154. löggjafarþing — 44. fundur,  6. des. 2023.

fjárlög 2024.

1. mál
[22:27]
Horfa

Sigmar Guðmundsson (V):

Frú forseti. Við erum núna að ræða í 2. umræðu fjárlagafrumvarp ríkisstjórnarinnar. Það hefur margt áhugavert komið fram í þessari umræðu, svo sem eins og alltaf. Það sem mig langaði að gera í minni ræðu er svona aðeins að renna í gegnum stærri myndina ásamt því að fara í gegnum ákveðna liði þegar líður á ræðuna.

Ég er þeirrar skoðunar að það sé eitt af okkar meginhlutverkum hér í þessum sal að fara eins vel með peninga skattgreiðenda og við mögulega getum. Á sama tíma þurfum við auðvitað að huga vel að því að fjármagna velferðarkerfin okkar vel, við þurfum að fjármagna heilbrigðiskerfi, alla menntun sem við setjum fjármuni í, við þurfum að huga vel að samgöngumálum og löggæslu og öllum þessum kerfum sem við viljum halda gangandi, sem þýðir þá aftur ef við ætlum að fara vel með peninga skattgreiðenda að við þurfum að vera svolítið grimm í því að forgangsraða vegna þess að núna eru tímarnir þannig að það er mjög há verðbólga á Íslandi eins og við þekkjum og mjög háir vextir. Þetta litar auðvitað alla umræðu um stjórnmál og alla umræðu um fjármál ríkisins. Það segir sig alveg sjálft. Þetta litar auðvitað alla umræðu um fjárhag fyrirtækja, sveitarfélaga og auðvitað heimilisbókhaldið hjá okkur öllum, öllum fjölskyldum landsins. Það er ofur einfaldlega allt undir þegar verðbólgan er svona há og vextirnir svona miklir. Það setur okkur í þá stöðu að við verðum að forgangsraða vegna þess að það er ekki gott, eins og lagt er upp með í þessu frumvarpi, að skila ríkissjóði með miklum halla ár eftir ár þegar menn eru að reyna að slá á þenslu í hagkerfinu með því að hækka vexti.

Ein afleiðingin af þessu sem við sjáum er t.d. sú að partur af þeim tekjuauka sem verður í fjárlögunum, þeim viðbótartekjum sem ríkið fær óvænt inn, er einmitt vegna verðbólgunnar. Sumir umsagnaraðilar um fjárlagafrumvarpið hafa bent á að þetta megi kalla einhvers konar tekjufroðu. Það er þetta sem ég er að reyna að undirstrika þegar ég tala um að við séum á svolítið varasömum tímum, því að það er rosalega auðvelt að láta svona fjármuni sem koma til út af einhverju tilteknu ástandi seytla inn í allan daglegan rekstur ríkisins, en þessar tekjur eru ekki hjá okkur til langframa. Við erum jú auðvitað að reyna að stemma stigu við verðbólgunni og ná henni niður og það mun þá aftur líka hafa áhrif á tekjuhlið ríkisins þannig að við þurfum að fara svolítið varlega og vera svolítið dugleg í því að forgangsraða. Minn flokkur hefur alltaf verið mjög skýr í því að við viljum auðvitað sjá mjög öflugt velferðarkerfi en til að knýja áfram þetta velferðarkerfi þá þarf að huga vel að markaðslausnum alls staðar þar sem því verður við komið. Það má vel nýta þjónustu einkaaðila í auknum mæli í heilbrigðiskerfinu til að auka skilvirkni þar, þá í formi einkarekstrar og hér er enginn að tala um neina einkavæðingu því að þetta er auðvitað sitthvor hluturinn, bara svona eins og ég nefni, en markaðurinn á sem sagt að standa undir þeim verðmætum sem við nýtum í velferðarkerfunum okkar og við erum sammála um að þurfi að vera sterk og öflug.

Hins vegar er forgangsröðunin hjá þessari ríkisstjórn ekki góð. Þetta er vont fjárlagafrumvarp og það er eiginlega svo vont að það er ekki hægt að gera neitt annað en að gagnrýna það alveg afskaplega harðlega. Ég segi þetta vegna þess að stjórnarflokkarnir virðast lítið hafa gert í eða þá a.m.k. ekki náð samkomulagi um að fara í þá endurskoðun sem þarf að fara í á málefnasviðum ríkisins til þess að vinna með Seðlabankanum í því verkefni að ná niður verðbólgunni. Ég átta mig alveg á því að það sem er verið að tala um hér er stundum sársaukafullt. Það getur verið sársaukafullt og snúið að koma böndum á útgjöld ríkisins vegna þess að útgjaldaþrýstingurinn er jú alla jafna mjög mikill og ekki síst í þessum sal þannig að þetta getur verið snúið og sársaukafullt verkefni. Engu að síður er þetta bara nákvæmlega það sem hvert einasta heimili og hvert einasta fyrirtæki á Íslandi er að gera um þessar mundir, að forgangsraða fjármunum sínum, að sleppa útgjöldum sem mögulega er hægt að slá á frest eða jafnvel ýta til hliðar endanlega og leggja frekar peningana í nauðþurftir og það sem við komumst ekki hjá að borga. Þetta eru í raun og veru sömu lögmál sem eiga við eða sama hugsun sem þarf að eiga sér stað í ríkisfjármálunum og á sér stað hjá heimilum landsins við eldhúsborðið og er daglegt brauð í umræðu í rekstri í öllum fyrirtækjum landsins, hygg ég að hljóti að vera.

