fjárlög 2024.
Frú forseti. Ég er nú ekki viss um að ég hafi náð allri þessari talnarunu hv. þingmanns en tek þó undir með honum, ef ég skildi hann rétt, að það væri eðlilegt að líta á hlutfall af landsframleiðslu þegar við skoðum hversu mikið ríkið tekur til sín. Ég er ekki alveg viss um að það hafi verið það sem hann var að segja en ég alla vega skildi hann þannig og hann leiðréttir mig þá. En varðandi muninn á þessu kjörtímabili eða þessari ríkisstjórn sem nú situr og á kjörtímabilinu 2013 þá er munurinn augljós: Annars vegar var ríkisstjórn sem einsetti sér að reka ríkissjóð með afgangi, skila ekki halla, spara peninga til að draga úr vaxtakostnaði og nýta fjármagnið betur síðar í almannaþágu. Hins vegar erum við með ríkisstjórn sem rekur ríkið með gegndarlausum halla og slær öll met í því, eins og ég rakti í ræðu minni. Þannig að munurinn á þessum tveimur ríkisstjórnum á þessum kjörtímabilum hvað varðar efnahagsstjórn gæti vart verið skýrari.