fjárlög 2024.
Frú forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir þetta. Já, það sem við stöndum frammi fyrir er ofur einfaldlega það að við þurfum að forgangsraða með einhverjum hætti og við erum auðvitað ekkert alltaf sammála um hvernig við eigum að gera það. Mig langar samt að segja að það er þó a.m.k. gott við Ísland að við erum sammála um að velferðarkerfið hér eigi að vera sterkt og öflugt og við erum ekki að festast í furðulegum kreddum, eins og við sjáum til að mynda í Bandaríkjunum, hjá gríðarlega ríkri þjóð, þar sem fólk þarf t.d. að neita sér um heilbrigðisþjónustu, venjulegt fólk, af því að það hefur ekki efni á henni. Við viljum ekki svoleiðis kerfi. En enn og aftur, við þurfum auðvitað að forgangsraða. Það er það sem minn flokkur hefur talað fyrir að við þurfum að gera í auknum mæli.
Ég er algerlega sannfærður um að við bætum ekki — af því að það er alltaf verið að kalla eftir meiri pening í heilbrigðiskerfið og við sjáum auðvitað biðlista þar lengjast og annað — ég er ekkert endilega viss um að við bætum allt þar með því að dæla endalaust meiri peningum. Ég held að þarna sé líka einhvers konar dýpri vandi á ferðinni. Það er nú reyndar þannig, af því að ég er að nefna það, að fólk sem er í fremstu víglínu á spítalanum hefur auðvitað talað um að þar þurfi kannski að breyta ýmsu til að fara betur með fjármuni.
Við getum líka nefnt einn angann af þessu sem er sú sérkennilega staða að við verðum að vista gamalt fólk sem ætti að vera á hjúkrunarheimilum í einhverri langtímadvöl inni á spítalanum. Þetta er alltaf spurning um einhvers konar forgangsröðun. En einmitt af því að hv. þingmaður gaf upp þennan bolta þá ætla ég að árétta það sem ég sagði í minni ræðu. Það vantar upp á það hjá þessari ríkisstjórn að ráðuneyti virki sjálf sig og stofnanir málaflokkana til að fara betur yfir það hvernig hægt er að fara betur með fé. Það dugir ekki alltaf að skera niður með flötum niðurskurði. Það leiðir okkur ekki að bestu niðurstöðunni.