Það verður bara að segjast eins og er, eins og bent hefur verið á svo sem af sumum þingmönnum á undan mér í þessari umræðu, að vinir skattgreiðenda eru allt of fáir í þessum sal þegar svona árar í samfélaginu, því miður. Það er því miður þannig að það er ofboðslega holur hljómur í málflutningi mjög margra stjórnarþingmanna sem í einu orðinu gagnrýna það sem þeir hafa sjálfir orðað sem svo að sé stjórnlaus útgjaldaaukning ríkissjóðs en eru síðan alltaf á græna takkanum þegar ríkisstjórnin sjálf er að leggja til aukningu á útgjöldum í ýmislegt sem manni virðist að sumir þingmenn séu þó í hjarta sínu kannski ósammála um að gera.

Þetta birtist okkur, þessi hugsun sem ég er að nefna, auðvitað líka í því hvernig menn vilja fjármagna útgjöldin. Fyrsta viðbragð er oft að fara í pyngju almennings eða í bókhald fyrirtækjanna í formi skatta eða gjalda og gjarnan er það rökstutt ýmist með því að um sé að ræða eitthvað tímabundið, en við vitum jú öll að tímabundnir skattar eru nú sjaldnast tímabundnir. A.m.k. eru þeir oft gildandi lengur en upphaflega var fyrirhugað og þetta verða oft bara varanlegar hækkanir. Við sáum það t.d. núna þegar við vorum að bregðast við náttúruhamförunum við Svartsengi og í Grindavík að þegar reisa átti garðana þá var fyrsta viðbragð: Við skulum hækka skatta. Auðvitað var það rökstutt með því að þetta væri ekkert svo mikið á hvern einstakling, sem er í sjálfu sér alveg rétt. En það var alger óþarfi að fara í þessa skattahækkun vegna þess að við erum með varasjóð sem hefur beinlínis það hlutverk að mæta útgjöldum sem þessum. Ég segi þetta ekki vegna þess að það sé endilega einhver galin ráðstöfun til lengri tíma að haga málum með þeim hætti sem gert var en það þarf þá a.m.k. að gera það með þeim formerkjum að það sé rætt almennilega hér á þingi og það sé hægt að kalla hagaðila fyrir nefnd til að fara yfir áhrifin af slíku. En það var auðvitað ekki gert vegna þess að það lá mjög mikið á að samþykkja lögin. Þetta finnst mér vera svolítið viðbragðið og nú er t.d. verið að hækka skatta á fyrirtæki á næsta ári. Það á að vera tímabundin aðgerð og það verður mjög forvitnilegt að sjá hvort ríkisstjórnin, með þeirri útgjaldagleði sem þar ræður ríkjum, standist þá freistingu að lækka skattinn aftur út frá gefnum loforðum áður. Þetta eru svona almenn varnaðarorð sem við verðum auðvitað að hafa í huga þegar við erum að ræða um fjármál ríkisins.

Ég vil líka fá að undirstrika það hér, eins og ég og mjög margir aðrir þingmenn hafa verið að gera, bæði við þessa umræðu og núna undanfarin misseri, að það gengur ekki að Seðlabankinn sé einn settur í það hlutverk að berjast gegn verðbólgunni. Það þýðir stjórnlausar vaxtahækkanir út í eitt og ef ríkisfjármálin spila ekki með aðhaldi þá er auðvitað Seðlabankinn einn á berangri í baráttunni. Ég ætla að gagnrýna það hér við þessa umræðu, líka mjög harðlega, að ráðherrar í ríkisstjórninni hafi hálfpartinn talað með þeim hætti að þetta væri jú lögbundið hlutverk Seðlabankans og aðalatriðið hjá ríkisvaldinu væri að flækjast ekki fyrir. Það er auðvitað ekki rétt greining á stöðunni vegna þess að ríkisfjármálin þurfa að styðja við það sem Seðlabankinn er að gera. Það er ekki nóg að fjárlögin séu að mati Seðlabankans hlutlaus, það er bara ekki nóg. Þau eiga að styðja við, þau eiga að hjálpa bankanum og það er ekki gott þegar ráðherrar tala með þeim hætti að það eina sem ríkisstjórnin eigi að gera í ríkisfjármálunum sé að flækjast ekki fyrir bankanum. Hlutverkið er jú miklu stærra og meira og ábyrgðin meiri hér í þessum sal. Það verðum við að hafa í huga þegar við erum að ræða um fjárlög ríkisins.

