Miðstöð menntunar og skólaþjónustu.
Virðulegi forseti. Virðulegi forseti. Ég vil rétt aðeins koma hingað upp til þess að lýsa því yfir að þetta mál sem við erum að klára í dag og vonandi afgreiða á morgun er gríðarlega mikilvægt á þessum tímum sem við stöndum núna frammi fyrir. Var nóg fyrir en núna eftir niðurstöðu PISA-könnunarinnar er alveg ljóst að þessar umbreytingar á menntun og skólaþjónustu skipta mjög miklu máli. Ég vil leyfa mér að segja að eins og málið er fram sett og hefur verið í umfjöllun nefndarinnar, sem ég vil hrósa, þá skiptir gríðarlega miklu að horfa á þetta sem tæki sem við verðum að styðja, ákveðið ljós í myrkri. Það er þýðingarmikið núna í allri umræðunni um niðurstöðuna í PISA að taka þessa niðurstöðu alvarlega. Við megum ekki láta þetta verða enn einn hvirfilvindinn þegar niðurstaða PISA kemur en síðan ekki fylgja eftir þeim niðurstöðum sem þar í rauninni öskra á okkur í dag. Það er heldur ekki hægt að segja: Heyrðu, það eru allar þjóðir að falla niður listann. Við þurfum að taka okkar hlutverk alvarlega. Við sem löggjafi, sem er ætlað m.a. að styðja við þessa nýju stofnun, við skólasamfélagið, hlusta á foreldrasamfélagið, verðum að nýta það tækifæri sem nú er.
Ég vil rétt fara yfir og stikla á nokkrum þáttum sem ég vil vekja athygli á og ég vona að verði teknir áfram innan Miðstöðvar menntunar og skólaþjónustu. Eins og ég segi fagna ég mjög þessu máli og tel væntanlega nýja stofnun í mjög góðum höndum fólks sem ætlar sér að styðja betur við okkar skólasamfélag og það veitir ekki af. PISA mælir ákveðið — árið 2009 var aðeins hækkun og svo aftur 2018 en við erum ekki að fylgja því eftir. Einhverra hluta vegna hefur þróunin orðið svona og það er ekki hægt að áfellast einhvern einn og benda á einhvern einn í þessu, þetta eru bara allir sem hafa komið að mótun skólastefnu, hvort sem það er löggjafinn, framkvæmdarvaldið eða Kennarasambandið, líka foreldrasamfélagið og vísindasamfélagið. Við verðum að spyrja af hverju þessi þróun er. Ég tel að það sé einboðið að við þurfum að spyrja okkur spurninga eins og með sjálfstæði skóla, sem er mikilvægur þáttur til að ýta m.a. undir valfrelsi, ýta undir fjölbreytni í skólastarfi. En um leið og við segjum A verðum við líka að segja B og ég held að B-hlutinn hafi verið vanræktur, þ.e. að samhliða sjálfstæði skóla þá höfum við ekki verið að byggja upp nægilega mikið stoðkerfi, mat og mælingar. Við þurfum að hafa mælingar samhliða sjálfstæðum skólum, hvernig sem við útfærum það síðan. Þess vegna tel ég varðandi þá forystu og það starfsfólk sem er og verður innan nýrrar stofnunar að það sé mikilvægt að þau hafi þetta í huga og finni líka fyrir stuðningi hjá okkur við það að við höldum áfram og förum að mæla meira á milli PISA-mælinga, ekki til að vera með einhvern refsivönd, alls ekki, heldur til þess að finna og mæla stöðu barnanna okkar og sjá framvinduna. Ég treysti þeim algjörlega til þess að útfæra það og ekki síður til þess að styðja við kennarasamfélagið sem stendur frammi fyrir alveg ómældum áskorunum.
