fjárlög 2024.
Frú forseti. Ég þakka hv. þm. Sigmundi Davíð Gunnlaugssyni fyrir, fín umræða um þetta allt saman. Varðandi það sem sagt var hér í lokin, að gjaldmiðillinn bjóði upp á að það sé hér hægt að hafa stjórn á alls konar hlutum, þá þýðir þetta á mæltu máli að almenningur í þessu landi er látinn greiða fyrir hagstjórnarmistök með hærri verðbólgu og hærri vöxtum. Þetta er íslensk hagsaga í hnotskurn og þetta eru stjórnmálamenn á Íslandi enn að leika. Þetta er kerfi sem hefur farið illa með íslenskan almenning í gegnum tíðina, vil ég meina. Ég vil líka aðeins gera athugasemd við það sem hv. þingmaður talaði um í ræðunni sinni, sem var um margt ágæt eins og ég sagði líka, að það væri verið að tala niður íslensku krónuna. Þetta er einhvers konar varðstaða sem menn fara mikið í, að krónan sé einhvers konar tákn sem megi helst ekki tala illa um eða tala um í einhverju ákveðnu samhengi. En einmitt eins og hv. þingmaður segir þá er hún bara mælikvarði á tiltekna hluti en ekki eitthvert helgitákn og gjaldmiðill sem þolir það illa að vera andlag gagnrýninnar umræðu á örmyntsvæði í gríðarháu vaxtastigi og hárri verðbólgu er auðvitað ekki á vetur setjandi, vil ég meina. Mig langar líka að draga það fram í þessu andsvari mínu, af því að hv. þingmaður vísaði til núverandi utanríkisráðherra sem var fjármálaráðherra um langt skeið, að hæstv. ráðherra hefur sjálfur skrifað greinar um það þar sem hann hefur nákvæmlega talað um það að íslenska krónan geti verið okkur fjötur um fót og sé það. Ég ætla ekkert að draga fjöður yfir það að það að breyta um gjaldmiðil tekur auðvitað ekkert af okkur skylduna til að beita hagstjórninni með skilvirkum hætti, bara engan veginn. Þannig að ég vona nú að Miðflokkurinn fari að sjá frekar bandamann í okkur í Viðreisn þegar kemur að gjaldmiðlamálum frekar en einhvern andstæðing.