skattar og gjöld á fyrirtæki og einstaklinga.
Herra forseti. Ég þakka hæstv. ráðherra svarið. Ástæðan fyrir því að ég nefni þetta hér er að við erum auðvitað ansi gjörn á að samþykkja svona atriði sem láta lítið yfir sér, þetta er einn stafliður af þremur í einni grein af 28, ef ég man rétt, í þessu tiltekna frumvarpi. Það er svo oft sem við finnum okkur í þeirri stöðu að við höfum samþykkt hér eitthvað sem lítur sárasakleysislega út en kallar síðan á heljarmikla vinnu og kostnað fyrir fyrirtæki og almenning sem undir reglurnar falla. Ég vil brýna hæstv. ráðherra til að láta skoða þetta í þaula. Þetta lítur út eins og frumvarp sem var skrifað af embættismönnunum í ráðuneytinu, eins og mörg hver eru, og ég vil ítreka það og brýna hæstv. ráðherra til að láta skoða þessa þætti því að matið í greinargerð frumvarpsins bendir ekki til þess að nein raunveruleg greining hafi átt sér stað á þessum þáttum. Ég bara fagna því að hæstv. ráðherra ætli að leggja fram upplýsingar varðandi þetta en málið er auðvitað til meðferðar í þinginu nú þegar.