154. löggjafarþing — 44. fundur,  6. des. 2023.

fjárlög 2024.

1. mál
[17:05]
Horfa

Inga Sæland (Flf):

Frú forseti. Enn liggur fyrir Alþingi Íslendinga afgreiðsla enn einna fjárlaganna, fjárlaga sem eru í rauninni harla metnaðarlítil með tilliti til heildarinnar, fjárlaga sem mér hugnast ekki. Ég ætla að byrja aðeins að benda á heildarskuldir ríkissjóðs. Hverjar eru þær áætlaðar? 1.706 milljarðar kr. nú um áramótin, og útlit fyrir að skuldirnar vaxi um 50 milljarða kr. á næsta ári. Mig langar að setja það í samhengi við það sem hefur verið talað um, hvað erum við að greiða í vexti árlega af þessum skuldum? Um 117 milljarða kr. er áætlað að við séum að greiða í vexti á ári af þessum skuldum ef þeim verður ekki breytt til hins betra. Gerið ykkur grein fyrir því að það þýðir hvorki meira né minna en 320 millj. kr. hvern einasta dag ársins, 320 millj. kr. á dag, eða ef við förum með þetta niður í klukkutíma: Á hverjum einasta klukkutíma er íslenska ríkið að greiða 13.356.164 kr. í vexti af lánunum sem íslenska ríkið hefur tekið. Við virðumst taka lán fyrir öllu, það skiptir engu máli hvað það er. Við erum gjöful og gefum fé og ausum fé á báða bóga. Við viljum redda heiminum, við erum best í heimi, 80 milljónir hér og 120 milljónir þar og milljarður og 5 milljarðar á annan stað; allt meira og minna fjármagnað með erlendri lántöku.

Flokkur fólksins hefur komið með breytingartillögur eina ferðina enn eins og gengur við þetta fjárlagafrumvarp. Að sjálfsögðu lúta allar okkar breytingartillögur ævinlega að því að bæta kjör og bæta líf þeirra þjóðfélagshópa sem hafa verið settir hjá garði og eru látnir lepja dauðann úr skel, fólksins sem er smíðað inn í svo rammgerða fátæktargildru að það á enga möguleika á því að brjótast út, enga. Að hugsa sér að þessi ríkisstjórn skuli nú vera búin að vera að vasast um hér á hinu háa Alþingi sem framkvæmdarvald og hlutirnir eru eins og þeir eru í dag. Að hugsa sér að við skulum hafa þolað það og hafa mátt þola það að sitja hér með ríkisstjórn auðmanna og græðgismaskína án þess að hafa fengið rönd við reist.

Eins og ég segi, við í Flokki fólksins erum með ýmsar breytingartillögur. Þær fela það í sér að við munum auka tekjur ríkissjóðs um 35,9 milljarða kr. en útgjöldin munu aukast um 19,2 milljarða þannig að það þarf ekki klókan reikniheila til að sjá að við ætlum að skilja eftir 16,7 milljarða í plús miðað við þær aðgerðir sem við viljum ganga í til hagsbóta fyrir fólkið okkar. Ég hafði þegar talað um að hækka bankaskattinn, koma þessum blessaða bankaskatti í 0,838%. Vá hvað það væri nú alveg skelfilegt fyrir bankann að taka á sig allan þennan bankaskatt. Það var nú athyglinnar virði að sjá það þegar við vildum koma bankaskattinum í það sem hann var, áður en Bjarni Benediktsson, fyrrverandi hæstv. fjármálaráðherra, ákvað að lækka hann. Rökin voru þau að með því að lækka bankaskattinn yrði ekki bara auðveldara að selja bankann heldur myndu þjónustugjöldin væntanlega lækka sem og vextirnir, og bankinn yrði voða glaður, voða glaður við viðskiptavinina, okkur sem þurfum alltaf að bera allar byrðarnar, fátæka fólkið í landinu sem er að bugast undan byrðinni sem þessi stjórnvöld hafa lagt á það.

En hver skyldi raunin hafa orðið, frú forseti? Lækkuðu þjónustugjöldin? Lækkuðu vextirnir? Varð eitthvað betra að eiga viðskipti við frábæru bankana, innan gæsalappa að vísu? Nei, akkúrat ekki neitt. Það var akkúrat ekki neitt að marka þetta markmið sem sett var og borið á borð fyrir okkur, að verið væri að stefna að betri þjónustu fyrir viðskiptavini bankanna og lækkun vaxta. Nei, ekkert af þessu gekk eftir og þá er ég ekki að tala um það brjálæði sem geisar núna eftir að okkar ágæti seðlabankastjóri hefur verið skilinn einn eftir með verðbólguna í fanginu og veit ekki hvort hann er að koma eða fara. Það eina sem hann kann að gera er að hækka stýrivexti. Nú hefur hann hækkað þá 14 sinnum í röð og eru þeir núna í 9,25%, takk fyrir.

