154. löggjafarþing — 45. fundur,  7. des. 2023.

skráning skammmtímaleigu húsnæðis í atvinnuskyni.

[10:34]
Horfa

Kristrún Frostadóttir (Sf):

Forseti. Samfylkingin kynnti í vikunni kjarapakka sem hefur fengið góð viðbrögð víða. Ein af tillögum okkar til að auka húsnæðisöryggi er að ná stjórn á Airbnb og skammtímaleigu íbúða. Það virðist nefnilega ríkja ákveðið stjórnleysi þarna, ekki síst þegar kemur að fyrirtækjum sem eru með fjölda íbúða í skammtímaleigu til ferðamanna. Það er ein tiltekin reglugerð sem virðist hafa haft sérstaklega skaðleg áhrif. Þessi reglugerð gefur fyrirtækjum sem eru með fjölda íbúða í skammtímaleigu til ferðamanna kleift að komast hjá því að skrá íbúðirnar sem atvinnuhúsnæði þótt þær séu sannarlega nýttar í atvinnurekstri. Þannig komast þessi fyrirtæki hjá því að greiða fasteignagjöld af atvinnuhúsnæði, sem geta verið allt að tíu sinnum hærri en af íbúðarhúsnæði, og þannig komist þessi fyrirtæki hjá því að fylgja skipulagsreglum sveitarfélaga um atvinnuhúsnæði, sem takmarkast yfirleitt við ákveðin svæði. Allt skekkir þetta samkeppnisstöðuna við önnur fyrirtæki í gistiþjónustu eða hvaða fyrirtæki sem er sem þarf að skrá húsnæði sitt sem atvinnuhúsnæði, borga fasteignagjöld af því sem slíku og fylgja skipulagsreglum sveitarfélaga um atvinnuhúsnæði.

Hæstv. fjármálaráðherra Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir ætti að þekkja þessa reglugerð nr. 649/2018 því hún setti reglugerðina sjálf á sínum tíma sem ráðherra ferðamála. Síðan þá hefur sú þróun ágerst af miklum þunga að nýjar íbúðir séu ekki nýttar til búsetu heldur fyrir ferðamenn, jafnvel heilu blokkirnar, án þess að sveitarfélög fái rönd við reist. Ég vil því spyrja: Hvað gekk hæstv. ráðherra til þegar hún setti reglugerð nr. 649/2018? Hversu vegna vildi ráðherra ekki að húsnæði sem nýtt er til skammtímaleigu í atvinnuskyni væri skráð sem atvinnuhúsnæði? Hvað gekk hæstv. ráðherra til?