Miðstöð menntunar og skólaþjónustu.
Virðulegur forseti. Ég þakka hv. þingmanni andsvarið. Það er alltaf gaman þegar greinar eru lesnar sem maður hefur látið frá sér og sérstaklega skemmtilegt þegar þær birtast í hinu mæta blaði Mosfellingi. Það er rétt hjá hv. þingmanni. Ég skrifaði grein í það blað þar sem ég var að tala um mikilvægi menntunar og læsis. Ég hef dásamað það verkefni sem Vestmannaeyjabær hefur keyrt og heitir Kveikjum neistann. Ég hef bæði heimsótt þar skóla og rætt við kennara, bæjarstjóra og fleiri og ég veit að hv. þingmaður hefur gert það líka. Það er ofboðslega spennandi og gaman að sjá hve árangurinn virðist vera mikill af því verkefni. Ég var í þessari grein að hvetja til þess að mitt sveitarfélag skoðaði verkefnið og ég vona svo sannarlega að fleiri sveitarfélög geri það. Það verkefni ætti einmitt að geta skalast upp. En ég held að það sem við ræðum þegar við erum að velta fyrir okkur niðurstöðum PISA sé ofboðslega margþætt vandamál. Þar af leiðandi er lausnin ekki einhver ein eða ofboðslega einföld. Ég vona og treysti því að sú aðferðafræði sem búið er að byggja upp í Vestmannaeyjum geti nýst fleiri skólum, klárlega. Ég er samt sem áður ekki komin þangað að ég haldi að það sé hægt að skrifa það einhvern veginn inn í lögin að allir skólar eigi að gera þetta með þessum hætti. Við erum auðvitað með grunnskólana rekna á vettvangi sveitarfélaga og ég sé ekki fyrir mér að við séum að fara að breyta því. En við eigum auðvitað í stefnum um menntamál að gera meiri kröfur og þessi stofnun sem við erum að ræða hér, sem er annars vegar þjónustustofnun til handa sveitarfélögum og skólunum, og svo eftirlitsþátturinn sem á að færast til ráðuneytisins — við þurfum auðvitað að veita hæstv. ráðherra, ákveðið aðhald með því að þessi eftirlitsþáttur sé virtur, að það fari fram ytra mat á grunnskólum. Ég vil í raun tala fyrir því að það séu einhvers konar aðrir matsferlar. Ég var hlynnt samræmdu prófunum á sínum tíma, sérstaklega þegar þau voru ekki lengur bara í tíunda bekk heldur tekin á mismunandi tímum á námsferlinum. (Forseti hringir.) Ég kalla eftir því að við höfum einhverjar góðar og gildar mælingar.