fjárlög 2024.
Virðulegur forseti. Nú standa yfir umræður um það lagafrumvarp sem hefur hvað mest áhrif á líf fólks hér á landi, fjárlagafrumvarpið fyrir næsta ár. Það ætti engum að koma á óvart að mælendaskrá fyrir þetta frumvarp er þéttsetin og sitt sýnist hverjum. Fyrir hinn almenna borgara og sum okkar sem á Alþingi sitjum er þetta frumvarp, sem er einar 370 síður, eins og latína og erfitt að skilja það sem þarna er lagt fram. Fyrir þingmann eins og mig sem er á mínu fyrsta kjörtímabili var mikill fengur að hafa fjárlaganörd með mér í flokki, hv. þm. Björn Leví Gunnarsson, en eftir hans löngu setu hér á þingi, og hann var nær alltaf fulltrúi Pírata í hv. fjárlaganefnd, hefur hann ansi góða innsýn inn í það hvernig þetta flókna frumvarp virkar.
Við fyrstu sýn gæti maður haldið að frumvarpið gengi aðallega út á það að deila út fjármagni til hinna og þessara sviða og aðalumræðurnar séu um það hvort styrkja eigi náttúruminjasafn í þessu þorpi eða byggðasafn í hinu næsta. Sannleikurinn er hins vegar sá að undirliggjandi eru í raun mun dýpri ákvarðanir sem hafa djúpstæð áhrif á það hvers konar samfélagi við búum í. Þetta á sérstaklega við um það hvers konar hagstjórn við viljum iðka hér á landi. Þegar kemur að hagstjórn þá er mikilvægt að hafa í huga að það eru til margar kenningar og aðferðafræði, sumt er gott og annað ekki eins gott. Það er líka mikilvægt að átta sig á því að mismunandi hagstjórn getur komið sér vel eða illa fyrir mismunandi hópa þjóðfélagsins. Sumar eru byggðar á því að láta markaðinn ráða öllu á meðan aðrar reyna að jafna ábyrgðina og áhrifin á mismunandi þjóðfélagshópa.
Það er líka vert að hafa í huga að það eru engar töfralausnir til þegar kemur að því að tækla það ástand sem við lifum við núna þar sem vextir og verðbólga eru há. Við tökum ekki upp evru á morgun og allt verður miklu betra. Til að tækla svona ástand þurfum við samhent átak, ekki bara á einu sviði heldur öllum. Að sama skapi er varhugavert að festast í eldgömlum kreddum úr hagfræðinni eins og að alls ekki megi hækka skatta og aðalatriðið sé að skera niður báknið. Stundum þurfum við nefnilega að fjárfesta til skamms tíma til að spara til lengri tíma. Stundum þurfum við líka að jafna byrðina með því að fá þá sem þéna nóg til þess að styðja við þá launalægstu sem verða hvað verst úti í hávaxta- og háverðbólguumhverfi.
Þegar rýnt er í fjárlagafrumvarpið sjálft og hin ýmsu nefndarálit sem því fylgja er áhugavert að sjá þá nálgun sem mismunandi flokkar horfa til þegar kemur að hagstjórninni. Það væri ansi athyglisvert að sjá þá útkomu sem yrði ef breytingartillögur allra flokka yrðu samþykktar. Það er alls ekki svo víst að útkoman yrði eitthvað verri fyrir almenning en sú sem kemur í raun upp úr kafinu í lok næsta árs þegar áföll og sértækar aðgerðir hafa leitt til margvíslegra ófyrirséðra fjárútláta. En kannski er það meira verkefni fyrir einhvern í doktorsnámi í hagfræði.