Ég ætla líka að fá að segja áður en ég fer ofan í einstaka liði í þessu að einn stærsti efnahagsvandi þjóðarinnar núna er vissulega að verðbólgan og vextirnir og íslenska krónan að sjálfsögðu. En það er líka samsetningin á ríkisstjórninni. Það er ótrúlega bagalegt þegar svona árar í samfélaginu að við séum þá með ríkisstjórn sem er með flokkinn lengst til vinstri og flokk sem er langt til hægri að reyna að ná einhverri lendingu um fjárlög vegna þess að það kemur engin stefna. Niðurstaðan úr þessu er alltaf sú að það er farið í nokkurs konar flatan niðurskurð. Það er að vísu ekki farið fram á það sama gagnvart ýmsum velferðarkerfum, heilbrigðiskerfinu og öðru, og nokkrum öðrum málaflokkum þannig að hann yrði kannski ekki alveg flatur, niðurskurðurinn. En það virðist ekki hafa farið fram nein rýni inni í ráðuneytunum og þá eftir atvikum stofnunum ríkisins á því hvernig væri hægt að spara á hverju málefnasviði fyrir sig, mögulega með sameiningu stofnana. Það er jú einn og einn ráðherra sem hefur sýnt tilburði í þá átt. Ég ætla að nefna umhverfisráðherra og ég ætla að nefna menntamálaráðherra sem hefur a.m.k. komið með einhverjar hugmyndir, þótt þær hafi reyndar sumar verið skotnar niður og vel má færa rök fyrir því að þar hafi verið byrjað á vitlausum stað en tökum þó a.m.k. viljann fyrir verkið.

Þetta er auðvitað eitthvað sem við í Viðreisn höfum verið að tala lengi um að þurfi að vera algert hryggjarstykki á tímum sem þessum í ríkisfjármálunum; að við skoðum hverja krónu, öll útgjöld og játum það fyrir fólki og öllum okkur, alveg eins og fólk er að játa það við eldhúsborðið og menn eru að játa það inn í fyrirtækjum landsins og hjá sveitarfélögunum, að það þarf að fara vel með og við erum á tíma og erum á þeim stað í hagsveiflunni að núna er brýnt að menn komi böndum á útgjöldin. Þetta er auðvitað leiðinlegur söngur því að öll viljum við gera betur í öllum málaflokkum en þetta er engu að síður staðan. Ríkisfjármálin verða að vinna með Seðlabankanum í þessu verkefni, rétt eins og heimilin og fyrirtækin og sveitarfélögin eru að færa fórnir til að ná niður verðbólgu og þar með vöxtunum til lengri tíma.

Við erum sem sagt í grundvallaratriðum með allt aðra afstöðu til þess hvernig eigi að nálgast þessa vinnu heldur en stjórnarflokkarnir eru að leggja hér á borð í hverjum fjárlögum á fætur öðrum. Það má vel gagnrýna það að hallinn hér sem boðaður er sé 47 milljarðar á næsta ári. Það má vel færa rök fyrir því að það eigi eftir að hækka núna á milli umræðna vegna þess að við erum ekki enn þá búin að sjá það svart á hvítu hvað gerist með Grindavík og allar þær aðgerðir sem talað er um gagnvart bændum. Eitthvað á að fara inn í fjáraukalög til þess að mæta útgjöldum á þessu ári en miðað við hvernig menn hafa talað t.d. gagnvart aðgerðum til bænda þá fyndist mér nú ekkert ólíklegt að við ættum eftir að sjá einhvern aukinn halla, nema þá að ríkisstjórnin ætli að mæta því með einhverjum niðurskurði á móti.

Reyndar sýnist mér viljinn, og það má alveg lesa það í nefndaráliti meiri hlutans, miklu meiri til þess að mæta einhvers konar skorti á fjármagni með auknum lántökum frekar en að ráðast í uppstokkun á rekstri sem myndi þá vega upp á móti því. Við sjáum það t.d. þegar við erum að lesa nefndarálit meiri hlutans þar sem er verið að tala um Íslandsbanka og söluna á Íslandsbanka, og þar með er ég að nefna hinn mikla vilja ríkisstjórnarinnar til lántöku, þá er verið að benda á að ríkissjóður eigi rúmlega 40% hlut í Íslandsbanka og gert ráð fyrir því að á næsta ári verði helmingurinn seldur og svo er nú plan um að selja hinn helminginn á þar næsta ári og svo kemur:

„Í ljósi óvissu um útgjöld vegna jarðhræringa á Reykjanesskaga, lægri hagvaxtarspáa en áður var miðað við og væntinga um aukið atvinnuleysi er von á því að útgjöld gætu aukist meira en gert er ráð fyrir í frumvarpinu. Því ítrekar meiri hlutinn mikilvægi þess að vel sé staðið að sölunni á næsta ári til þess að auka sjóðstreymi til ríkisins og minnka lánsfjárþörf meðan vaxtastig er hátt.“

Þarna hefði vel mátt skrifa: Til að koma í veg fyrir sársaukafullar niðurskurðartillögur, eða eitthvað í þá veruna. En nei, fyrsta viðbragð er að taka frekari lán frekar en að fara í þá áttina. Þetta er tónninn, því miður, við fjárlagagerðina hér.