Við skulum átta okkur á því að árið 1996, þegar grunnskólinn var færður yfir til sveitarfélaganna, voru til að mynda um 300 börn af erlendu bergi brotin. Núna í dag erum við með meira en 5.000. Þetta er risastór áskorun fyrir kennarana okkar. Við verðum að spyrja okkur: Erum við að miðla nægilega miklum verkfærum, tækjum, stuðningi til þeirra? Ég held ekki, ekki þegar við skoðum tölurnar. Þetta er eitt af því sem kennarar standa frammi fyrir, þau eru með stóran hóp af börnum sem eru af erlendu bergi brotin, þau eru með stóran hóp af börnum sem eru með alls konar raskanir og við viljum hjálpa og styðja. Og síðan erum við með framúrskarandi nemendur sem þarf líka að halda utan um. Það er það sem PISA-könnunum gefur skýrt til kynna. Þannig að hluti af þessu er líka að taka af metnaði utan um kennaranna og um leið skilja hvaða hlutverki þeir sinna og hvernig umhverfi þeir starfa í núna. Það er algjört lykilatriði fyrir okkur hér að vera ekki að benda og segja: Já, þetta er vondur kennari. Eða: Við eigum að hafa þetta svona eða hinsegin. Við þurfum að skapa þennan ramma, þetta umhverfi sem styður raunverulega kennarann og skólasamfélagið í þessu gríðarlega fjölbreytta og oft erfiða landslagi sem birtist okkur Íslendingum í dag og íslensku samfélagi.
Um leið og ég segi þetta vil ég segja, og ég vona að ég verði ekki misskilin: Kennarar mega heldur ekki óttast mælingar því að mælingar eru ekki síður til þess að hjálpa kennaranum, til að styðja við kennarann samhliða því að við sjáum bara sem foreldrar hver staða barnanna okkar er, hvernig framvindan er búin að vera. Þá þurfum við einmitt að gera betur í þessu máli og þess vegna bind ég miklar vonir við nýja stofnun sem ráðherra hefur beitt sér af miklu alefli fyrir. Ég vona að hann taki næstu skref, af því að við erum rétt að byrja með þetta, og haldi utan um þessa stofnun á næsta ári, fyrsta starfsárinu, og komi síðan með metnaðarfullar tillögur um hvernig við tökum stofnunina lengra inn í framtíðina.
Annað atriði sem ég vil benda á í sambandi við tilfærsluna 1996, flutningana á grunnskólunum yfir til sveitarfélaganna, er að sveitarfélögin hafa nefnilega verið að standa sig. Þau hafa nokkurn veginn verið að halda sínum framlögum til grunnskólans. Við stöndum líka frammi fyrir því sem ótrúlega margir innan skólasamfélagsins og þeir sem þora að benda á ákveðna hluti segja: Við erum að setja 200 milljarða í skólasamfélagið. Við eigum að gera kröfur. Það er eitthvað að. En sveitarfélögin hafa einmitt verið að standa sig nokkuð vel í þessu. Það var einn þáttur skilinn eftir hjá ríkinu og það var námsgagnagerðin. Námsgagnagerðin var á sínum tíma undir Námsgagnastofnun og mun núna heyra undir Miðstöð menntunar og þjónustu. Á sínum tíma voru þetta ríflega 6.500 kr. á barn, árið 1996, þegar kom að námsefni. Í dag, eða árið 2019, er þetta nokkurn veginn sama upphæð, 7.000 kr. Ríkisvaldið hefur ekki staðið sig í því að passa upp á það m.a. að verja íslenskuna, að veita kennurunum okkar grundvallarverkfæri til að þau geti farið inn í íslenskuna og varið íslenskuna og kennt hana og tekið börnin okkar áfram. Í þessu má gagnrýna ríkisvaldið í gegnum árin. Ég man að ég setti á sínum tíma sem menntamálaráðherra 100 milljónir til viðbótar, sem var ákveðið pólitískt deilumál af því að ég hafði þá sýn, og fleiri innan þess flokks sem ég þá tilheyrði, að það ættu fleiri að koma að námsefnisgerð. Það voru settar 100 milljónir í sjóð til að kennarar innan skólans gætu við námsefnisgerð, eða aðrir sem eru að semja námsefni, sótt í sjóðinn. Sá sjóður var lagður niður, líklega út af pólitík en eflaust líka, svo að ég gæti sannmælis, út af erfiðri efnahagsstöðu, hjá vinstri stjórninni 2009–2013. Það hefur ekkert verið bætt í síðan. Þetta er hlutur sem við verðum að taka alvarlega samhliða því að bæta í.