Það er hins vegar athyglisvert að rýna dýpra í frumvarpið og nefndarálitin og sjá hinar mismunandi áherslur. Þar eru flokkarnir mjög oft að tala til sinna kjósenda með aðgerðum sem þeir telja að samrýmist opinberum stefnum sínum. Sjálfstæðisflokkurinn vill sýna fram á stöðugleika sem í raun þýðir að skattar séu ekki hækkaðir á þá ríku og að báknið sé skorið niður. Framsókn vill tryggja að bændastéttin lifi af. Flokkur fólksins vill bæta kjör öryrkja og aldraðra. Samfylkingin vill tryggja jöfnuð og við Píratar viljum bjarga umhverfinu með grænum hvötum. Inni á milli í tillögum allra flokka er að finna góðar hugmyndir um það hvernig við sem þjóð getum haldið áfram að blómstra á sama tíma og við tryggjum að enginn sé skilinn út undan og að umhverfið líði ekki fyrir vöxt samfélagsins.
Vandamálið er hins vegar það að þegar kemur að hagstjórninni þá virðist það vera ómögulegt fyrir okkur stjórnmálamenn að hlusta á hvert annað og þeim mun síður að viðurkenna að einhver annar en við sjálf geti komið með góðar hugmyndir. Eru hugmyndir Samfylkingarinnar um hvernig nýta megi vaxta- og barnabætur í auknum mæli til að styðja við bakið á barnafjölskyldum og ungu fólki lausn sem vert væri að skoða til hlítar? Eflaust. En fyrst sú hugmynd kom frá Samfylkingunni þá er enginn séns að það sé farið í grandskoðun á henni og þeim mun síður að ríkisstjórnin taki hana upp á sína eigin arma. Eru allir þeir öryrkjar og ellilífeyrisþegar sem daglega hafa samband við hv. þm. Ingu Sæland bara einhverjir vælukjóar eða er fullt af götum í núverandi kerfi sem þarf að laga? Já, ég er nokkuð viss um að það er fullt af hlutum sem betur mættu fara en því miður, fyrst ábendingarnar koma í gegnum rangan aðila, er ekkert hlustað á þær.
Ég gæti haldið áfram að tala um ábendingar okkar Pírata um þörf á frekari grænum hvötum en ég held að þið séuð kannski farin að átta ykkur á því að eins og staðan er á Alþingi í dag þá er ekki hlustað á góðar hugmyndir, einfaldlega af því að þær koma ekki frá þeim sem eru við völd.
Ég er kannski svona einfaldur í hugsun að ég trúi því að allir geti komið með góðar hugmyndir og að með því að hlusta á hvert annað gætum við komið með betri lausnir til handa því samfélagi sem við búum í. Við höfum dæmi úr sögunni, t.d. þegar nýsköpunarstjórnin fræga var stofnuð. Þar voru leiðtogar sem voru tilbúnir að hlusta á ólík sjónarmið og finna hinn gullna meðalveg sem leiddi til þess að við Íslendingar hættum að vera þróunarland og urðum ein af ríkustu þjóðum heims í dag. Við þurfum einnig að muna að það samfélag og það umhverfi sem við lifum við í dag er gjörólíkt því sem við höfum lifað við undanfarna áratugi. Okkur fjölgar mjög ört, ekki vegna þess að við séum duglegri að búa til börn heldur vegna þess að landamæri, a.m.k. innan Evrópu, heyra nú sögunni til og íbúar á EES-svæðinu geta á auðveldan hátt flust hingað til lands til að vinna, sem betur fer, því að á síðustu tíu árum höfum við upplifað ótrúlegan vöxt þegar kemur að komu ferðamanna hingað til lands. Hingað koma nú fimm sinnum fleiri ferðamenn á hverju ári en íbúar þessa lands. Sú þróun hefur tryggt okkur Íslendingum hagvöxt ár eftir ár en á sama tíma kallar það á breytingu. Hvar værum við án allra þessara útlendinga sem koma hingað til lands til að vinna? Við gætum svo sannarlega ekki sinnt öllum þessum ferðamönnum ef þeir hefðu ekki valið að koma hingað.