Það að hækka bankaskattinn í 0,838 prósentustig hefði gefið okkur um 30 milljarða kr. í ríkiskassann. Bankarnir, sem munu sennilega hagnast um ekki minna en 80 milljarða í hreinan hagnað á árinu, voru þegar komnir í 61 milljarð núna eftir fyrstu þrjá ársfjórðungana og nú stefnir í gott betur. Þeir munu sennilega blómgast um gott betur en 80 milljarða, ætli það nálgist ekki frekar 100 þegar við erum búin að klára þetta ár? Það kæmi ekki á óvart. Það kom hins vegar á óvart að enginn stjórnmálaflokkur og enginn alþingismaður, enginn einasti, skyldi vera með Flokki fólksins á þessu frumvarpi, á þessari breytingartillögu um að hækka bankaskatt á þessa græðgismaskínur sem bankarnir eru og vel aflögufærir og meira en það.

Það er annað. Ég er ekki alveg sú besta þegar verið að klastra á mig alls konar blöðum þannig að ég er nú að reyna venjulega að losna við það en í frumvarpi Flokks fólksins um hækkun bankaskattsins kemur fram að skatthlutfallið verði endurskoðað þegar vextir hafa farið aftur undir 5%. Við erum að senda hvatningu til bankanna: Getið þið ekki gert svo vel, kæru bankar, að gera eitthvað sem kollegar ykkar eru að gera hérna í kring? Erum við ekki alltaf að státa af því hvað við erum frábær og tökum tillit til þess og þykjumst ætla að læra af því sem vinir okkar gera til hægri, vinstri, upp og niður, út og suður? Er það ekki málið? Samt erum við svo spes. Samt erum við alveg einstök. Samt erum við allt öðruvísi en allir aðrir.

Rökin fyrir því að vera að líta upp og niður og til hægri, vinstri, út og suður, svona af og til þegar það hentar, halda ekki nokkru einasta vatni því að meira að segja vinir okkar í Færeyjum geta skellihlegið að okkur með sín 4% húsnæðislán, 50.000 manna samfélag sem hefur tvær stoðir til að byggja á í sínum atvinnurekstri, aðallega sjávarútveg og laxeldi. Við erum með mun fleiri stoðir og við erum tæplega 400.000. Hvað segir það okkur um hagstjórnina að við skulum sitja svona í súpunni, að við skulum hreinlega vera dottin ofan í eldgíginn án þess að geta rönd við reist? Það segir okkur að við erum með vanhæfa ríkisstjórn. Það segir okkur að þau vita ekki hvort þau eru að koma eða fara. Það segir okkur að hér ríkir alger vanræksla gagnvart raunverulegri vá sem við erum að takast á við og glíma við í dag, alger vanræksla, hvorki meira né minna.

Með því að reyna að hvetja bankana til þess að fara með vexti sína á fasteignamarkaði undir ákveðna prósentu þá töldum við að það væri hvatning fyrir þá ef þeir vildu losna undan því að greiða 30 milljarða af 90 milljörðunum sínum, sem sennilega verða alveg öruggir í gróða, inn í samfélagið, enda segir seðlabankastjóri sjálfur, mér skildist það í hádegisfréttum í dag, að bankarnir ættu hrikalega mikið lausafé. Þeir eiga nefnilega hrikalega mikla peninga en þeir safna auð með augun rauð á meðan hina brauðið vantar og þeir hafa ekki hjarta og þeim er nákvæmlega sama. Þeir vilja bara söðla undir sig fasteignir landsmanna með dyggri aðstoð Creditinfo. Það eru þeirra ær og kýr.

Það kemur að því, eins og við erum að tala um líka í Flokki fólksins, að sjálfsögðu á stórútgerðin — að sjálfsögðu á að afkomutengja greinarnar þannig betur, tekjutengja betur greinarnar sem eru að maka hér krókinn á okkar sameiginlegu auðlindum. Ég veit ekki betur en að öryrkjar og aldraðir og allir og fjölskyldur og unga fólkið okkar og nánast allir nema ríkisbubbarnir og milljarðamæringar — sem aldrei þurfa að spá í það hvað verður um peningana þeirra, í hvað þeir eyða eða annað slíkt — séu tekjutengdir. Nei, veistu, þú getur ekki fengið þetta útborgað, það þarf að skerða þig af því að þú fékkst hitt. Nei, þú getur ekki fengið svona miklar húsnæðisbætur vegna þess að þú ert með of háar tekjur. Þú ert nefnilega með 50.000 kr. of mikið þannig að við verðum að skerða þig, sjáðu til. Nei, krakkinn er orðinn of gamall, jafnvel þótt hann sé ekki í vinnu og hann sé í námi og annað slíkt þannig að nei, þú færð ekki barnabætur út á hann. Nei, vaxtabæturnar — við verðum alveg að gjöra svo vel að passa okkur á því að þú sért alveg gjörsamlega að lepja dauðann úr skel og vitir ekki hvort þú ert að koma eða fara af áhyggjum yfir því hvort þú nærð endum saman um næstu mánaðamót. Staðreyndin er hins vegar sú að það eru ótrúlega margir, ótrúlega stór hluti samfélagsins í dag, sem ná ekki endum saman.