Ég vona að fólk skilji að ég er að setja þetta fram í mestu vinsemd af því að ég held til að mynda að það græði enginn á því að fyrrum menntamálaráðherrar eða núverandi menntamálaráðherrar fari að karpa um það hvernig og hvar mistök voru gerð eða hvað við gerðum vel o.s.frv. Við þurfum að sameinast um þetta verkefni og það fyrsta er að viðurkenna vandann og hann er ákveðinn. Það er verið að segja okkur með þessum mælingum sem við förum í í gegnum PISA að við erum ekki að sinna því jöfnunartæki sem skólakerfið okkar er og á að vera, því að sama hversu efnað fólk er eða hvaðan það kemur er skólinn, og ég vona að við séum sameinuð um það, það tæki sem veitir börnunum okkar jöfn tækifæri. Hann passar upp á jafnrétti til náms. En þegar það er þannig að við erum ekki að útskrifa börnin okkar með grundvallar- og grunnmenntun erum við að bregðast börnunum okkar og ég vil meina að við séum að brjóta lög. Það er á ábyrgð okkar sem hér erum. Við þurfum að passa upp á þetta umhverfi. Þess vegna er svo mikilvægt að styðja við menntamálaráðherra hvers tíma. Þetta eru okkar hagsmunir. Framtíðin er í húfi. Börnin okkar þurfa að geta komið út úr skólakerfinu þannig að við séum búin að tryggja þessa grunnmenntun og þá verðum við líka að taka erfiðar spurningar.
Við sjáum hvernig staðan er á landsbyggðinni og við verðum að spyrja okkur: Eru skólarnir á landsbyggðinni nægilega vel studdir? Hafa þeir burði til að fara í allt það sem þarf að gera til þess að börnin okkar fái það sem þau eiga kröfu á, heimtingu á, þessa grunnmenntun, til að þau geti farið inn í framtíðina með ákveðinn grunn, af ákveðnum palli? Það er ekki verið að tala um að taka niður framúrskarandi nemendur. Ég er tala um grunninn sem allir eiga að hafa. Það þýðir að við þurfum að taka umræðu um sameiningu sveitarfélaga, hvort það hjálpi til á landsbyggðinni að einingarnar séu stærri, a.m.k. að gera kröfur um að það verði aukið samstarf, ekki til að hagræða í rekstri heldur til að taka utan um börnin okkar og utan um kennara, að þau fái þá þjónustu sem þau þurfa á að halda í þessu fjölbreytta og oft á tíðum erfiða umhverfi sem þau starfa í. Ég er búin að tala við marga kennara síðastliðna tvo sólarhringa og skólastjórnendur og við erum með frábært fólk, en þau hafa líka verið pínulítið eins og hrópandinn í eyðimörkinni. Ég held að við þurfum að spyrja okkur erfiðra spurninga á borð við hvort aðalnámskráin frá 2011 sé að styðja við það að börnin hljóti þessa grunnmenntun sem þau eiga rétt á að hafa þegar þau útskrifast. Við þurfum að taka þessa spurningu fyrir og taka hana áfram. Þannig að ég segi: Já, við þurfum að hafa í huga að skólarnir eru auðvitað jöfnunartæki. Við verðum að passa upp á að þeir séu það og þá verðum við að taka utan um kennara sem eru að standa sig frábærlega, kennara sem þurfa líka á því að halda að börnin okkar verði mæld til að finna þessa stöðu og framvindu hjá þeim.