Við lifum líka í samfélagi þar sem fólk lifir lengur en það gerði fyrir örfáum áratugum. Það þýðir einnig að aldursdreifing breytist og kostnaðurinn við að sinna fólki eftir að það hættir að vinna eykst. Við erum með heilbrigðiskerfi sem nú þarf að vera tilbúið að þjónusta ekki bara íbúa þessa lands heldur líka alla þá ferðamenn sem veikjast eða slasast. Við erum með skólakerfi sem nú þarf að takast á við þá áskorun að 20% nemenda tala ekki íslensku sem sitt móðurmál. Við erum með skattkerfi sem er að mestu leyti byggt upp miðað við að fólk sé starfsmenn fyrirtækja á meðan raunin er að stærri og stærri hópur fær sínar tekjur skattlagðar í gegnum mun lægri fjármagnstekjuskatt.
Já, við þurfum að aðlaga okkar samfélag og okkar hagkerfi að breyttum tímum. Við þurfum að hætta að lifa í fortíðinni og takast á við fjölbreytileikann sem samfélagið okkar stendur frammi fyrir. Þar þýðir ekkert að vera með íhaldssemi og trúa því að fyrst við höfum alltaf gert hlutina á einn veg þá þýði það að slík leið muni ávallt virka í framtíðinni. Það er kominn tími til þess að við tökum hagkerfið okkar til gagngerrar endurskoðunar, að við sameinumst um lausnir sem tryggja möguleika okkar til þess að takast á við áskoranir framtíðarinnar, hagkerfi þar sem tækifærin eru ekki heft en á sama tíma er öryggisnet sem tryggir öllum grundvallarlífsviðurværi. Ef við hlustuðum á hvert annað og nýttum okkur þau gögn sem til eru þá er ég viss um að hægt væri að koma hér á velferðarsamfélagi þar sem nýsköpun og framtakssemi er verðlaunuð.
Eitt stærsta verkefni næsta árs er að ráða niðurlögum á verðbólgunni og tryggja að hér sé lægra vaxtastig. Það næst ekki með gífuryrðum úr þessum ræðustól eða með keppni um hverjir skrifa fleiri greinar í fjölmiðla eða fá flest læk á samfélagsmiðlum við skammir eða faguryrði um eigin hugmyndir. Ef við virkilega viljum ráðast á verðbólgudrauginn þá þurfum við samstillt átak. Við þurfum að fá sameiginlegan skilning á því hvað það er sem heldur í raun uppi verðbólgunni. Þar þurfum við að hafa opinn aðgang að öllum þeim gögnum sem fyrir liggja. Síðan þurfum við að skoða hvern áhrifaþátt fyrir sig og ná saman um aðgerðir til að lækka hana, bæði aðgerðir sem hægt er að fara í strax en líka aðgerðir til lengri tíma. Einhverjar aðgerðir hafa neikvæð áhrif á hópa samfélagsins og þá þurfum við að finna leiðir til þess að draga úr þeim áhrifum hjá þeim sem líða hvað mest fyrir þær. Á sama máta eru aðrir í samfélaginu sem eru með breiðari bök og geta þannig tekið á sig meiri byrði í þessu samstillta átaki við að lækka vexti og verðbólgu.
Áhrif gjaldahækkana hjá ríki og sveitarfélögum spila þarna inn í og er þá nauðsynlegt að finna leiðir til þess að afla fjár á annan máta frá þeim sem eru aflögufærir. Já, þarna þarf kannski að skoða hluti eins og að hækka skatta á fjármagnstekjur eða að hækka auðlindagjöld. En það er mikilvægt að við sláum ekki allar hugmyndir sem þetta snerta út af borðinu einfaldlega af því að þær samrýmast ekki stefnu sem miðast við góðæristímabil.
