154. löggjafarþing — 44. fundur,  6. des. 2023.

fjárlög 2024.

1. mál
[23:12]
Horfa

Frsm. 1. minni hluta fjárln. (Björn Leví Gunnarsson) (P) (andsvar):

Forseti. Það er alveg rétt að þetta sveiflast aðeins á milli ára en þetta eru langtímameðaltölin. Þegar maður er kominn í langtímameðaltöl sem einhvers konar viðmið eru þau í rauninni orðin vísbending um hvað umfang ríkisins er u.þ.b., bæði í tekjum og útgjöldum. Eins og er þá er ríkisstjórnin í u.þ.b. langtímameðaltali útgjalda en undir langtímameðaltali í tekjum sem bendir í rauninni til þess að það sé ákveðið tekjuvandamál miðað við langtímatölurnar.

Það er hins vegar alveg rétt að við getum líka verið í útgjaldavanda eins og við sjáum t.d. í skýrslu Fangelsismálastofnunar. Það er greinilega útgjaldavandi þar. Það vantar einfaldlega fjárheimildir. Við fengum fjárhagsáætlun frá Fangelsismálastofnun fyrir síðustu fjárlög, í lok síðasta árs, sem greindi frá því að til þess að Fangelsismálastofnun gæti sinnt lögbundnum verkefnum þá vantaði 300 milljónir. Það var í rauninni bara sundurliðun á fjölda starfsfólks til þess einmitt að geta sinnt dæmum eins og hv. þingmaður benti hérna á, að geta fylgt föngum á geðdeild o.s.frv. Allt virðist benda til þess að þetta sé bara satt. Þarna vantar fjármagn, ekki að það sé einhver aðstaða eða annar rekstur sem er að fara einhverju offari eða eitthvað því um líkt. Það getur síðan verið satt annars staðar. (Gripið fram í: Nákvæmlega.)

Það er alltaf vandinn hjá okkur hvernig við náum að greina þarna á milli. Stundum vantar fjármagn á einn stað en er þá of mikið fjármagn á öðrum stað? Það er einhver bóla í gangi. En við fáum einhvern veginn aldrei nægilega góðan aðgang að því að reka það ofan í þær stofnanir eða ráðuneyti eða elta uppi hvar er verið að eyða meira heldur en þarf í raun og veru að gera. Það er kannski aðalvandinn þegar allt kemur til alls.