Ég ætla líka að fá að halda því hér til haga, sem er alveg ótrúlegt högg og mjög blóðugt fyrir okkur Íslendinga, sem er að vextir ríkissjóðs séu jafn háir og raun ber vitni. Við sjáum að vaxtagjöld ríkisins á þessu ári verða heilir 106 milljarðar kr. og við sjáum að það er gert ráð fyrir því að á næsta ári verði vextirnir 117 milljarðar kr. og gott ef sú tala eigi ekki eftir að hækka. Það gleymist nefnilega oft í umræðunni þegar við erum að tala um vextina að það eru ekki bara heimilin sem eru að kikna undan vaxtagreiðslum og fyrirtækin, og auðvitað finnur ríkissjóður líka heldur betur fyrir þessu. Hugsið ykkur það, við erum að tala um á tveimur árum meira en 200 milljarða í vexti. Stór hluti af þessu er vegna þess að íslenski ríkissjóðurinn fjármagnar sig með dýrum hætti af því að við borgum hærri vexti á Íslandi heldur en gengur og gerist í nágrannalöndunum.

Mig langar í þessu samhengi að vitna til að mynda til þess sem kom fram í Heimildinni á dögunum þar sem var verið að tala um vaxtagjöldin. Þar var verið að benda á að þau voru í erlendum samanburði verulega há strax í fyrra og sá samanburður hefur síst skánað í ár. Þetta er nú reyndar bara nákvæmlega það sama og við í Viðreisn höfum endalaust verið að tala um en svo segir:

„Af Evrópusambandsríkjunum hefur einungis Ítalía verið að greiða hærri vaxtagjöld en Ísland á ári þegar miðað er við hlutfall af landsframleiðslu.“

Hugsið ykkur það. Miðað við hlutfall af landsframleiðslu er Ítalía eina landið af Evrópusambandsríkjunum sem greiðir hærri vaxtagjöld en Ísland. Við erum samt með lægra skuldahlutfall en mjög margar af þessum sömu þjóðum. Skuldirnar okkar eru hins vegar svo dýrar. Það gildir nefnilega það sama um ríkissjóð, það er dýrt fyrir íslenska ríkið að skulda rétt eins og það er óheyrilega dýrt fyrir íslensk heimili og íslensk fyrirtæki að skulda. Þessi meinsemd er að koma í veg fyrir að við getum eytt háum fjármunum til að mynda í að gera skilvirkni heilbrigðiskerfisins okkar betri. Þetta er að koma í veg fyrir að við getum greitt niður skuldir til þess að lækka þá vaxtagjöld auðvitað enn frekar. Það verður að segjast alveg eins og er að þessar tölur eru með því grátlegasta sem sést í þessu fjárlagafrumvarpi.

Ég þreytist ekki á að segja það frekar en aðrir í mínum flokki að stór hluti þessa vanda, það er auðvitað ekkert hægt að skella öllum vandanum þangað, er auðvitað óstöðugleikinn sem hér er í hagkerfinu sem skapast af örmynt, lítilli mynt sem sveiflast um eins og korktappi, eins og lýst var í ágætum Kveiksþætti í gær. Það hefur enginn úti í hinum stóra heimi trú á þessum gjaldmiðli þannig að álag á allt hér á Íslandi er hátt, til að mynda þegar við erum að kaupa vörur úti. Við borgum hærra fyrir það, bara færslurnar, en aðrir vegna þess hvernig gjaldmiðillinn er að leika okkur. Þetta er risastór vandi sem menn þora einhvern veginn ekki að takast á við í þessum sal. Menn þora ekki einu sinni að viðurkenna fyrir sjálfum sér að íslenska krónan og verðbólgan og vextirnir sem af henni hljótast séu eitthvert sérstakt vandamál. Menn tala gjarnan um að þetta þýði í raun og veru að hagkerfið sé sveigjanlegt. Menn nota það orð gjarnan yfir vaxtaokrið og verðbólgubrjálæðið, sveigjanleiki, en það er bara ofur einfaldlega svoleiðis að íslenska ríkið er að borga í bein framlög í formi vaxta meira en 200 milljarða fyrir þennan sveigjanleika á yfirstandandi ári og á næsta ári.