Við þurfum einnig að finna leiðir til að hagræða í rekstri ríkisins en eins og öll okkar sem höfum verið í rekstri þekkjum þá þýðir ekki að fara bara í flatan niðurskurð. Við sjáum það einna best innan heilbrigðisþjónustunnar þar sem niðurskurður í legurýmum og hjúkrunarheimilum orsakar það að bráðamóttakan yfirfyllist af fólki sem ekki er hægt að útskrifa annað. Dagurinn á bráðamóttöku kostar fimm til tíu sinnum meira en dagurinn á legudeild og þannig hleðst einfaldlega upp vandinn. Aðgerð sem átti að spara leiddi í raun til miklu hærri útgjalda. Í staðinn fyrir þetta þurfum við að fara í betur hugsaðan niðurskurð þar sem hann á við og einnig þurfum við stundum að fara í fjárfestingar til skemmri tíma sem munu leiða til sparnaðar og hagræðingar til lengri tíma. Aftur er þetta eitthvað sem við sem höfum verið í rekstri þekkjum vel. Skammtímafjárfesting skilar oft margföldum sparnaði til framtíðar. Hættum því að fara af stað með hinn bitlausa niðurskurðarhníf og förum frekar í gagngera vinnu við að umbylta og spara til framtíðar.
Áður en ég lýk máli mínu langar mig að nefna þrjú atriði sem ég tók eftir við skoðun á frumvarpinu með núverandi breytingartillögum meiri hlutans sem ég reikna með að verði samþykktar hér seinna í vikunni. Í fyrsta lagi hefst nefndarálit meiri hlutans á því að fjalla um óvissuna vegna jarðhræringa á Reykjanesskaga og síðan er fjallað um að mikilvægt sé að fara í mótvægisaðgerðir og stórauka áherslu á forvarnir þegar kemur að náttúruvá. Öllu þessu er ég hjartanlega sammála en því miður virðist alveg skorta á að meiri hlutinn sé að setja sérstakt fjármagn í að byggja upp áfallaþol samfélagsins til lengri tíma. Það er von mín að þarna sé hægt að bæta úr enda nokkuð fyrirséð að við sem þjóð þurfum á næstunni ekki einungis að eiga við aukna eldvirkni á Reykjanesskaga heldur einnig takast á við auknar afleiðingar loftslagsbreytinga.
Í öðru lagi tel ég að það fjármagn sem ætlað er til Úkraínu á næsta ári sé verulega vanmetið. Jafnvel þó að stríðinu ljúki á morgun er mikið uppbyggingarstarf fram undan og við Íslendingar komumst ekki hjá því að taka virkan þátt í slíku. Að sama skapi er ekkert fjármagn eyrnamerkt í að takast á við afleiðingar hinna skelfilegu átaka í Miðausturlöndum en þar þurfum við Íslendingar einnig að leggja okkar af mörkum.
Í þriðja lagi er sorglegt að sjá að stuðningur ríkisins við starf Samtakanna '78 er smánarlega lítill á tímum þar sem verulegt bakslag hefur orðið í réttindabaráttu hinsegin og kynsegin fólks. Sem sú þjóð sem hefur stigið hvað lengst í þessari baráttu er mikilvægt að við stöndum þétt við bakið á þeim sem finna hvað mest fyrir þessu bakslagi. Samtökin '78 reka ótrúlega mikilvæga og öfluga ráðgjafarþjónustu sem ásóknin hefur stórlega aukist í eftir að bakslagið reið yfir. Þar hefði ég viljað sjá stjórnvöld taka mun virkari þátt. Ég treysti á það að stjórnarþingmenn sýni stuðning sinn í verki þegar kemur að þessari baráttu.
Nýlega urðu lyklaskipti í fjármálaráðuneytinu en flest af því sem hér er rætt var þegar meitlað í stein þegar nýr ráðherra tók við lyklunum. Hæstv. núverandi fjármála- og efnahagsmálaráðherra hefur sýnt það í fyrra starfi sínu sem utanríkisráðherra að hún er tilbúin til að starfa þvert á flokka þegar kemur að krísum eins og t.d. innrás Rússa í Úkraínu. Ég skora því á hæstv. fjármála- og efnahagsráðherra að sýna sama samstarfsvilja þegar kemur að því að takast á við þá efnahagskrísu sem við stöndum frammi fyrir, að vera tilbúinn til að hlusta á hugmyndir annarra flokka, að vera tilbúinn til að aðlagast breyttum tímum og að finna hinn gullna meðalveg sem tryggir betra samfélag fyrir alla.