Í framhaldi af því ætla ég að tala um það sem ég heyrði í morgun þegar ég var að hlýða á Bítið eins og við gerum oft á morgnana. Þegar við erum að nudda stírurnar úr augunum er gott að vakna með þeim ágætu Heimi, Völu og Lilju. Þá var verið að tala við unga íslenska konu sem býr í Noregi sem segir að þau séu með heimþrá. Þau eru alltaf með heimþrá því Ísland er „heim“. Maðurinn hennar, ungi maðurinn hennar, er búinn að læra, hann er að vinna og meira að segja eftir að þau eignuðust sitt litla barn þá varð heimþráin enn þá meiri. Þau langaði enn þá meira heim. Allt baklandið er heima, fjölskyldurnar heima, Ísland er „heim“. Og af hverju eru þau ekki komin heim? Þau treysta sér ekki til þess. Þau treysta sér ekki til að takast á við þá holskeflu skulda og óráðsíu sem er hér í ríkisbúskapnum. Þau treysta sér ekki til að fara inn á leigumarkað, okurleigumarkað. Þau treysta sér ekki til þess að kaupa sér fasteign yfir höfuðið. Þau vilja ekki borga 10.000 á mánuði inn á höfuðstól 50 milljóna láns eða 40 milljóna láns og 500.000 í vexti til græðgisvæddu bankanna. Þau treysta sér ekki til þess, enda hafa þau ekki bolmagn til þess.

Við viljum í rauninni taka peninga af stórútgerðinni. Við viljum tekjutengja stórútgerðina þannig að þegar hún er að skila milljörðum á milljarða ofan í arð þá eigum við, íslenskt samfélag, íslenska þjóðin, við sem eigum auðlindina, að fá að njóta ávaxtanna ekki síður en þeir sem við erum að veita aðgang að henni. Við höfum viljað tryggja að það verði tekið utan um fíknisjúkdóminn. Við höfum viljað að það væru ekki 700 fárveikir einstaklingar á biðlista inn á sjúkrahús til að biðja um hjálp þar sem margir þeirra deyja á biðlista eftir læknisþjónustu. Þeir deyja á biðlista eftir læknisþjónustu. Hvurs lags stjórnvöld eru þetta eiginlega? Hvers lags ríkisstjórn er þetta eiginlega sem er búin að binda svo rækilega fyrir augun og troða svo rækilega í eyrun að hún þykist ekkert vita sitjandi í sínum kristalsfílabeinsturni og horfir niður á samfélagið sitt í sárum án þess að bregðast við? Það er ekki einu sinni enn þá búið að viðurkenna þennan skelfilega og einn alvarlegasta sjúkdóm sem herjar á heimsbyggðina sem heilbrigðisvandamál á Íslandi í dag. Ég hef það á tilfinningunni að við gætum bara mjög auðveldlega poppað aftur inn í torfkofana, svo gamaldags, svo fordómafull og svo hallærisleg erum við oft í margar áttir. Fíknisjúkdómurinn er einn alvarlegasti sjúkdómur sem við glímum við í dag. Við erum að horfa upp á unga fólkið okkar deyja hér unnvörpum ótímabærum dauða, tugir deyja ótímabærum dauða á hverju einasta ári. Og hvað er ríkisstjórnin að gera í því? Hvað eru fjárlögin að gera í því? Þeir plástra opna beinbrotið. Þeir reyna að sauma iðursárin saman bara með plástri. Þetta eru stjórnvöld sem kunna ekki að skammast sín.

Við erum hér með eftirmeðferð þegar einstaklingarnir okkar — þeir sem hafa verið svo lánsamir að hafa fengið að fara inn á Sjúkrahúsið Vog og fengið að vera að afeitraðir og búnir undir það að taka á hinni eiginlegu meðferð með von í hjarta um það að losna undan Bakkusi eða eitrun í smá tíma, einn dag í einu. Það er einn dagur í einu. Ef þau geta fylgt því að vera einn dag í einu þá erum við að fara að taka á móti þessum auðæfum okkar, þessum mannauði okkar, sem mun af öllu hjarta vilja taka þátt í samfélaginu með okkur hinum. Þetta er mannauðurinn okkar, þúsundir einstaklinga sem eru að glíma við þennan sjúkdóm og við látum það viðgangast að horfa upp á þau deyja unnvörpum ótímabærum dauða.