Heimilin eru að greiða óheyrilega fjármuni líka. Sú upphæð hefur nú heldur betur verið að vaxa. Það er ekki hægt að segja neitt annað en það. Það má kannski nefna aðra grein sem birtist einmitt í sama blaði og ég vitnaði til áðan, í Heimildinni. Þar var verið að tala um, gott ef það var ekki í gær eða í dag, að í nýjustu tölum Hagstofu Íslands um tekjuskiptauppgjör heimilisgeirans kæmi fram að á fyrri hluta yfirstandandi árs hafi heimili landsins greitt um 58,8 milljarða kr. í vaxtagjöld. Fyrri hluti þessa árs — 58,8 milljarðar í vaxtagjöld. Á sama tímabili í fyrra, á fyrstu sex mánuðum ársins í fyrra, þá var upphæðin 36,3 milljarðar. Hugsið ykkur aukninguna á einu ári. Þarna bætast við, í formi hárra vaxta, 22,5 milljarðar kr. Þetta eru sveiflur sem heimilin ráða auðvitað ekkert við.

Þegar við erum að tala síðan um heimilin og áhrif vaxtanna á þau þá verð ég líka að fá að nefna hér að þegar við erum að tala um óverðtryggðu lánin þá þekkjum við auðvitað öll mörg dæmi þess, og þau hafa ítrekað verið flutt í fjölmiðlum, að það eru margar fjölskyldur að borga kannski 200.000 kr. meira á mánuði í vexti. Þetta þýðir um tvær og hálfa milljón á ári og við erum að tala um að meðallaun í landinu hér eru einhvers staðar í kringum 800.000. Heimilin í landinu, venjuleg heimili, venjulegt fólk, millitekjufólk, er í sumum tilfellum að borga nokkur útborguð mánaðarlaun bara í þessa hærri vexti sem hafa spýst yfir okkur öll núna á undanförnum misserum, og hugsið ykkur, það eru ekki nema tvö ár síðan bæði seðlabankastjóri og formaður Sjálfstæðisflokksins töluðu um að hér væri að renna upp lágvaxtaskeið, langvarandi lágvaxtaskeið. Í dag eru heimilin að borga 22,5 milljörðum kr. meira í vexti á fyrstu sex mánuðum þessa árs heldur en á fyrstu sex mánuðum ársins í fyrra. Þetta eru rosalegar tölur.

Auðvitað er það gjaldmiðillinn sem veldur þessu. Það vita allir. Það er jú auðvitað þannig að forsvarsmenn í þessari ríkisstjórn hafa viðurkennt það. Ég ætla nú bara til að mynda benda á það sem hæstv. utanríkisráðherra, fyrrverandi fjármálaráðherra og formaður Sjálfstæðisflokksins, hefur sjálfur skrifað í grein, þar sem hann talar um að íslenska krónan geti verið okkur fjötur um fót, að freistnivandinn til þess að stýra hagkerfinu með því að láta gengi krónunnar gossa þegar þess þarf geti snúist upp í andhverfu sína og að lítill gjaldmiðill þýði í raun og veru að það sé lítil tiltrú á hagkerfinu. En menn hafa auðvitað snúist í heilan hring í þessu eins og við þekkjum. Við sjáum þetta öll. Við skynjum það öll. Það vantar bara að fleiri hér í þessum sal nái að átta sig á því að skaðinn af þessu ástandi er miklu meiri en nokkurn tímann einhver mögulegur ávinningur af hugsanlegum sveigjanleika íslensku krónunnar.

Og þegar menn koma hér upp, eins og hefur verið gert í þessari umræðu, og fara að tala um að íslenska krónan, sem er nú heldur betur að leika ríkissjóð grátt núna, eins og ég var að nefna hérna áðan, hafi bjargað okkur upp úr öldudalnum í gegnum tíðina þegar illa hefur árað í íslensku samfélagi þá eru menn algerlega að snúa hlutverkum á haus vegna þess að það sem krónan gerir er að hún bjargar okkur stundum upp úr vandræðum sem hún skapar sjálf. Við sáum þetta ágætlega í hruninu. Hvað gerðist í hruninu? Það verður alþjóðleg fjármálakreppa og íslenska krónan fellur eins og steinn. Við munum vel hvernig ástandið var t.d. hjá íslenskum námsmönnum erlendis þegar þetta gerðist. Við munum vel hvernig myntkörfulán Íslendinga fóru á þessum tíma.

Síðan gerist það að við þessar aðstæður styrkjast auðvitað útflutningsatvinnuvegirnir okkar og þeir fara að skila góðri afkomu. Þá fara menn að tala um það að krónan, sem hafði áður sunkað niður í kjallara og kallað fjöldagjaldþrot yfir heimili og fyrirtæki, sé einhver sérstakur bjargvættur í aðstæðunum. Þetta er auðvitað með eindæmum og verulegt áhyggjuefni að menn skuli enn þá vera fastir í þessari hugsun við ríkisstjórnarborðið á Íslandi árið 2023. Við þurfum ekki annað en að horfa á beinan vaxtakostnað ríkisins til að sjá að þetta getur ekki gengið svona til lengdar. Það hefur verið reiknað út, og hægt að færa fyrir því rök ef miðað er við vaxtamun á milli krónu og evru, að það megi spara 60–70 milljarða í ríkisrekstrinum á ári með því að taka upp stöðugri mynt. Það er kannski ekki hægt að finna þessa tölu upp á punkt og prik en þetta eru a.m.k. stærðirnar og um þetta munar jú auðvitað helling í ríkisrekstrinum eins og við hljótum öll að sjá. Þetta gengur mönnum svolítið illa að sjá og það er auðvitað bara eins og það er.

