154. löggjafarþing — 45. fundur,  7. des. 2023.

skráning skammmtímaleigu húsnæðis í atvinnuskyni.

[10:36]
Horfa

fjármála- og efnahagsráðherra (Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir) (S):

Herra forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrirspurnina og vil byrja á því að segja að þegar kemur að Airbnb er alveg ljóst að það þarf að ná fram breytingum á því umhverfi. Samkeppnisstaða þeirra sem eru í atvinnurekstri og þeirra sem eru raunverulega í atvinnurekstri en ekki inni í þeim ramma er skökk, hún er ójöfn og það þarf að vera jafnræði á milli aðila. Þegar reglugerðin var sett vorum við með þá stöðu að það var enginn rammi utan um þessa starfsemi og bæði hér og víða annars staðar hefur þetta farið mikinn í allri umræðu og verið reynt að ná einhverjum böndum á þessa útleigu. Við smíðuðum ramma með hámarksdagafjölda þannig að þú værir ekki virðisaukaskattsskyldur og ákveðinn rammi settur utan um það. Það eru komin sex ár síðan þetta var hér um bil og sjálfsagt og eðlilegt að þróa það áfram. Atvinnurekstur er auðvitað atvinnurekstur og við sjáum að fjöldi íbúða á Airbnb, sérstaklega hérna á höfuðborgarsvæðinu, er gríðarlega mikill. Við fórum í átak og forgangsröðuðum fjármunum innan málaflokka og fólum sýslumanninum á höfuðborgarsvæðinu að fara í sérstakt átak og taka á því að fólk sem ætti að vera skráð væri skráð og ef það væri það ekki eða færi yfir hámarksfjölda daga þá fengi það sekt. Það skilaði árangri og ég held að það þyrfti að ýta á það.

Hins vegar get ég ekki annað en nefnt það hér líka að eitt er að ríkisvaldið sé með ramma utan um starfsemina. Annað er að sveitarfélagið sé í stakk búið til að fylgjast með því, hvort sem það er út frá skipulagsvaldi eða öðrum reglum. (Forseti hringir.) Mér sýnist af fjölmiðlaumfjöllun undanfarinna daga að það hafi ekki gengið neitt sérstaklega vel. Þannig að ég bara skora á hv. þingmann að tala við sína félaga hjá Reykjavíkurborg og spyrja hvað þau eru að gera til að ná betri tökum á umsvifum Airbnb á höfuðborgarsvæðinu.