154. löggjafarþing — 44. fundur,  6. des. 2023.

fjárlög 2024.

1. mál
[21:18]
Horfa

Frsm. 1. minni hluta fjárln. (Björn Leví Gunnarsson) (P) (andsvar):

Frú forseti. Ég hef voðalega gaman af tölum og hv. þingmaður talaði hérna mikið um eyðslusemi ríkisstjórnarinnar og skattpíningu hennar og annað. Við vitum öll hvernig krónan virkar og verðbólgan, þ.e. krónur í dag eru ekkert sömu krónur og voru t.d. 2014. Það segir ekkert mikið að landsframleiðslan árið 2014 hafi verið 2.000 milljarðar en sé núna 4.500 milljarðar því það eru ekki sömu krónurnar þarna á bak við, þótt talan sé vissulega hærri o.s.frv. Stundum hjálpar því að skoða hlutfall af landsframleiðslu, hversu stórt ríkið er með tilliti til landsframleiðslu. Það er ákveðinn samanburður á því hversu margir bjuggu hérna þá og núna og við reynum að fá sömu útkomu miðað við þetta hlutfall, hversu stórt ríkið er af landsframleiðslunni í heild sinni.

Árið 2014 voru útgjöld ríkisins 30,8% af landsframleiðslu og tekjurnar voru 33%, sem sagt 33% af vergri landsframleiðslu tók ríkið til sín í formi tekna. 2018/2019 eru gjöldin 27,4% og 26,8%, sem sagt lægri en þau voru 2014, og tekjurnar voru 29,1% og 27,4%, lægri en 2014. Þetta er ekkert einsdæmi. Árið 2015 fóru 28,8% í útgjöld og 29,7%, svipað og var 2018/2019. Árið 2016 er síðan mjög skrýtið ár, þegar leiðréttingin var, en þá fóru 34,6% í útgjöld og 46,3% í tekjur, enda mjög skrýtið ár (Forseti hringir.) og kannski ekki alveg viðmiðunarhæft. En ég sé í rauninni ekki (Forseti hringir.) muninn á tekjum og gjöldum hlutfallslega miðað við landsframleiðsluna á kjörtímabilinu (Forseti hringir.) sem hv. þingmaður var að vitna til sem forsætisráðherra og þeim hlutföllum sem nú eru í gangi.