Af þessum samtölum mínum er alveg ljóst, af því að dómsmálaráðherra er nú hérna vinstra megin, að það er algjört lykilatriði að taka betur á móti útlendingum þegar þeir koma hingað og vilja búa hér og þar erum við greinilega að bregðast. Þarna þurfa skólarnir og umhverfið að vera miklu skýrara, miklu skarpara um hvernig við gerum það. Þetta er ákall sem ég heyri ítrekað frá kennurum og skólastjórnendum og PISA kemur skýrt fram með.
Við þurfum líka að taka umræðu um síma, snjalltæki í skólastofunni, hvaða rannsóknir og mælingar búi að baki því að það sé gott að hafa þetta allar stundir. Ég verð að viðurkenna að ég hef verið svolítið þar, en getur verið að rannsóknir sýni það að þessi tengsl sem eru svo dýrmæt á milli nemenda og kennara séu að rofna af því að það er verið í tölvu, það er verið í síma eða ipad meira og minna allan daginn? Langflestir kennarar sem ég hef rætt við segja að við verðum að ná betri tökum á þessu og sumir hafa gert það, hafa komið upp símahólfum strax í upphafi kennslu og tengslamyndunin. Ákafinn, hugsunin o.s.frv. hefur gjörbreyst. Þetta er eitthvað sem við þurfum líka að taka umræðu um og ég bind vonir við það einmitt að Miðstöð menntunar og skólaþjónustu skoði þessa þætti, af því að í erlendum rannsóknum, m.a. úr „digital“-heiminum, er verið að lýsa miklum áhyggjum af þróun heila hjá bæði drengjum og stúlkum og hvernig þau fara síðan í sköpun og inn í þekkingarsamfélagið. Það eru margar erlendar rannsóknir sem sýna þetta og við hljótum að verða að staldra við. Ég viðurkenni það, eins og ég sagði áðan, að ég hef hugsað hvort þetta sé ekki bara eitt af því sem fylgi nútímanum. En einn kennari sagði svo skilmerkilega við mig í gær: Við erum ekki að tala um að ýta þessu út, tölvunum og símunum, þetta er bara hluti af verkfærakistunni, en mörkin verða að vera skýrari. Ég held að þetta sé líka eitthvað sem við eigum að skoða.
Ég vil benda á rétt í lok minnar ræðu að mennta- og menningarmálaráðherra verður líka, talandi um að verja íslenskuna núna þegar við erum með launasjóð rithöfunda, að setja púður og meiri þyngd í þýðingar á frábærum erlendum barnabókmenntum til að viðhalda áhuga barnanna okkar á lestri. En það þarf ekki síður að segja við rithöfundasamfélagið: Kæru vinir, á næstu tíu árum ætlum við að forgangsraða í barnabókmenntir. Það eru líka hagsmunir annarra rithöfunda sem búa þar undir. (Forseti hringir.) Ef börnin okkar læra ekki strax að lesa eitthvað annað en fljótskrifaðar bókmenntir, ef þau læra ekki að lesa dýpri bókmenntir (Forseti hringir.) munu þau ekki heldur fara í okkar frábæru rithöfunda, hvort sem við erum að tala um Halldór Kiljan, Jón Kalman, Sigríði Hagalín, Vigdísi Gríms. (Forseti hringir.) Við verðum að setja meira púður í laun, í launasjóð rithöfunda þegar kemur að barnabókum (Forseti hringir.) ásamt þýðingu.
Þetta er bara hluti af því þar sem ég vildi bera niður. (Forseti hringir.) Þetta eru krefjandi spurningar og krefjandi umhverfi fyrir okkur hér að standa saman í með skólasamfélaginu og nýrri stofnun sem við vonandi samþykkjum á morgun.