Við eigum Hlaðgerðarkot þar sem 100 einstaklingar hringja inn daglega grátandi og biðja um hjálp. Við eigum SÁÁ þar sem er bið. Það hringir fárveikur einstaklingur og þá er sagt: Heyrðu, þú getur kannski hugsanlega komið eftir 6–9 mánuði inn á sjúkrahúsið en á meðan verður þér bara að blæða út og við höfum ekki bolmagn til að gera meira. Á sjúkrahúsinu Vogi eru samt sem áður rúm sem eru vannýtt. Og af hverju eru þau vannýtt? Af því það er ekki fjármagn. Það er ekki fjármagn til að reka sjúkrahúsið einu sinni á því fulla afli sem það gæti verið rekið á. Á meðan deyr fólk á biðlista. Á meðan deyr unga fólkið okkar ótímabærum dauða og hverjum er það að kenna? Ríkisstjórninni auðvitað. Hver er það sem er að stýra þessu landi hér? Ríkisstjórn Vinstri grænna, Framsóknarflokks og Sjálfstæðisflokks. Það eru þeir sem eru við stjórnvölinn og það er nákvæmlega sama hvernig við í stjórnarandstöðu berjumst um eins og brjálæðingar til að reyna að gera það sem hægt er að gera til að hjálpa fólkinu okkar. Manni er bara gefið á kjaftinn og öllu sópað út af borðinu. Það er ekki flóknara en það. Við viljum að það séu auknir fjármunir til þessara heilbrigðisstofnana sem eru SÁÁ, Hlaðgerðarkot, Krýsuvík og allir þeir sem eru að taka utan um veikt fólk til að sinna því, til að hjálpa því.

En hvernig haldið þið nú — ég bið ykkur nú að fylgjast með — að verði tekið utan um breytingartillögur Flokks fólksins sem lúta að því að reyna að bæta velmegun, reyna a.m.k. að skera á sárustu sárafátæktina? Hvernig haldið þið að verði tekið utan um það hjá hæstv. ríkisstjórn? Mun hjartað allt í einu fara að slá? Mun gæskan koma í ljós? Munu þau allt í einu fara að taka þátt í samfélaginu? Eru þau allt í einu búin að opna augun? Verða þau farin að heyra? Ég held ekki, ég leyfi mér að efast stórlega um það. Það er í rauninni sama hvert litið er.

Við sjáum líka, hugsið ykkur, áfangaheimili eins og Brú hérna uppi á Höfða sem rekið er af Samhjálp þar sem 19 einstaklingar eru í bata, 19 virkir einstaklingar í bata, virkir í bata, bjartsýni og bros hefur umvafið þau og þarna er tækifæri fyrir þau í allt að tvö ár til þess að fá að finna sig, til þess að ná utan um einn dag í einu og til að geta fengið að taka þátt í samfélaginu okkar með bros á vör. Nei, nú þurfa Reykjavíkurborg og Félagsbústaðir á þessu húsnæði að halda. Nú á að henda þeim út úr þessari aðstöðu. Annaðhvort snarar Samhjálp fram 550 millj. kr. og kaupir húsnæðið eða hey, það er bara því miður ekki pláss fyrir ykkur hér, út á götu með ykkur. En svo kemur allt í einu núna: Nei, kannski við hendum þeim ekki út á götu, við reynum að koma þeim í eitthvert húsnæði en við ætlum bara að eyðileggja fyrir þeim meðferðina. Við ætlum bara að skemma þann árangur sem þegar hefur náðst. Við ætlum að skemma bjartsýnina og við ætlum að taka frá þeim vonina og brosið. Það eru skilaboðin. Hvers lags stjórnvöld eru þetta? Gerið ykkur grein fyrir því, elsku kjósendur, hvað þið eruð ítrekað að kjósa yfir ykkur. Heldurðu að sjáist ekki hvern einasta dag hvernig við erum að basla og brasa við það og hvernig fólkið okkar á hreinlega erfitt með að draga andann í öllum þessum áhyggjum og því sem er búið að hella yfir það hérna? Svo er það annað, Draumasetrið. Það er líka rekið uppi á Höfða og ég var að frétta að þar væru mun fleiri einstaklingar og nú skilst mér að eigi að fara að loka því. Ég veit ekki eiginlega hvort þetta er hreinlega aðför að sjúklingum sem glíma við fíknisjúkdóminn. Ég veit ekki hvort þetta er hrein og klár og bara yfirlýst aðför stjórnvalda, hvort sem það er ríki eða borg. En ef maður á ekki að taka því sem aðför þá verður þetta að fara að líta einhvern veginn öðruvísi út.