Það var reyndar, og ég ætla að fá að nefna það hér, ágætisumfjöllun í Kveik í gær sem tók einmitt nákvæmlega þennan vanda fyrir og líka ósanngirnina sem fylgir krónuhagkerfinu sem er í fáum orðum þannig að fyrirtæki, gríðarstór fyrirtæki, sem eru með tekjur í erlendri mynt en útgjöld í íslenskum krónum fá eðlilega að gera upp í þeirri mynt sem þau velja og minnka þannig gengisáhættu. Þetta þýðir hins vegar á mannamáli að eigendur fyrirtækjanna, hluthafarnir og fyrirtækin sjálf njóta góðs af stöðugra umhverfi en starfsmenn þessara sömu fyrirtækja og landsmenn allir njóta þess ekki að fá að komast yfir í stöðugra umhverfi. Hér þurfa menn að búa síðan innan krónuhagkerfisins í tvískiptu kerfi, þegar við erum búin að taka fyrirtækin frá sem gera upp í annarri mynt, sem er verðtryggða krónan og óverðtryggðra krónan. Þetta er ósanngjarnt og þessu verðum við að breyta.

Síðan langar mig auðvitað að nefna fleiri atriði. Það er til að mynda sú staðreynd að það á að halda áfram að selja í bankakerfinu núna á næsta ári, og ég fagna því mjög, og þarnæsta ári líka eins og við töluðum um með Íslandsbanka. Ég hef reyndar sjálfur þá skoðun persónulega að mér finnst vel koma til álita að íslenska ríkið losi um eitthvað af eignarhlut sínum í Landsbankanum líka á næsta ári og minni á að eign íslenska ríkisins í fjármálakerfinu er örugglega í kringum 300 milljarða. Þessa peninga má losa um. Það er ekki hægt að gera það á einu bretti, það þarf að gera þetta skynsamlega því að við getum auðvitað ekki kaffært markaðinn með því að selja tvo banka á einu bretti. En það er vel hægt að taka þarna miklar tekjur inn í ríkissjóð sem eru þó auðvitað einskiptistekjur og ættu að fara þá í að greiða niður skuldir til að lækka vaxtagjöld og/eða í einhverjum mjög vel afmörkuð innviðaverkefni en ekki að gera eins og við erum að gera með tekjufroðuna í fjárlögunum, að dreifa henni bara í almennan rekstur ríkisins vegna þess að þetta eru tekjur sem koma einu sinni og við stólum jú auðvitað ekki á einskiptistekjur til lengri tíma. Þetta er eitthvað sem mér persónulega fyndist mjög vel koma til greina, svo maður tali nú aðeins um tekjuhliðina á fjárlögunum.

Síðan vil ég kannski líka segja að mér finnst ekki koma til greina, eins og maður sér talsverðan vilja til hér í þessum sal, að hækka álögur á venjulegt fólk í þessu landi í því árferði sem núna er. Mér finnst ekki koma til greina að hækka skatta á almenning. Mér finnst ekki koma til greina að vaxtapínt fólk sem þarf líka að þola verðbólguáþjánina fari að greiða hærri skatta. Það er alveg komið nóg. Það er ekki alltaf hægt að demba efnahagsmistökum yfir á fjölskyldur landsins. Menn hljóta að þurfa að reyna að hugsa aðeins út fyrir boxið í þessu húsi og reyna að mæta því með öðrum hætti.

Ég ætla að gjalda varhuga við því sem gerist stundum við fjárlögin og umræðuna hér í þessum sal, að menn mæti hér með þungar og stórar útgjaldatillögur og einhverjar hókus pókus aðgerðir á móti til að fjármagna þær. Það er vissulega hægt að auka tekjur ríkissjóðs með ýmsum hætti en við gerum það held ég ekki með því að hækka álögur, til að mynda á bankana, bankaskattinn svokallaða, ferfalt eins og verið er að leggja til hér í þessari umræðu, bara svo ég nefni eitt dæmi af handahófi, að ekki sé talað um tillögur um einhvers konar breytingar á heilbrigðiskerfinu sem geta kostað kannski 40–50 milljarða kr. Við þurfum að fara varlega í þetta þótt við viljum öll gera vel. Ég segi það algerlega kinnroðalaust: Það sem skortir er forgangsröðun fjármuna. Við eigum að eyða fjármunum og verja fjármunum í ákveðna þætti og gera það vel og myndarlega en við þurfum að forgangsraða.

