fjárlög 2024.
Virðulegur forseti. Ég verð að segja að að mörgu leyti er þetta rétt sem hv. þm. Björn Leví Gunnarsson er að tala um hér, með þessi skerðingarkerfi, enda var ég að ræða einmitt þetta furðulega kerfi sem virðist ná út um allt. Þetta er eins og kolkrabbi með endalausa arma. Þetta kerfi er eiginlega orðið svo mikill óskapnaður að það hefur enginn yfirsýn yfir það. Við erum að búa til barnabætur, vaxtabætur, styrki, frítekjumörk, alls konar úti um allt og látum það kannski vera óbreytt í tíu, 12, 15 ár og síðan verða allir svo hissa að það séu alltaf fleiri og fleiri að detta í fátækt. En það er einmitt vegna þess hvernig kerfið er byggt upp. Ef borgaralaun væru 200.000 kr., skattlaus peningur, væru þeir sem við erum að tala um að fái 400.000 kr. skatta- og skerðingarlaust komnir í 550.000 kr. skatta- og skerðingarlaust í sjálfu sér, nokkurn veginn, það fer nú eftir því hvernig það er reiknað út. (Gripið fram í.) Þá fengir þú þennan pening ofan á þann sem þú hefur fyrir. Ef þú ert með 350.000 kr. útborgaðar og fengir 200.000 kr. í viðbót þá ertu kominn með 550.000 kr. í vasann og fyrir marga væri það auðvitað alveg kjörið. (BLG: Í staðinn fyrir persónuafsláttinn.) Varðandi persónuafsláttinn þá erum við með þessa útfærslu. Við vorum búin að reikna það út með þessari útfærslu kostaði þetta ekki nema um 40 milljarða.