154. löggjafarþing — 45. fundur,  7. des. 2023.

Miðstöð menntunar og skólaþjónustu.

238. mál
[11:39]
Horfa

Eyjólfur Ármannsson (Flf) (andsvar):

Ég þakka hv. þingmanni fyrir svarið. Það er mjög gott að henni þyki það vænt um sinn heimabæ að hún skori á bæjaryfirvöld þar og íbúa að taka upp aðferðafræði Kveikjum neistann. Það er líka mjög gott að óska öðrum bæjarfélögum þess sama og sínum eigin heimabæ og ég legg upp með það. Hv. þingmaður sagði að það væri engin ein aðferð við að læra að lesa. (BHar: Ná árangri.) Eða ná árangri. Það er vissulega ekki ein aðferð við að ná árangri en það er ein aðferð við að læra að lesa. Það er að skilja það forritunarmál og þau tákn sem stafrófið er svo að hægt sé að setja saman orð og stafa sig áfram til orða. Það verður einungis gert með bókstafa-hljóðaaðferðinni, að einstaklingar skilji hvað táknin þýða eins og hvert annað forritunarmál. Bókstafa-hljóðaaðferðin er bara lítill hluti af aðferðafræðinni og því sem er að gerast í Vestmannaeyjum, það er líka ástríðuhvöt. Það var t.d. mjög skemmtileg grein á visir.is um að þar hefði komið fram aukaafurð; vináttan. Það er búið að auka vinatengsl á milli bekkja hjá börnum og meiri tengingar eru á milli bekkja. Í greininni er talað um 19 tengingar í staðinn fyrir sex áður. Þannig að það er nú verkefni sem nær til fleiri þátta en lesturs.

En það breytir því ekki að við verðum að nota fremstu vísindi. Við höfum ekki verið að gera það. Annað er líka að þetta er ekki gamalt vandamál. Ég held hér á grein frá 2004 þar sem talað er um að fyrir tveimur árum ættu líklega um 15.000 Íslendingar á fullorðinsaldri við umtalsverða lestrarerfiðleika að stríða. Er hv. þingmaður ekki sammála því að við verðum að viðurkenna það að við höfum gert mistök? Við höfum verið að beita rangri aðferðafræði. Það er upphafið af því að geta bætt sig. Ég er sammála hv. þingmanni um að þetta snýst ekki um peninga. Þetta snýst um aðferðafræði við kennslu við lestur og þetta snýst um það að við höfum verið að gera eitthvað rangt. Við verðum að viðurkenna að við höfum verið að gera eitthvað rangt svo við getum leiðrétt það. (Forseti hringir.) Það er ekki endalaust hægt að vera með endalausa meðvirkni í þessum málum. Við verðum bara að taka af skarið núna og það verður gert í þessari stofnun en ekki neins staðar annars staðar.