Mig langar að nefna tvennt sem ég hnýt sérstaklega um í þessu fjárlagafrumvarpi og mér svíður svolítið að sjá. Annars vegar er það að verið er að hækka framlag til SÁÁ tímabundið um 120 milljónir. Þetta er tímabundin aukning. Það vantar hins vegar örugglega 400–500 milljónir til þess að SÁÁ, sem rekur Sjúkrahúsið Vog og sér um ópíóíðameðferð og er með meðferðarheimilið Vík og göngudeildarþjónustu og annað, geti sinnt þeim skyldum og þeim kvöðum sem lagðar eru á samtökin, m.a. í gegnum samninga við Sjúkratryggingar Íslands. Þetta er vissulega viðbót, þetta er útgjaldaaukning, en í þessu ríkir neyðarástand, auðvitað allt öðruvísi neyðarástand en við erum í raun og veru að sjá í gegnum náttúruhamfarir, en þetta er samt sem áður neyðarástand af þeirri stærðargráðu að 80–100 manns deyja á hverju einasta ári úr þessum sjúkdómi. Ég segi það enn og aftur: Ef við sæjum slíkar tölur í umferðarslysum þá værum við að margfalda þá fjármuni sem færu í endurbætur á vegakerfinu til að auka umferðaröryggi. Ég vil sjá að meiri fjármunum sé varið í þetta.

Ég vil líka nefna Fangelsismálastofnun. Nú er það þannig að það hefur verið skorið niður hjá Fangelsismálastofnun mörg, mörg ár í röð. Hér komum við að forgangsröðun fjármuna og einhverri stefnumótun í ríkisfjármálum. Ríkisstjórnarflokkarnir hafa stært sig af því að þeir hafi sett meiri fjármuni í löggæslu, meiri fjármuni í saksókn og meiri fjármuni í dómstóla. Þetta er gert á tímum þar sem Íslendingum fjölgar og glæpatíðnin er upp á við. Glæpum er að fjölga. En þegar menn auka fjármagn í löggæslu, saksókn og dómstóla þá kemur auðvitað út úr því aukið álag á fangelsiskerfi landsins. Það liggur alveg í hlutarins eðli. Þetta er ég að nefna vegna þess að þetta er svo skýrt dæmi um það að menn hugsa ekki til enda þegar er verið að sýsla með fjármuni ríkisins. Nú er Fangelsismálastofnun á þeim stað að það er verið að senda fólk á Litla-Hrauni, fangaverði, í aðstæður þar sem þeim er hætta búin vegna aðstöðuleysis, vegna fjárskorts. Það á vissulega að reisa nýtt fangelsi og það er fagnaðarefni og ég styð það mjög en engu að síður er staðan sú að það þarf að reka fangelsi landsins þangað til nýtt fangelsi tekur við. Þessu erum við ekki að mæta í þessum fjárlögum.

Ein afleiðingin af þessu, og ég ætla að nefna bara eina afleiðingu af handahófi, er sú að við brjótum mannréttindi á fárveiku fólki sem er jafnvel í geðrofi inni í fangaklefum landsins. Við erum með ráðuneyti sem eru að takast á um það, heilbrigðisráðuneytið og dómsmálaráðuneytið, hver eigi að borga eða hver eigi að sjá um eða bera ábyrgð á föngum í geðrofi. Fangar í geðrofi fá ekki heilbrigðisþjónustu sem þeir þurfa af því að þeir eru í fangelsi. Sami einstaklingur í nákvæmlega sama ástandi yrði tekinn inn á geðdeild Landspítalans ef hann væri ekki í fangelsinu. Þetta er svo mikil mismunun, það er svo illa farið með hóp sem getur enga björg sér veitt og er algerlega upp á náð og miskunn yfirvalda kominn, algjörlega háður því að við virðum lágmarksmannréttindi fólks. Þessi hópur er fórnarlamb þess að ráðuneyti geta ekki komið sér saman um það hver eigi að borga brúsann.

Við fengum ágætisfrásögn af þessu á nefndarfundi í morgun þegar verið var að ræða um dökka skýrslu Ríkisendurskoðunar um fangelsismál á Íslandi. Við erum að brjóta mannréttindi á fólki og ekki bara hvaða fólki sem er, fólki sem er lokað inni í fangaklefa og er í geðrofi og þarf að komast inn á spítala. Við getum ekki sent þetta fólk á spítala nema með fylgi tveir fangaverðir. Til þess hefur Fangelsismálastofnun ekki fjármuni þannig að það gerðist á dögunum að það fylgdu tveir fangaverðir fanga í geðrofi inn á geðdeild og sátu þar yfir honum í einhvern tíma. Síðan var ekki til peningur til meiri yfirsetu og þá var fanganum bara skóflað aftur inn í fangaklefa. Þetta er algjör svívirða og ég ætla að mælast til þess að við hugsum aðeins betur um þá sem eru einhvern veginn í þeirri stöðu að þeir þurfa bara algerlega að treysta því að kerfið okkar sé mannúðlegt og menn séu ekki orðnir partur af einhverju þrátefli á milli ráðuneyta. Auðvitað er það þannig að ef þessi staða er uppi þá á dómsmálaráðherra eða eftir atvikum heilbrigðisráðherra ofur einfaldlega að segja: Heyrðu, þetta gengur ekki, við tryggjum bara fjármuni í að það sé hægt að kippa mönnum inn. Mér finnst þetta mikill ljóður og þetta segir okkur allt of mikið um það hve forgangsröðunin er skökk. Þetta eru ekkert einhverjar hæstu upphæðir í heimi, bara eiginlega engan veginn. Þetta er eitthvað sem við hljótum að þurfa að taka til skoðunar.

