154. löggjafarþing — 44. fundur,  6. des. 2023.

fjárlög 2024.

1. mál
[20:33]
Horfa

Frsm. 1. minni hluta fjárln. (Björn Leví Gunnarsson) (P) (andsvar):

Forseti. Mér finnst það dálítið áhugavert að flokkur sem berst fyrir skatta- og skerðingarlausri lágmarksframfærslu sé á móti persónuafslætti því að skattkerfið er stillt þannig að það eru skattþrep og eftir því sem fólk kemst í hærra skattþrep — það má alveg líta á það sem svo að það sé þar í rauninni til þess að núlla út áhrif persónuafsláttarins, þótt hann sé þarna. Það er bara einfaldara að hafa þetta flatt í framfærslunni. Þau sem eru með hærri tekjur borga líka hærri skatt sem núllar þá út grunnframfærsluna. Persónuafsláttur sem slíkur er í rauninni ákveðin tegund borgaralauna, bara með þessu eina skilyrði að þú sért með tekjur. Ef þú fjarlægir það skilyrði þá ertu í rauninni kominn með borgaralaun hvað það varðar. Það er nefnilega áhugavert að skoða tilfærslukerfi eins og þau eru núna. Eins og ég sagði áðan þá eru um 48.000 einstaklingar undir þessum mörkum. Án barna- og húsnæðisbóta eru þeir 55.000. Það eru ekki nema um 7.000 sem barna- og húsnæðisbæturnar bjarga úr fátækt. Ég held að það sé einmitt vegna þessa skerðingarhrings þegar allt kemur til alls. Við þorum ekki að taka skrefið einhvern veginn af hræðslu við að það kosti svo mikið. En að hluta til áttum við okkur ekki á afleiddum kostnaði, samfélagslegum kostnaði sem við erum að borga út af því að við þorum ekki að taka skrefið og fjárfesta í því að losa samfélagið úr fátækt.