Við höfum kallað eftir því, með breytingartillögu okkar viljum við hækka almannatryggingagreiðslur til öryrkja og ellilífeyrisþega um 12,4%. Við viljum hækka það nákvæmlega framreiknað til dagsins í dag með eðlilegri vísitöluhækkun sem gefur einmitt 12,4% en ekki 4,9% eins og stjórnvöld eru að setja fram hér og ætla að fylgja eftir, 4,9%. Ég veit náttúrlega ekki hvernig í ósköpunum þeir fengu þá tölu út, ég átta mig ekki á því, en það þarf að hækka þetta að lágmarki um 12,4% núna um áramótin. Það er algjört lágmark í 8% verðbólgu og okurvöxtum, og í rauninni má segja að þetta sé græðgisverðbólga á margan hátt því við erum að sjá að vörur, aðkeypt þjónusta og ýmislegt annað er að hækka mun meira heldur en allt hitt ógeðið sem við erum að glíma við, mun meira. Ég veit ekki eiginlega hvernig nokkur stjórnvöld geta látið aðra eins óráðsíu og stjórnleysi viðgangast án þess að grípa inn í. Hér þarf að setja neyðarlög á ástandið eins og það er. Hér þarf að skikka bankana til að skrúfa niður vextina. Það er ríkisstjórn Íslands sem ræður ríkjum hér og í raun og veru hafa þau sýnt það af öllu afli hversu vanhæf þau eru, hversu handónýt þau eru að takast á við krefjandi verkefni og taka ákvarðanir sem skipta máli fyrir land og þjóð.

Við höfum talað um fæði, klæði, húsnæði, heilbrigðisþjónustu fyrir alla. Er hægt að fara fram á meira? Er hægt að fara fram á meira þegar þúsundir Íslendinga og þúsundir fjölskyldna fara ekki fram á meira en öryggi, húsnæðislegt öryggi, fæði á borðið, klæði og heilbrigðisþjónustu? Þetta er grundvallarþjónusta. Þetta er lýðheilsan okkar. Þetta er nákvæmlega allsherjarreglan sem stjórnvöld eiga að fylgja hér. Þetta eru mannréttindi okkar, að búa í einhverju sem við viljum kalla réttarríki. Hvar er réttarríkið? Hvar er mannúðin og hvar eru mannréttindin þegar kemur að okkar minnstu bræðrum og systrum? Hvar eru þau þá? Mér finnst skorta á þau, svo ekki sé meira sagt.

Ég sagði í störfum þingsins í dag þegar ég var að tala um kolsvarta skýrslu Öryrkjabandalagsins um stöðu fatlaðra á Íslandi að það er í rauninni sárara en tárum taki að hlusta á stjórnvöld koma hér, að hlusta á ráðamenn koma hér upp, skipti eftir skipti og hæla sér af því: Já, við erum nú búin að koma með svo mikinn húsnæðisstuðning, við erum nú búin að hækka barnabæturnar, heyrðu hvað með þriðja skattþrepið sem við komum nú með og nýtist best þeim launalægstu? Það skal bara tekinn af allur vafi um það að þriðja skattþrepið nýtist mér að fullu, 100%, þó að ég sé kona á ofurlaunum, eins og við erum kölluð í þinginu, hátekjufólk. Þriðja skattþrepið er ekki eingöngu sett fyrir þá sem verst eru staddir, langt því frá. Það fá allir að njóta þriðja skattþrepsins, hvort sem þeir eru með 200.000 á mánuði eða 20 milljónir. Þú færð að nýta þér lægsta skattþrepið líka.

Þetta er alveg eins og með persónuafsláttinn. Við höfum ekki skilið það enn þá í Flokki fólksins hvers vegna hann er ekki færður til þannig að þeir sem eru á ofurlaunum fái hreinlega ekki persónuafslátt, að þessar 56.000 kr. eða hvað þær eru nú, einhvers staðar í kringum það, séu færðar til þeirra sem meira þurfa á að halda, að við séum ekki að horfa á vaxandi raðir við matargjafastofnanir. Jú, vel á minnst: Hvað ætli ríkisstjórnin ætli að gera í rosalegri góðmennsku sinni? Hún ætlar að snara fram heilum 8 millj. kr. til — ég veit ekki hvort það voru níu hjálparsamtök eða hvað? 8 milljónir, vá. Þetta var ekkert smá. Þetta kostar tugi milljóna, hundruð milljóna. En, nei, 107 milljónir í styrk til fjölmiðils auðmanna. Það er allt í lagi. En jú, kemur þessi Flokkur fólksins eina ferðina enn og ætlar að fara að heimta 140 millj. kr. til þess að sárafátækt eldra fólk geti fengið jólabónus upp á 66.000 kr. eingreiðslu skatta- og skerðingarlaust, eins og við höfum náð fram fyrir öryrkja. Nei, það stendur í þeim, rosalega stendur það fast í þeim. Mikið þurfa þeir að vera hagsýnir í efnahagsmálunum þá og sparsamir, þegar kemur að því að rétta hjálparhönd til sárafátæks fólks sem gjörsamlega er í molum í þessu ástandi sem við erum glíma við í dag.