Ég nefndi aðeins heilbrigðismál. Ég ætla ekki að fara ofan í þetta lið fyrir lið en mig langar að benda á að það hefur verið gert a.m.k. betur hjá núverandi heilbrigðisráðherra en þeim sem sat á undan að virkja einkaframtakið í því skyni að stytta biðlista. Ég átta mig á því að það getur verið kúnst að semja við einkaaðila um heilbrigðisþjónustu en það er vel hægt að gera það með því að hafa Sjúkratryggingar öflugar og láta þær sinna skilvirku og góðu eftirliti, gera mjög miklar kröfur um það hvernig þjónustu eigi að veita. Það þarf að vera skýrt hvað hún á að kosta og það á að setja einhvers konar þak eða jafnvel banna beinar arðgreiðslur úr slíkri starfsemi. Þetta getum við gert til þess að stytta biðlista í heilbrigðiskerfinu og við eigum að gera það í auknum mæli.

Mig langar að segja svona alveg í lokin, af því að ég átta mig alveg á því að það getur verið þreytandi að hlusta á menn sem vilja fara í sársaukafullar aðgerðir til þess að hafa betri áhrif á samfélagið til lengri tíma — (BLG: Nei, nei.) Jú, jú. Nei, nei, segir hv. þm. Björn Leví Gunnarsson. Það er samt sem áður þannig að við verðum að skoða allar leiðir til að gera þetta og ekki vera feimin við að fara í þessa umræðu. Við sjáum þetta auðvitað líka t.d. í menntamálunum. Þarna getum við auðvitað stigið inn í. Ég ætla bara að láta þessa spurningu hanga úti: Heldur einhver að það sé þannig í stóru kerfunum okkar að það sé ekki hægt að fara betur með peninga? Auðvitað er það hægt. Auðvitað er hægt að finna leiðir til þess. Auðvitað er hægt að fá jafnvel betri þjónustu fyrir sama pening en við gerum í dag. Það getur verið sársaukafullt að finna réttu leiðirnar til þess en ég ætla að koma aftur að því sem ég nefndi hérna í upphafi: Ég skil ekki af hverju ráðuneytin hafa ekki virkjað sjálf sig og stofnanir ráðuneytanna til að finna leiðir til þess að fara betur með peninga skattgreiðenda, ekki í því skyni að draga endilega úr þjónustu heldur til að reyna að fá sömu þjónustu eða jafnvel betri þjónustu fyrir minni pening. Þetta er bara nákvæmlega sama verkefni og öll fyrirtæki landsins eru í á hverjum degi og þetta er nákvæmlega sama verkefni og öll heimili landsins standa frammi fyrir á hverjum einasta degi, ekki síst núna þegar verðbólgan og vextirnir eru svona há.

Það eru auðvitað alls konar áskoranir sem hvíla á okkur til lengri tíma litið og líka eitt sem bíður okkar núna og dettur væntanlega inn í fjárlögin á næsta ári, það er hvernig fer með kjarasamningana okkar. Það skiptir gríðarlega miklu máli að þar takist vel til. Þar á eftir að myndast mikill útgjaldaþrýstingur á ríkissjóð. Það er auðvitað eðlilegt að ríkisvaldið stígi með einhverjum hætti inn í, sérstaklega ef hægt er að ná hagfelldum samningum til lengri tíma sem gætu mögulega þá leitt okkur í lægri verðbólgutölur og lægri vexti, en við megum samt ekki enda þann leik þannig að íslenska ríkið sé í raun og veru að borga meira í kjarabætur til fólks á almennum vinnumarkaði en fyrirtækin sjálf. Þarna verður að vera einhver skynsamlegur millivegur að sjálfsögðu.

Síðan næ ég auðvitað ekki að fara yfir það sem mig langaði að segja um orkumálin en þar hefur ríkt talsverð kyrrstaða eins og við þekkjum. Ég átta mig á því að það er mjög erfið umræða vegna þess að við viljum jú auðvitað ekki gefa neinn afslátt af þeim kröfum sem við gerum til til náttúruverndar og umhverfismála. En auðvitað er þetta stór partur af orkuskiptunum og þetta er líka stór partur af því að viðhalda hér jöfnum hagvexti til lengri tíma litið. En enn og aftur, það er auðvitað ekki sama hvernig þetta er gert og það er mjög auðvelt að fara fram úr sér í þessum efnum. Þetta fer ég þá kannski bara betur yfir í seinni ræðu um þetta fjárlagafrumvarp og lýk þessu með því að biðja forseta um að setja mig aftur á mælendaskrá.