fjárlög 2024.
Virðulegur forseti. Ég þakka hv. þm. Birni Leví Gunnarssyni fyrir andsvarið. Jú, ég hef velt fyrir mér borgaralaunum en það sem stingur mig mest er að ég myndi aldrei geta sætt mig við borgaralaun fyrir alla. Útgerðarkóngar með milljarðagróða, menn með 10–15 milljónir í mánaðarlaun — ég vil ekki að þeir fái — og þeir þurfa ekki á neinu að halda. Hér er bent á þennan hóp sem er í fátækt og þessa 72 milljarða, en við vorum búin að reikna út 400.000 kr. skatta- og skerðingarlaust með því að breyta líka persónuafsláttarkerfinu því að þeir sem eru komnir yfir milljón hafa ekkert með persónuafslátt að gera í sjálfu sér. Þeir finna ekki mikið fyrir því. Ég held að við myndum ekki finna neitt rosalega mikið fyrir því þótt að hann hyrfi, hvað þá menn sem eru með 3 milljónir, 10 milljónir eða meira á mánuði. Þeir myndu aldrei taka eftir því, held ég, ef þeir misstu þessa smáaura. En síðan er hitt, þessi stóri hópur í fátækt, 47.000 manns, og svo höfum við þessi 49.000 sem fá á sig skerðingar, þetta eru þannig tölur. Ég komst í skýrslu frá Bretlandi um fátækt, konur í fátækt. Þar kom fram að þær missa sjö ár og jafnvel meira af ævi sinni vegna fátæktar. Það sýnir okkur bara hversu grafalvarlegt þetta mál er. Ég er alveg sannfærður um að það kostar ekki að koma fólki úr fátækt, við græðum á því að koma fólki úr fátækt, stórgræðum á því á allan hátt og ég held að það myndi sérstaklega koma fram í heilbrigðiskerfinu okkar.