70% fatlaðra geta ekki mætt neinu sem heitir óvænt útgjöld, engu. Ef úlpan rifnar af barninu og það þarf að kaupa nýja úlpu, því miður. Við verðum að reyna að fá hana gefins. Við verðum að reyna að fara eitthvert annað. Ég hef ekki efni á að kaupa handa þér úlpu, elsku barn. Hér tala ég af eigin reynslu. Ég tala af reynslu þegar maður er fátækur og getur ekki veitt börnunum sínum það sem er talið almennt eðlilegt í samfélaginu að öll börn eigi að fá. Mamma, má ég fá fótboltaskó? Í mínum börnum eins og öllum öðrum börnum býr mikill mannauður. Mínum börnum eins og öllum börnum hefði ég viljað geta gefið það tækifæri sem þau fengu í vöggugjöf, hvort heldur sem það var á sviði íþrótta eða tónlistar, en ég hafði ekki bolmagn til þess þá. Ég hefði haft það núna. Ég átti lítinn fótboltastrák sem var algjör stjarna. Mamma, viltu gefa mér fótboltaskó? Pabbi, ég get ekki lengur verið í fótboltaskónum því neglurnar detta alltaf af stóru tánum. Það blæðir alltaf úr tánum mínum þegar ég er í fótboltaskónum og mér er alltaf illt í tásunum. Við skulum skoða það í næsta mánuði. Þú verður að reyna að þrauka, elsku vinur. Við skulum sjá hvort við getum ekki lagað þetta í næsta mánuði. Hvað ætli séu margir foreldrar sem eru í þessari stöðu í dag, í boði þessarar ógeðslegu ríkisstjórnar? Ég sem hélt að ég væri komin með skrápinn alla leið en alltaf þegar ég fer að tala um mína reynslu þá beygi ég bara af og ég biðst fyrirgefningar á því. En það er vegna þess að hér stendur kona fyrir framan ykkur öll með hugsjón fyrir því sem ég er að gera. Ég brenn fyrir því sem ég er að gera og það gerum við öll í Flokki fólksins.

Meira en helmingur, meira en 50% fátæks fólks neitar sér um nauðsynjar, næringarríkan mat fyrir börnin sín, neitar sér nánast um alla skapaða hluti, getur aldrei nokkurn tíma farið í bíó með krakkana, getur aldrei nokkurn tíma farið í leikhús. Geta þau verið á jólahlaðborðunum sem eru auglýst hér tíu sinnum á dag úti um allar koppagrundir? Geta þau farið á jólatónleika og haft það svolítið huggulegt með fjölskyldunni sinni? Nei, þau geta það alls ekki. Við erum að tala um tugi þúsunda Íslendinga, tugi þúsunda.

Við erum að sjá líka að stór hluti þessa fólks, stór hluti af þessu fátæka, fatlaða fólki, yfir 70%, býr við slæma andlega líðan. Það eru yfir 80% meðal einhleypra foreldra sem búa við slæma andlega heilsu og hátt hlutfall af þeim hefur daglega hugsað um að skaða sig eða jafnvel taka sitt eigið líf vegna þess að skiptir hvort sem engu máli. Það er algerlega örmagna. Það er vanmáttugt. Það getur ekki gert betur og samfélagið sem þau stóla á og stjórnvöld sem eiga að halda utan um þau eru búin að svíkja þau, eru búin að bregðast þeim og þykjast ekki heyra í þeim. Samt eigum við stjórnarskrá, 76. gr. stjórnarskrárinnar. Samt eigum við 1. mgr. 76. gr. stjórnarskrárinnar sem segir að öllum sem þess þurfa skuli með lögum tryggður réttur til aðstoðar vegna örorku, elli, örkumlunar eða báginda eða hvað eina annað sem er. Er það það sem við horfum upp á daglega hér, að fólkinu okkar sé tryggður réttur til aðstoðar? Erum við að aðstoða í húsnæðismálunum? Erum við að aðstoða yfir höfuð við nokkurn skapaðan hlut? Við erum að koma með plástra á sárið. Við tölum um kaupmáttinn; ó, hann hefur vaxið svo mikið, kaupmátturinn hér, samkvæmt OECD, hann er alveg frábær. Við erum hérna sjötta ríkasta þjóð í heimi en upp undir helmingurinn af börnunum okkar til þess að gera ólæs þannig að framtíðin er eins og hún er. En ég ætla ekki að tala um það akkúrat núna, það kemur seinna.

Að hugsa sér að vera endalaust að tala um mannréttindi og hvað aðrir eigi bágt annars staðar, en mannréttindin hér heima eru fótumtroðin, algerlega fótumtroðin. Á meðan ráðamenn valsa um á 100 stjörnu hóteli í Dubai á einhverri loftslagsráðstefnu sem skilar ekki nokkrum sköpuðum hlut, á meðan Kínverjar opna tvö kolaver á viku, þá ætlum við að redda heiminum hvað lýtur að loftslagsvánni.

