég held að við séum að færast í rétta átt. Ég held að við eigum samt töluvert inni. Þegar ég er að tala um langtímaáætlanir þá er ég til að mynda að velta fyrir mér bæði heilbrigðismálunum okkar, velferðarmálunum okkar, þar sem ég og margir þingmenn, ég held algjörlega þvert á flokka, höfum verið að velta fyrir okkur hvort það sé hægt að fá greiningar á því að ákveðin verkefni skili fjárhagslegum og félagslegum ábata þó að ekki verði horft til þess fyrr en eftir kannski 5–10 ár, jafnvel 20 ár. Sum kerfin okkar eru sannarlega þannig. En við erum auðvitað að reyna að taka oft og tíðum pólitískar ákvarðanir, byggðar á eins góðum gögnum og við mögulega getum fengið. Við þurfum að horfa til þess að gögnin séu góð. Við höfum auðvitað hér á þingi líka ákveðið hlutverk sem snýr að aðhaldinu, aðhaldið er mikilvægt, en líka bara hvernig við höfum tækifæri til að beita því. Það er auðvitað tómt mál að tala um það hlutverk nema við höfum einhverja skýra vegferð um hvert við viljum fara í þeim efnum. Annars missir vinnan svolítið marks, leyfi ég mér að segja. Ég held að við getum gert betur. Eins og ég tók fram í ræðu minni hef ég verið í fjárlaganefnd frá því í haust, afskaplega gefandi starf og áhugavert. Ég sé bara strax ákveðin tækifæri til að gera betur og ég vænti þess að þingmenn í nefndinni taki fagnandi þeim tillögum mínum að við höldum áfram þessari vegferð, að við skautum ekki yfir það sem við erum búin að vera að leggja áherslu á, að við þurfum að gera betur inn í næsta ár og þarnæsta ár.