skattar og gjöld á fyrirtæki og einstaklinga.
Herra forseti. Ég beini hér fyrirspurn til hæstv. fjármálaráðherra varðandi breytingu sem ráðherrann lagði fram nýlega í frumvarpi til laga um breytingu á ýmsum lögum um skatta og gjöld, gistináttaskatt, áfengisgjald og fleira. Það sem mig langar að spyrja hæstv. ráðherra um varðar c-lið 7. gr. Það ætti öllum að vera ljóst, sýnist mér, sem lesa frumvarpið að það er töluvert flækjustig sem þarna verður og vinna og kostnaður fyrir fólk og fyrirtæki sem af þessu hlýst.
Mig langar til að spyrja hæstv. ráðherra: Liggja fyrir fjárhæðir gjafa sem íslenskir einstaklingar gefa til góðgerðarmála erlendis árlega, nú eða íslensk fyrirtæki eða aðilar eins og Rauði krossinn, UNICEF og jafnvel ríkið og fleiri slíkir aðilar gefa til góðgerðarmála erlendis árlega? Liggja fyrir fjárhæðir greiðslna íslenskra einstaklinga fyrir þjónustu eins og tónlistarstreymi, kvikmyndastreymi, hótelþjónustu og aðra þjónustu erlendis frá árlega? Og hefur verið lagt mat á fjölda vinnustunda sem íslenskir einstaklingar þurfa að leggja á sig til að halda eftir og skila staðgreiðslu af þjónustu til erlendra aðila?
Ástæðan fyrir því að ég spyr þessara spurninga er í rauninni sú að mér sýnist töluvert umfang utanumhalds verða til við þessar breytingar og mig langar að spyrja hvort mat hafi verið lagt á þær.
Sömuleiðis vil ég spyrja hæstv. ráðherra: Liggur fyrir fjöldi slíkra erlendra aðila frá öðrum ríkjum og þá fjárhæðir sem greiddar eru til þeirra ríkja þar sem engir tvísköttunarsamningar eru fyrir hendi? Því að tekið er fram í greinargerð að umfangið sé hóflegt gagnvart þeim sem starfa innan landa þar sem tvísköttunarsamningar eru í gildi. Því er spurningin, eins og kom fram hér áðan: Hefur verið metið hvaða kostnað umræddar breytingar hafa fyrir einstaklinga og fyrirtæki?