Maður er gjörsamlega orðinn algjörlega miður sín að vera búinn að standa hér í sex ár og öskra út í tómið. Meira að segja margir af kjósendum okkar eru orðnir drulluhræddir við mig — afsakið, frú forseti — eru orðnir skelfingu lostnir yfir hasarnum í mér í pontu og halda að ég sé alltaf svona reið. Já, ég er reið. Núna er ég reið, mér er misboðið, ég er sár, ég er vonsvikin. Mér finnst maður vera að berjast svona eins og rjúpan við staurinn. Lítið sem ekkert er gert með það sem maður er að koma með, þvert á móti.

Við skulum hugsa líka um að yfir 40% af þessu fatlaða fólki sem ég var að tala um, sem kom fram í þessari svörtu skýrslu, yfir 40% geta ekki leyft sér að fara til tannlæknis og geta heldur ekki leyft sér að fara til sálfræðings. Ég hafði ekki farið til tannlæknis í tíu ár áður en ég kom hingað inn á þing. Það er ekki stjórnvöldum að þakka að ég er ekki tannlaus í dag, það er nokkuð ljóst. Þeim er bara alveg nákvæmlega sama, það liggur alveg á borðinu.

En eins og ég segi: Hvað er til ráða? Hvað höfum við verið að gera með breytingartillögur? Við erum að koma með breytingartillögu eftir breytingartillögu. Við viljum hækka framfærsluna, við viljum koma lágmarksframfærslu upp í 400.000 skatta- og skerðingarlaust. Það er enginn með okkur á frumvarpinu, ekki einn einasti alþingismaður er með okkur á frumvarpinu — 400.000 kr. skatta- og skerðingarlaust. Það vill enginn heldur líta við því að taka 70 milljarða með staðgreiðslu við innborgun í lífeyrissjóði frekar en að vera með staðgreiðsluna þegar við erum að taka út úr lífeyrissjóðunum. Nei, það má ekki gera. Við skulum frekar hafa þá með þessa peninga. Við skulum frekar lofa þeim að tapa 800 milljörðum núna á tæpum tveimur árum. Það er allt í lagi. Það er allt í fína lagi, það voru bara 800 milljarðar, bara 800.000 milljónir. Það gerir ekkert til. Það verður einhvern veginn að fjárfesta, takk fyrir. Það er líka allt í lagi þó að þessir aðilar sem eru að stýra þessum sjóðum séu með 30 milljónir á ári. Það er líka allt í fína lagi, bruðlum með peningana alla vega en við skulum ekki greiða staðgreiðslu við innborgun og koma 70 milljörðum í gang inn í ríkissjóð og reyna að greiða niður skuldirnar okkar þannig að við séum ekki að borga hérna yfir 300.000 kall á klukkutíma í vexti af erlendum lánum.

Eins og ég sagði við ykkur áðan, það er kannski vert að minnast á það, í upphafi skal endinn skoða og í endann ætla ég að kíkja aftur á upphafið. Hvað er það nú aftur sem við skuldum? Hvað er það sem íslenska ríkið skuldar? 1.706 milljarða kr. Ég get ekki eiginlega fært þetta í milljónir lengur, þetta er orðið allt í rugli hjá mér, þannig að ég ætla ekki að reyna það einu sinni. En hvað þýðir það? Hvað þýðir það að vera að borga 117 milljarða kr. á ári í vexti? Það þýðir að við séum að borga 320 millj. kr. á dag í vexti? Við erum að borga 13.356.164 kr. á klukkutíma, á hvern einasta klukkutíma, í vexti. En vitið þið ekki hverjum þetta er allt að kenna? Íslenskum launþegum, maður. Það eru íslenskir launþegar sem eru búnir að rústa þessu öllu saman, sem eru búnir að koma verðbólgunni af stað og allt þetta, allt þeim að kenna. En það er enginn að spá í að það hafa verið prentaðir hér 420 milljarðar í Covid til að færa til fyrirtækja sem við vorum að bjarga, fyrirtækja sem tróðu vasana út af þessum peningum og mörg hver hafa verið að greiða sér tugi milljarða í arð. Það er enginn að tala um það. Það er enginn að tala um þessa loftbólupeninga sem var dælt hérna út í hagkerfið, 22% aukningu á peningamagni í umferð, 420 milljarða kr. Og nú er spennan í hámarki: Hvað skyldi eiga að gerast 1. janúar? Hvað skyldi ríkisstjórnin — ég sé að sveitarfélögin eru alveg að tapa sér og ætla nú að fara að hækka hjá sér gjaldskrár og annað slíkt. Það er eins og enginn átti sig á því hvernig við eigum að fara að því að ná verðbólgunni niður. Ég bíð bara spennt, þetta er framhaldssagan mikla, að sjá hversu háar álögur ríkisstjórnin ætlar að koma með á samfélagið núna 1. janúar þegar þeir fara að koma með sínar árlegu hækkanir.

En hafa þessir aðilar, fyrst við erum að líta í kringum okkur, stjórnendur þessa íslenska ríkis, eitthvað verið að skoða hvernig löndunum í kringum okkur hefur tekist að ná niður verðbólgunni og enginn er að glíma við aðra eins okurvexti hér í Evrópu eins og við? Hafa þeir eitthvað verið að skoða hvernig stendur nú á því að Færeyingarnir eru bara að borga 4% í húsnæðislán, 50.000 manna samfélag? Það verður að skoða það. Heyrðu, nei, þeir hugsa bara hreinlega að rosalega séu þeir eitthvað heppnir. Þetta hefur ekkert með heppni að gera. Þetta hefur með stjórnunarlega skynsemi að gera, ekki þrjár ríkisstjórnir í einni ríkisstjórn sem getur ekki unnið saman, sem stýra þremur skútum og sigla allar hver í sína áttina og gera allt til að hanga saman eins og hundar á roði, allt fyrir stólana.

Ætli Spánverjar hafi gert þetta þegar spænska samfélagið í rauninni dásamar bæði spænska Seðlabankann og spænsku ríkisstjórnina, hvernig þeim tókst að ná niður verðbólgunni á ótrúlega skömmum tíma? Hentu þeir því öllu í fangið á samfélaginu? Hækkuðu þeir álögur á samfélagið? Hækkuðu þeir eldsneyti, orkuna? Hækkuðu þeir eitthvað? Nei, þeir gerðu það ekki. Þeir komu í veg fyrir allar hækkanir á matvöru en þeir lækkuðu og greiddu með bæði eldsneytiskostnaði og orkukostnaði að öðru leyti. Þeir greiddu með því. Ríkið tók það á sig af því að þetta ríki er ekki bara ríki auðmanna og bara fyrir fyrirtæki. Nei, það var einhvern veginn eins og þeir væru ríki fyrir allt samfélagið, enda eru þeir búnir að ná verðbólgunni á mettíma niður fyrir neðri vikmörk Seðlabanka Íslands. Ég veit ekki hvort maður lifir það einu sinni að sjá það kraftaverk gerast, a.m.k. ekki ef kjósendur ætla að halda áfram að kjósa yfir sig holskeflu af þessum vanhæfu stjórnendum eins og við erum búin að þurfa að þola hér og nú. Ég fæ aldrei nóg af því að segja að hér í september 2017 var hæstv. forsætisráðherra Katrín Jakobsdóttir í þessum æðsta ræðustóli landsins, þá var hún að svara stefnuræðu þáverandi forsætisráðherra, sem var Bjarni Benediktsson, hæstv., enginn annar, og hér stóð hún í stjórnarandstöðu og sá skýrt. Hún sá alla myndina, að það, virðulegi forseti, að láta fátækt fólk bíða eftir réttlætinu er það sama og að neita því um réttlæti. Ég bara spyr: Eruð þið að upplifa það að nákvæmlega þessi orð séu að skila sér inn í Stjórnarráð Íslands? Eru þessi orð marktæk að einhverju leyti? Var eitthvað að marka það í vaxandi fátækt, örbirgð, okurvöxtum og brjálæði þar sem í rauninni þessi ríkisstjórn hefur ekki þorað að axla ábyrgð á því efnahagsástandi sem við erum að glíma við í dag? Það liggur algjörlega á borðinu. Við getum náð í fullt af peningum. Við getum náð í fullt af peningum ef við bara reynum einhvern tíma að ná í þá þangað sem þeir eru fyrir, þar sem allar hirslur eru fullar fjár og við getum hæglega deilt því jafnar niður á þegnana. Við getum hæglega hjálpað fólkinu upp sem er að drukkna. Við getum hæglega gert það. En þessi ríkisstjórn mun ekki gera það. Það liggur á borðinu.

Maður sér náttúrlega hvert pólitíkin stefnir. Við sjáum það að einn flokkur í ríkisstjórninni á frekar erfitt, Vinstri græn, og er ekki að skora hátt í skoðanakönnunum vegna þess að þeir eru í rauninni að koma á óvart. Það er ekki gott að búa í svona sambýli en við skulum sjá hvernig spádómar Ingu Sæland rætast hérna á næsta ári þegar þeir eiga ekki neinn annan kost en að sprengja þessa ríkisstjórn til að reyna að ná vopnum sínum á ný. Þá skulum við sjá hvernig það gengur. En ég ætla að vona alla vega að þetta gullfiskaminni kjósenda fari nú aðeins að hjarna við og þeir fari að átta sig á því hvar þeir eiga von og hverjir það eru sem raunverulega hefðu dug, þor, getu og visku til að gera hlutina betri en þeir eru í dag.